„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dreymdi afa og lagði upp í túr: Siggi og Franziska sloppin úr sóttkví með 26 lög

Dreymdi afa og lagði upp í túr: Siggi og Franziska sloppin úr sóttkví með 26 lög
Siggi Björns og Fransizka, eig­in­kona hans, við æfingar fyrir tón­leika.

„Það var búið að standa til lengi að við Fransiska kæmum til Íslands og færum tón­leika­ferð um landið. Veiran trufl­aði okkur með þetta og í raun ekk­ert hægt að ákveða neitt fram í tím­ann,“ segir Siggi Björns trú­bador sem er að leggja upp í tón­leika­ferð um Ísland ásamt unn­ustu sinni Franzisku Gunther.

Siggi og Franziska búa í Berlín. Hann fædd­ist og ólst upp á Flateyri. Þangað leita draumar hans gjarnan. Draumur um afa hans varð til þess að túr­inn um Ísland var plan­aður.

„Það var ekki fyrr en mig dreymdi Ýsu-Manga, afa minn sem var for­maður á bátum fyrir ótrú­lega mörgum ára­tugum. Hann kom til mín og sagði að nú væri komið að því. Eig­in­lega kall­aði hann bara „ræs“. Ég beið ekki boð­anna og við fórum strax að skipu­leggja ferð um Ísland og gera allt klárt. Það var því magnað að fjölda­tak­mörk­unum hafi verið létt á meðan við vorum hér í sótt­kví. Eitthvað hefur gamli mað­ur­inn haft fyrir sér,“ segir hann.

Franziska fræg í Þýskalandi

Franziska hefur gert það mjög gott í þýska­landi síð­ustu ár og meðal ann­ars kom­ist með lög sín hátt á vin­sæld­ar­lista. Ekki þarf að kynna Sigga fyrir þeim Íslend­ingum sem kunna góðri skemmtun að njóta.

„Nú erum við búin að vera í sótt­kví á Ísafirði síð­ustu daga og höfum notað tæki­færið að taka upp 28 lög sem munu verða á dag­skránni hjá okkur í túrnum, þó ekki verði þau öll spiluð á einum tón­leikum. Fransiska datt niður á svo hel­víti skemmti­lega hug­mynd.
Við helg­uðum okkur hólf á sjálfu Inter­net­inu sem nær um allt land og land­helg­ina, þar verða lögin öll flutt eins og við flytjum þau á tón­leikum. Við erum með pappa­spjald sem við munum selja fólki og þar er aðgangur að þessum lögum, þannig að fólk getur farið með tón­leik­ana heim með sér þegar þeim líkur. 28. lög á pappa­spjaldi er eitt­hvað sem við höfum aldrei heyrt um áður, segir Siggi glett­inn.

Bakhlið á „Pappaspald­inu“ sem inni­heldur 28 tón­leika­lög þerra Sigga og Franzisku.

Það er óhætt að segja að þau hafi fjölda­fram­leitt tón­leka í sótt­kvínni á Sól­heima­stúd­íói við Engjaveg á Ísafirði.
Tón­leikar með þeim Franzisku og Sigga eru tónar og tal. Sagðar eru sögur af ótrú­legu fólki og sér­kenni­legu sem skap­aði sér sér­stöðu á sinni tíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins