„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Heiftarleg átök ASÍ og Play – Skítamix og hurðaskellur í beinni hjá Drífu og Birgi

Heiftarleg átök ASÍ og Play – Skítamix og hurðaskellur í beinni hjá Drífu og Birgi

Fast hefur verið skotið í báðar áttir í deilum ASÍ og hins nýstofn­aða flug­fé­lags Play. Drífa Snædal hefur sagt nei við Play og telur félagið stundi und­ir­boð gagn­vart starfs­fólki. Play hefur aftekið það með öllu í yfir­lýs­ingum og segir að leik að tölum sé að ræða.

Tví­menn­ing­arnir tók­ust harka­lega á í útvarps­þætt­inum á Sprengisandi á Bylgj­unni í gær.

Ekkert gullsnið

Birgir sagði samn­ing flug­freyja við Icelandair ekki vera neitt gull­snið að  samn­ingi, enda væri um að ræða tvö einka­fyr­ir­tæki sem stilltu starf­semi sinni upp með mis­mun­andi hætti. Drífa svar­aði því til að ASÍ hefði ekki fengið að sjá samn­in­inn við Play fyrr en hann var sendur rík­is­sátta­semj­ara til stað­fest­ingar. Þar væri um að ræða „lægstu laun sem við höfum séð“, þar sem tak­markað væri greitt í líf­eyris- og trygg­inga­sjóði og það „hefði ekki verið véfengt“.

Skítamix og hurðaskellur

Drífa segir um að ræða skíta­mix hjá Play og feli það það í sér aðför að kjörum allra.

„Þú getur ekki gert kjara­samn­ing við einn eða tvo aðila og byrjað síðan að ráða fólk inn. Það gengur í berg­högg við grund­vall­ar­skil­grein­ingu á stétt­ar­fé­lögum. Það er ekki í hag launa­fólks þegar svona skíta­mix er í gangi og það felur í sér aðför að kjörum allra,“ sagði Drífa.

Birgir sagði í við­tal­inu aug­ljóst að ekki gangi að stærstu og virt­ustu laun­þega­sam­tök lands­ins dragi upp stóra sverðið, haldi því upp að hálsi nýs félags og reyni að neyða það til að fylgja að kjara­samn­ingum Icelandair. Hann sagði full­trúa FFÍ ekk­ert erindi eiga á fundi ASÍ og Play og bent á til stað­fest­ingar að engar kröfur hefðu komið um aðkomu Félags íslenskra fulg­manna og svar­aði Drífa því til að það væri vegna þess að FÍA væri ekki innan ASÍ.

Mikill hiti og framíköll var í báðum aðilum og átti Kristján Krist­jáns­son, þátta­stjórn­andi, í mestu erf­ið­leikum með að hafa hemil á þeim Birgi og Drífu. Þegar sam­tali lauk mátti heyra hurð skella með látum en ekki er vitað hvort þeirra var þar að verki.

Samtalið má hlusta á í heild sinni hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins