„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ólöf Tara lýsir gerendameðvirkni Birnu: „Hef horft upp á svo rætna aðför að þolendum ofbeldis“

Ólöf Tara lýsir gerendameðvirkni Birnu: „Hef horft upp á svo rætna aðför að þolendum ofbeldis“

„Èg hef horft uppá síð­ast liðnar vikur svo rætna aðför að þolendum ofbeldis,“ skrifar Ólöf Tara Harð­ar­dóttir sem hefur barist ötul­lega gegn ofbeldi á konum. Hún svarar pistli Birnu og því hvernig hún vegur að konum sem hafa orðið fyrir ofbeldi.

Birna Valtýs skrif­aði umræddan pistil á Facebooksíðu sína þar sem hún lýsir yfir stuðn­ingi sínum við karl­menn sem sak­aðir hafa verið um að hafa beitt ofbeldi. Frétt sem Mannlíf birti um málið má sjá hér. Pistill­inn gengið um netheima og stuðað marga .

Ólöf Tara segir að ger­anda­með­virkni nái hæstu hæðum í pistl­inum. Hún rifjar upp við­tal sem Sölvi tryggva­sonn lét taka við sig eftir umfjöllun Mannlífs.

„Konur sem stíga fram og segja sína sögu eru ekki að halda þvi fram að karl­menn verði ekki fyrir ofbeldi. Hvaða kona kærir ofbeldi, sem er margra àra ferli og leggur það á sál­ina sína að fara í gegnum það kæru­ferli þar sem geð­heilsan hennar er dregin í efa, sann­leikur hennar dregin í efa, útskúfuð fyrir að vera “lyg­ari” af því að hún er með þrá­hyggju vegna höfn­unar? En að setja saman sjálfs­víg, metoo og konur ljúga…. höfum við ekki öll heyrt þennan… bara hvað í þar sein­ustu viku þegar þekktur fjöl­miðla­maður tók við­tal við sjálfan sig, með nákvæma­lega sömu key punktum. Að làta ekki eigin upp­lifun lita hvaða afstöðu þú tekur? En pistla­höf­undur tekur svo afstöðu sjálf útfrá eigin upp­lif­unum“.

Ólöf Tara Harð­ar­dóttir

Konur hafa stigið fram

Tvær konur hafa stigið fram og sagt frá ofbeldi sem þær urðu fyrir af hendi þjóð­þekkts manns sem hefur mikið verið í sjón­varp­inu og af honum hafa verið myndir á strætó­skýlum og fleira. Konurnar eru tvær þær Linda Gunn­ars­dóttir og Sara Regal. Þær hafa báðar kært mann­inn auk þriðju kon­unnar sem er mjög þekkt á Íslandi og var með mann­inum í sam­bandi eins og Linda og Sara. Hér má sjá umfjöllun Mannlífs um málið.

Linda Gunn­ars­dóttir
Sara Regal

Slær þolendur ofbeldis með blautri tusku

Birna Valtýrs

Pistill Ólafar Töru í heild sinni

„Èg hef horft uppá síð­ast liðnar vikur svo rætna aðför að þolendum ofbeldis. Hér er enn ein aðförin. Það er engin for­rétt­inda­staða að vera þol­andi ofbeldis. Þú færð ekki inn­göngu í ein­hvern elítu­hóp sem er gott að vera hluti af. Ger­anda­með­virknin nær í hæðstu hæðir í þessum pistli. Konur sem stíga fram og segja sína sögu eru ekki að halda þvi fram að karl­menn verði ekki fyrir ofbeldi? Afhverju förum við alltaf þangað? Hver hefur skrifað að karl­menn verði aldrei fyrir ofbeldi? Þú getur ekki núllað út allar þessar mörg hund­ruð frá­sagnir afþví að karl­menn verða fyrir ofbeldi. Taktu stand með karl­mönnum og tal­aðu þá um ofbeldi gegn karl­mönnum, tal­aði um sjálfs­víg og þá stað­reynd að karl­menn falla frekar fyrir eigin hendi. En að setja saman sjálfs­víg, metoo og konur ljúga…. höfum við ekki öll heyrt þennan… bara hvað í þar sein­ustu viku þegar þekktur fjöl­miðla­maður tók við­tal við sjálfan sig, með nákvæma­lega sömu key punktum. Að làta ekki eigin upp­lifun lita hvaða afstöðu þú tekur? En pistla­höf­undur tekur svo afstöðu sjálf útfrá eigin upp­lif­inum.

Meðal ann­ars: Vitni af konu draga til­baka falska ásökun – stað­festir ekki að svona stór hluti kvenna ljúgi. Þetta er engin stað­reynd, heldur upp­lifun pistla­höf­undar. Vit­neskja um þrá­hyggju vegna höfn­unar – eigin upp­lifun sem end­ur­speglar svo sann­ar­lega ekki stað­reyndir þegar það kemur að fölskum ásök­unum. Þekkir marga karl­menn í svip­aðri stöðu – þeir sem beita ofbeldi við­ur­kenna það sjaldn­ast. En hér er meint per­sónu­leg upp­lifun. Afþví að karl­menn hingað til hafa geng­ist við og axlað ábyrgð á ofbeldi? Að skrifa “èg trúi ekki öllum þeim skít sem er sagt um ykkur”….. skýr afstaða með meintum ger­endum, skýr afstaða gegn brota­þolum ofbeldis. Er hægt að ráð­ast meira að brota­þolum ofbeldis? Er hægt að svifta æru brota­þola meira en það? Vill pistla­höf­undur sem­sagt meina að allar 6 kon­urnar sem hafa svip­aða sögu að segja af sama meinta ger­and­anum að þær séu með þrá­hyggju yfir höfnun sem þær urðu fyrir?

Hvaða kona kærir ofbeldi, sem er margra àra ferli og leggur það á sál­ina sína að fara í gegnum það kæru­ferli þar sem geð­heilsan hennar er dregin í efa, sann­leikur hennar dregin í efa, útskúfuð fyrir að vera “lyg­ari” af því að hún er með þrá­hyggju vegna höfn­unar? Sá sem gerir slíkt þarf aðstoð frà geð­heil­brigð­is­kerf­inu. 2-8% ljúga… þessa litlu pró­sentu nýta ofbeld­is­menn sem og stuðn­ings­menn ofbeldis sér í hag.

Ég geri mér fylli­lega grein fyrir erf­iðri stöðu pistla­höf­undar. En èg get ekki með nokkru móti setið þegj­andi og hljóð­ar­laust í enn einni aðför­inni að brota­þolum ofbeldis. Rétt­ar­kerfið er að öllu fokk­ing leiti ger­enda­vænt… ekki afþví að konur eru að ljúga. Vegna þess að brot í nánum sam­böndum, nauðg­anir, lík­am­legt ofbeldi og and­legt ofbeldi er erfitt að sanna. Því sjaldan eru vitni, oft þora konur ekki að segja frá því ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir fyrr en seinna og oftar en ekki leggja þær það ekki á sig að kæra því það er erfitt ferli. Þó að mál falli ger­anda í hag (sýknun), þá er það ekki það sama og sak­leysi. Það þýðir ein­fald­lega að ekki voru næg sönn­un­ar­gögn til þess að rétt­læta sak­fell­ingu. Ef ég stel í búð, það eru engar sann­anir fyrir því er það ekk­ert sam­an­se­merki þess að ég hafi aldrei stolið úr búð­inni. Það hefur ekk­ert með geð­sjúkar konur sem ljúga að gera. Opnum fokk­ing augun…. Góðir strákar beita ofbeldi Sætir strákar beita ofbeldi Skemmti­legir strákar beita ofbeldi Þeir eru ekki allir sveittir, tann­lausir að klóra sér í pungnum… Ég trúi ykkur öllum Ég stend með ykkur. Ég sendi ykkur styrk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins