„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stjörnunuddarinn til Mannréttindadómstóls – Sagður hafa brotið kynferðislega á fjórtán ára börnum

Stjörnunuddarinn til Mannréttindadómstóls – Sagður hafa brotið kynferðislega á fjórtán ára börnum
Jóhannes Tryggvi Svein­björns­son. Mynd: Stundin.

„Ég sætti mig ekki við að það sé brotið svona á mér. Íslenska ríkið lætur málið niður falla þrátt fyrir játn­ingu frá ger­anda oftar en einu sinni. Hann hefur sent sms og Facebook skila­boð til mín og til for­eldra minna þar sem hann játar að hafa brotið gegn mér,” segir kona sem hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu eftir að kæra sem hún lagði fram 2018 á Jóhannes Tryggva Svein­björns­son með­höndl­ara fyrir kyn­ferð­is­brot, var felld niður af hér­aðs­sak­sókn­ara í tvígang.

Þetta kemur fram í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar.

Fimm ár fyrir nauðgun

Fimmtán konur kærðu Jóhannes fyrir nauðg­anir og önnur kyn­ferð­is­brot og voru tíu þeirra látin niður falla þar sem þau þóttu ekki lík­leg til sak­fell­ingar. Mál kon­unnar sem um ræðir er eitt þeirra. Ákærur voru lagðar fram í fjórum málum og í jan­úar síð­ast­lið­inn var Jóhannes dæmdur í fang­elsi fyrir að hafa nauðgað fimm konum.

Konan sem um ræðir er frænka Jóhann­esar. Hún segir Jóhannes, oft­sinnis í félags­skap ann­arra manna, hafa brotið á sér á ung­lings­aldri. Í kærunni til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins lýsir hún ofbeldi Jóhann­esar. Hún lýsir því hvernig Jóhannes og vinur hans brutu gegn henni og vin­konu hennar þegar þær voru aðeins fjórtán og fimmtán ára gamlar. Vinkonan greindi frá nauðg­un­inni og hóf lög­regla rann­sókn að beiðni barna­vernd­ar­nefndar. Varð konan þá fyrir gríð­ar­legum þrýst­ingi af hendi Jóhann­esar sem end­aði með því að hún bar ljúg­vitni af ótta við Jóhannes og var rann­sókn látin niður falla.

Smárúta full af karlmönnum

Ofbeldi Jóhann­esar hélt áfram næstu árin að sögn fræn­kunnar. Meðal ann­ars kall­aði Jóhannes hana á sinn fund undir því yfir­skini að hann vildi biðja hana afsök­unar. Hitti hún hann í smárútu á Akureyri þar sem hann beið hennar á samt fjölda ann­arra manna. Konan fór afar illa úr út því atviki að eigin sögn.

Í gögnum heil­brigð­is­starfs­fólks og sál­fræð­inga má sjá að konan hefur glímt við marg­vís­lega sál­ræna erf­ið­leika sem styðja frá­sögn hennar varð­andi brotin. „Ekkert í hennar frá­sögn, við­brögðum eða líðan síð­ustu ár bendir til þess að hún hafi verið vilj­ugur þáttak­andi í þeim atvikum sem um ræðir”.

Í sam­tali við Stundina lýsir konan óánægju sinni um hvernig haldið hafi verið um mál hennar hjá lög­reglu og dóm­stólum. Jóhannes hafi ítrekað breytt vitn­is­burði sínum, sent henni pen­inga í skaða­bætur og skila­boð þar sem hann gekkst við því sem hann hafði gert á hennar hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins