Hlaðvarpsþátturinn Bíóblaður hóf göngu sína í júlí síðastliðnum, en að honum stendur Hafsteinn Sæmundsson. Þátturinn hefur farið hratt vaxandi í vinsældum enda hefur stúdíóið notið góðs af fínu streymi gesta á síðustu misserum. Á meðal margra gesta má nefna Baldvin Z, Völu Kristínu Eiríksdóttur, Pál Óskar Hjálmtýsson, Siggu Kling, Kilo, Sunnevu Einarsdóttur, Emmsjé Gauta, Binna Löve og Donnu Cruz.
Þættirnir nálgast níunda tuginn, en Hafsteinn stefnir ótrauður á þátt númer 100 í júlí. Í samtali við blaðamann segir Hafsteinn að markmið hlaðvarpsins sé í grunninn einfalt; að fá fólk til að kunna betur að meta þetta skemmtilega listform sem kvikmyndir eru.
„Fyrir mér hafa bíómyndir alltaf verið skemmtiefni,“ segir Hafsteinn. „Stundum þegar harðkjarna kvikmyndaáhugamenn eða gagnrýnendur tala um bíómyndir, þá finnst mér þeir detta ofan í þá gryfju að taka þetta allt of alvarlega og setja sig hálfpartinn á einhvern stall. Ég vildi ekki gera það og þess vegna vildi ég einmitt hafa gestina mína fjölbreytta.“

Listin að standa á sama
Hafsteinn segir að kulnun í starfi hafi leitt til stofnun hlaðvarpsins. „Ég hafði verið að vinna hjá fyrirtæki sem sérhæfði sig í að selja heimilistæki og innréttingar. Mér líkaði vinnustaðurinn vel, en álagið varð gríðarlegt á frekar stuttum tíma. Að lokum gafst líkaminn upp,“ segir hann.
„Í desember 2019 fékk ég taugaáfall sökum álags í vinnu og heima fyrir og þurfti að fara í veikindaleyfi. Það var síðan í janúar 2020 að ég las bók sem kallast The Subtle art of not giving a Fuck. Sú bók breytti mínu hugarfari og í framhaldinu ákvað ég að ég vildi fara út fyrir þægindarammann, gera eitthvað sem hræddi mig pínu og gera loksins eitthvað sem ég hafði mikla ástríðu fyrir.“
Hafsteinn á framhaldið að þakka góðum vini sínum sem hvatti til að nýta þekkingu sína og áhuga með hlaðvarpi. „Á þeim tíma fannst mér hugmyndin fáránleg en það var einfaldlega vegna þess að ég hef aldrei verið mikið fyrir athygli, finnst fátt leiðinlegra en að láta taka mynd af mér og þótti röddin mín alltaf óþolandi.“
Hafsteinn segir að skipulag þáttarins sé þrískipt þegar kemur að gestum. „Hugsunin var að fá vini mína, frægt fólk og einhverja áhugamenn sem fáir þekkja en hafa brennandi áhuga á bíómyndum. Ég hef nú þegar fengið til mín grafíska hönnuði, leikstjóra, leikkonur, rappara, skemmtikrafta, framleiðendur, poppstjörnur, áhrifavalda, kvikmyndafræðinga, kvikmyndanema, svo mætti lengi telja.”
Hasar í forgangi
Hafsteinn er fæddur árið 1983 og ólst upp við mikið kvikmyndaáhorf, sem þáttastjórnandinn segir vera foreldrum sínum að þakka. „Ég ólst upp við mikið bíómyndaáhorf en pabbi minn var duglegur að sýna mér bíómyndir þegar ég var krakki.
Foreldrar mínir voru alltaf duglegir að fara í bíó og þegar þau sáu mynd sem var bönnuð börnum, og ég gat þar af leiðandi ekki séð hana, þá lýsti pabbi minn atriðum fyrir mér um leið og hann kom heim,“ segir Hafsteinn og fullyrðir að hasarmyndir eigi sér sérstakan stað hjá sér.
Hvers vegna hasarmyndir?
„Vegna þess að pabbi minn elskar svoleiðis myndir. Æskan mín var full af þessum helstu hasarhetjum og ég hef ekki enn fengið nóg af þessu.”
Brot úr sarpi Bíóblaðurs má finna hér að neðan.




















Athugasemdir