„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Frambjóðandinn Jóhann Páll í skotlínu Samherja. „Fíflið hann frændi minn“

Frambjóðandinn Jóhann Páll í skotlínu Samherja. „Fíflið hann frændi minn“

Arna McClure Bald­vins­dóttir, lög­maður Samherja, þrýsti á Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra Samherja að setja fram „efn­is­leg svör“ vegna greinar Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, fram­bjóð­anda Sam­fylk­ingar. Þetta kemur fram í Kjarn­anum og er byggt á gögnum sem fjöl­mið­ill­inn komst yfir úr tölvu og síma Páls Stein­gríms­sonar skip­stjóra.

Kjarninn hefur byggt fréttir ótal gögnum úr fórum skip­stjór­ans sem var hluti af svo­kall­aðri Skæru­liða­sveit Samherja sem hafði það verk­efni að berja á meintum óvinum Samherja. Auk Örnu og Páls er Þorbjörn Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi frétta­maður Stöðvar 2, hluti af teym­inu sem og Jón Óttar Ólafsson, fyrr­ver­andi lög­reglu­maður, sem sat meðal ann­ars um Helga Seljan og sendi honum ógn­andi skila­boð úr leyni­númer. .

Það skondna við plottið gegn Jóhanni Páli Jóhanns­syni er að hann er frændi umræddrar Örnu sem sagði í leyni­gögn­unum að henni þætti skemmti­legt að stinga, strá salti í sárin og snúa svo hnífnum.

Þriðji hlekk­ur­inn, er greinin sem fór fyrir brjóst þeirra. Í grein­inni skrif­aði Jóhann Páll meðal ann­ars um ofur­stétt­ina sem eigni sér fisk­inn í sjónum.

„Olíg­ar­k­ana sem eitra og skekkja þjóð­mála­um­ræðu á Íslandi með því að kaupa upp fjöl­miðla og póli­tíkusa og reka áróð­urs­stríð gegn blaða­mönnum, emb­ætt­is­mönnum og eft­ir­lits­stofn­unum, hverjum þeim sem ógna sér­hags­munum þeirra. Olígarka sem virð­ast ein­fald­lega hafa sagt sig úr lögum við sam­fé­lagið okkar. Yfir­gang­ur­inn mun halda áfram að eitra út frá sér og bitna á okkur öllum meðan sam­herjar Samherja stjórna Íslandi.“

Arna segir auð­velt „að svara kjaftæð­inu í frænda mínum“ en Kjarninn upp­lýsir að  langamma Örnu og amma Jóhanns Páls voru systur. Hún spyr svo Þorbjörn Þórð­ar­son hvort hann geti „ekki hent upp svörum á fíflið hann frænda minn?“.

Jóhann Páll vís­aði í Facebookfærslu sína þar sem segir að vænt­an­lega verði ankanna­legt ætt­ar­mót framundan.

„Kannski ekki mikið um þetta að segja annað en að ég fagna auð­vitað fjand­skap Sam­herja­stjórn­enda og kjölturakka þeirra í minn garð – þá hlýtur maður að vera að gera eitt­hvað rétt. Vinnu­brögðin sem Stundin og Kjarninn hafa afhjúpað und­an­farna daga sýna mik­il­vægi þess að við stöndum með frjálsum fjöl­miðlum og setjum olí­görkum og sér­hags­muna­öflum stól­inn fyrir dyrnar.“

Páll skip­stjóri hefur sagt að hann hafi kært inn­brot í tölvu sína og síma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins