„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Konum kastað á dyr hjá Landspítala eftir fósturmissi: „Ótrúlega truntulegt á minni verstu stundu“

Konum kastað á dyr hjá Landspítala eftir fósturmissi: „Ótrúlega truntulegt á minni verstu stundu“

Ung kona var gengin 20 vikur með barn sitt í síð­ast­liðnum mán­uði þegar að hefð­bundin són­ar­skoðun leiddi í ljós að barnið var látið. Henni var til­kynnt látið á fimmtu­degi og gert að fara heim og koma aftur á mánu­degi. Þá fyrst myndi hún kom­ast að til að fæða barnið. Unga konan var látin ganga með látið barn sitt í fjóra daga. Ekki var unnt að kom­ast að fyrr og enga áfalla­hjálp var að fá á Land­spít­ala.

Hennar upp­lifun var sú sama og Sigríðar Jóns­dóttur sem birti nýverið pistil á Facebook þar sem hún lýsti reynslu sinn af því að verða fyrir fóst­ur­missi.  Hún ber Land­spít­al­anum ekki vel sög­una varð­andi við­brögð við þessu gríð­ar­lega áfalli. Læknar voru kulda­legir og engin áfalla­hjálp í boði . Það sem virð­ist þó hafa stungið flesta er að Sigríður var send heim á föstu­degi og beðin um að koma á mánu­dag til að fæða látna telpuna sína.

Henni var vísað á dyr með bæk­ling í hendi. Frásögn hennar í heild sinni er að finna hér.

Við þetta má bæta að í fyrr­nefndum bæk­lingi sem konum er afhentur og unn­inn er af styrkt­ar­fé­la­inu Gleym mér ey segir að ekki sé talið æski­legt að bíða með fram­köllun fæð­ingar lengur 24 klukku­stundir.

„Nærgætnin var engin“

Við­brögðin við frá­sögn Sigríðar voru gríð­ar­leg og steig fjöldi kvenna fram með reynslu­sögur sínar af fóst­ur­missi og því kalda við­móti sem þær segja Land­spít­ala hafa sýnt sér.

Ólöf hafði einnig komið í skoðun á föstu­degi og sagt að koma á mánu­degi. „Mér voru réttir ein­hverjir papp­írar og svo bara send heim. Mér leið ömur­lega og ég átti bara bíða heila helgi með dáið fóstur inní mér!“

„Heilbrigðiskerfið þarf að laga þetta ASAP!“

Þór­hildur segir sig ekki hafa verið senda heim þar sem hún var þegar komin með hríðir en við­mótið hafi verið kalt. „Nær­gætnin var engin, her­bergið fullt af lækna­nemum og ekki talað við mig heldur um mig fyrir framan mig.

Ég var eins og kennslu­dúkka í rúm­inu á meðan mað­ur­inn minn grét einn fram á gangi en honum var vísað fram í hvert sinn sem átti að skoða. Ég end­aði í svæf­ingu og vorum við yfir nótt á spít­al­anum í her­bergi innan um nýfædd unga­börn og gleði­stundir ann­arra. Það hlýtur að vera hægt að gera betur.“

Ekkert breyst í fjörutíu ár

Kristín lýsir yfir furðu og sorg yfir að ekk­ert hafi breyst á þeim átján árum sem hafa liðið frá því missti dóttur sína eftir 26 vikna með­göngu og Kristín Gyða tekur í sama streng og segir ekk­ert hafa breyst frá allt frá 1980 þegar hún ól and­vana son.

Ásta þurfti að bíða í heila viku.

Sögurnar skipta tugum. Konurnar er allar sam­mála að heil­brigð­is­kerfið hafi brugð­ist þeim og furða sig á því að í landi sem krefur borg­ara sína um einu hæstu skatta í heimi skuli ekki vera unnt að veita konum þá þjón­ustu sem nauð­syn­leg er.

Júlí Ósk bendir einnig að sumir innan heil­brigð­is­stéttan þurfi að temja sér að sýna fólki í áfalli sam­kennd. „Það er ótrú­legt hvað fólk getur komið truntu­lega fram við fólk sem er að upp­lifa sínar allra verstu stundir og mjög sáran missi en einmitt þá getur við­mót heil­brigð­is­starfs­fólks skipt veru­legu máli.“

Jóhanna kallar eðli­lega eftir svörum um hvernig stjórn sé háttað á deild þar sem ekki virð­ast hafa orðið breyt­ingar á vinnu­brögðum í ára­tugi.

Ljóst er að mikil sorg og reiði er meðal kvenna vegna þess hvernig staðið er að umönnun kvenna sem hafa orðið fyrir fóst­ur­missi. Þær kalla eftir breyt­ingum. Þær kalla eftir rétt­læti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins