„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Samherjamenn reita Norðmenn til reiði – Norski sjávarútvegsráðherrann herðir reglur

Samherjamenn reita Norðmenn til reiði – Norski sjávarútvegsráðherrann herðir reglur

Norðmenn hafa hert reglur í sjáv­ar­út­vegi til að stöðva Samherja í söfnun veiði­heim­ilda í Noregi. Odd Emil Ingebrigt­sen, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Noregs, gaf út fyr­ir­mæli um það hvernig norska fiski­stofan eigi að taka eigi á erlendu eign­ar­haldi í norskum sjáv­ar­út­vegi. ástæðan er sú að Samherji hefur keypt sig inn í norskt útgerð­ar­fé­lag eftir króka­leið. Ráð­herr­ann hefur áhyggjur af þeirri stefnu Samherja að ná undir sig veiði­heim­ildum í mörgum löndum. Hann segir ekki ástæðu til að taka sér­stak­lega vel á móti fyr­ir­tækjum sem safna undir sig veiði­heim­ildum í mörgum löndum. Rík­is­út­varpið sagði frá.

Samherji hefur und­an­farið komið við sögu varð­andi klúður norska bank­ans DNB, við­skipta­banka Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, og slaka varð­stöðu gagn­vart pen­inga­þvætti. Bankinn dróst inn í Namib­íu­mál Samherja. Hann var sektaður um svim­andi upp­hæðir. Sam­herj­a­menn hafa þver­tekið fyrir að hafa gripið til pen­inga­þvættis og segja mál bank­ans vera sér óvið­kom­andi. Afleið­ingar alls þessa fyrir Samherja og Íslend­inga er skaðað orð­spor í Noregi og reitt Norðmenn til reiði.

Norski sjáv­ar­út­vegsáð­herr­ann hefur gefið fiski­stofu fyr­ir­mæli um að taka strangar á málum sem snúa að breyttu eign­ar­haldi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja þar sem útlend­ingar eiga í hlut. Fiski­stofa á líka að meta hvort erlend fyr­ir­tæki sem ætla fjár­festa í norskum sjáv­ar­út­vegi hafi brotið reglur í norskri land­helgi með útgerð undir öðrum fána. Þá stendur til að gefa út reglu­gerð um að ætíð þurfi að fá sam­þykki stjórn­valda fyrir beinu eða óbeinu eign­ar­haldi útlend­inga á norskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum, ekki verði nóg að til­kynna um það.

Vegna Samherja

„Ég dreg ekki dul á að þessi fyr­ir­mæli eru til komin vegna íslenska fyr­ir­tæk­is­ins Samherja sem hefur keypt sig inn í norskt útgerð­ar­fé­lag,“ er haft eftir Ingebrigt­sen á vef norskra stjórn­valda. „Samherji er nú þegar með starf­semi í fleiri Evr­ópu­út­löndum og hefur stundað fisk­veiðar í land­helgi okkar undir ýmsum fáum. Slík alþjóð­leg sam­þjöppun eign­ar­halds skapar sér­stakar áskor­anir,“ segir í end­ur­sögn RÚV.

Mál þetta er enn eitt áfallið fyrir Samherja sem þegar glímir við það að ímynd þess er stór­löskuð vegna ásak­ana um mútur og skatt­svik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins