„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kjarninn sver af sér innbrot í síma skipstjórans: „Starfsfólk Kjarnans hefur engin lögbrot framið“

Kjarninn sver af sér innbrot í síma skipstjórans: „Starfsfólk Kjarnans hefur engin lögbrot framið“
Þórður Snær Júl­í­us­son

Rit­stjóri Kjarnans og ábyrgð­ar­menn sverja af sér að hafa staðið að inn­broti í síma Páls Stein­gríms­sonar, skip­stjóra Samherja. Gögn úr síma skip­stjór­ans sem Stundin og Kjarninn birtu í dag varpa ljósi á skipu­lögð róg­skrifs Páls, Þor­björns Þórð­ar­sonar, fyrr­ver­andi frétta­manns Stöðvar 2, og Örnu Bryndís McCure, lög­fræð­ings og starfs­manns Samherja, í sam­vinnu við Þorstein Má Bald­vins­son for­stjóra. Um er að ræða sam­skipti sem sýna grófa aðför að mann­orði nafn­greindra ein­stak­linga. Helgi Seljan, frétta­maður Kveiks, og upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son hafa oft­ast verið í úthróp­aðir af Sam­herj­a­fólki.

Ekki er ljóst hver náði í gögnin í síma skip­stjór­ans en Kjarninn upp­lýsir að inn­brotið hafi verið kært til lög­reglu og Sam­herj­a­menn vilji ekki ræða mál sem byggt sé á stolnum gögnum. Í yfir­lýs­ingu Kjarnans er sagt að gögnin komi frá þriðja aðila. Rit­stjóri Kjarnans er Þórður Snær Júl­í­us­son.

„Ábyrgð­ar­menn Kjarnans vilja taka fram að umrædd gögn sem eru grund­völlur umfjöll­unar mið­ils­ins bár­ust frá þriðja aðila. Starfs­fólk Kjarnans hefur engin lög­brot framið og fjöldi for­dæma eru fyrir því hér­lendis sem erlendis að fjöl­miðlar birti gögn sem eiga erindi við almenn­ing án þess að hafa upp­lýs­ingar um hvernig þeirra var aflað. Það var skýr nið­ur­staða ábyrgð­ar­manna Kjarnans að hluti gagn­anna ætti sterkt erindi og því eru almanna­hags­munir af því að fjalla um þau með ábyrgum hætti,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Mannlíf hefur reynt að ná tali af Þorbirni Þórð­ar­syni eða öðrum sem nefndir eru til sögu í leyni­gögnum skip­stjór­ans en eng­inn þeirra lætur ná í sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins