Þrír menn réðust á aldraðan mann með bareflum í Laugardalshverfinu í Reykjavíkur síðdegis í gær og börðu hann til óbóta. Þeir stálu af gamla manninum ýmsum munum, brutu gleraugu hans og skildu hann eftir liggjandi í blóði sínu. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Lögreglu barst tilkynning um árásina rétt fyrir klukkan fimm í gær og lögreglan lítur málið mjög alvarlegum augum. Vitað sé hverjir voru að verki en ekki hafa verið gefnar frekari upplýsingar um málið.
Í dagbók lögreglu er einnig sagt frá því að maður hafi gengið inn í verslun í Árbæ í gær og hótað þar fólki og verið með yfirgang við viðskiptavini og starfsfólk. Hann fór svo ekki að fyrirmælum lögreglu og var handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Einnig barst lögreglunni tilkynning um ökumann sem hafði tekið bensín og gleymt að taka dæluna úr áfyllingaropi bílsins. Sá reyndist svo undir áhrifum fíkniefna. Annar ökumaður var stöðvaður í dag vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna og hafði hann verið sviptur ökuréttindum áður. Annar ökumaður sem var stöðvaður reyndist óhæfur í akstri vegna neyslu lyfja.




















Athugasemdir