„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hafliði um heilablóðfallið og meðferðina: „Líkaminn er ekki eilífur“

Hafliði um heilablóðfallið og meðferðina: „Líkaminn er ekki eilífur“

„Ég þarf alltaf að vera að skapa eitt­hvað. Ef ég er ekki að búa eitt­hvað til, þá verð ég eirð­ar­laus,” segir Hafliði Ragn­ars­son, súkkulaði­meist­ari og bak­ari með meiru, en hann hefur skapað sér sér­stöðu á íslenskum mat­vöru­mark­aði. Hafliði var á dög­unum gestur í hlað­varps­þætti Snorra Björns og ræddi þar umfangs­mik­inn feril sinn og jafn­framt átak­an­legri tíma.

Á meðal sér­greina Haf­steins eru konfekt­gerð, des­ertar og hand­unnin páska­egg sem hafa lengi vakið lukku, en Hafliði er af bak­ara­ætt og er sér­mennt­aður í súkkulaði­gerð. Þá hefur Hafliði oft verið kenndur við heitið „sendi­herra belgíska súkkulað­is­ins“ (e. Ambassa­dor of Belgian chocolate) en tit­il­inn hlaut bak­ar­inn þegar hann lenti í öðru sæti í alþjóð­legri súkkulaði­keppni Belgíu árið 2003. Í þeirri sömu keppni hlaut hann fyrstu verð­laun fyrir eft­ir­rétt og jafn­framt fyrstu verð­laun í flokki sæta­brauðs.

Árið 2010 fór álagið að segja sín sam­kvæmt Hafliða þegar hann fékk alvar­legt heila­blóð­fall og var í kjöl­farið sendur til Sví­þjóðar í átta klukku­stunda aðgerð. Hafliði lýsir aðgerð­inni í kjöl­far heila­blóð­falls­ins sem skugga­legri. „Ég var mjög hepp­inn. Síðan þegar ég kom heim var ég blindur á öðru aug­anu og það var ekk­ert víst hvort það kæmi aftur. Þá kom það aftur og ég þakka fyrir að vera til í dag.”

Að eigin sögn gerði súkkulaði­meist­ar­inn lítið til að snúa blað­inu við og vinna í sínum málum fyrr en nýverið, ára­tug síðar. „Þetta var nýr kafli í mínu lífi og nýtt tæki­færi, en ég fór ekk­ert rosa­lega vel með það í byrjun,“ segir Hafliði. „Ég upp­lifði það tíu árum seinna að lífið er ekk­ert sjálf­gefið og lík­am­inn er ekki eilífur.“

Á yngri árum var Hafliði í hljóm­sveit­inni Glimmer og spurður hvort þeim kafla hafi fylgt mikil drykkja svarar hann ját­andi, þó venjan hafi ekki verið sú í veit­inga­geir­anum. Samkvæmt honum fylgdi kokka­geir­anum svo mikið vinnu­á­lag, út frá þægi­legri rútínu, að það bjarg­aði honum. „Þetta er eins og að vera með ADHD en geta bara eytt orkunni í eina átt. Það var ekki eins mikið rokk og ról í kringum það,“ segir súkkulaði­meist­ar­inn.

Hafliði ákvað að fara í með­ferð þegar honum þótti tíma­bært að snúa blað­inu við. Hann seg­ist hafa gefið upp áfengi og kveðst finna tölu­verðan mun á heils­unni. Þá tók hann einnig upp mynd­list og segir þá athöfn að mála bæði vera gef­andi á sál­ina og upp­fylla einnig þörf hans til að skapa,„Að sjá hluti verða til gefur mér ótrú­lega mikið.”

Þáttinn má finna á heild sinni hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins