„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hallgrímur opnar sig um nauðgunina, ástina og dauðann: „Mér fannst ég vera alger hálfviti“

Hallgrímur opnar sig um nauðgunina, ástina og dauðann: „Mér fannst ég vera alger hálfviti“
Hall­grímur Helgason rit­höf­undur og lista­maður.

Hall­grímur Helgason. Rithöfundur. Skáld. Mynd­list­ar­maður. Eig­in­maður. Faðir. Afi. Hann segir hér frá nýju bókinni, nauðg­un­inni, skot á sig sem hann fékk þegar hann sagði frá, skot sem særðu, ást­inni og volga sæð­inu, börn­unum, barnabörn­unum, en annað er eng­ill, gagn­rýn­ina sem hann fær á sig, bús­á­halda­bylt­ing­unni, hælis­leit­endum og svo talar hann um Tesluna. Og óvissu­ferð­ina.

Á milli binda ríkir myrkur.

„Á milli binda ríkir myrkur.“ Þetta er fyrsta setn­ingin í nýj­ustu skáld­sögu Hall­gríms Helga­sonar sem á að koma út í haust – í bók rit­höf­und­ar­ins, skálds­ins og mynd­list­ar­manns­ins sem hefur skrifað 10 skáld­sögur, fjórar ljóða­bækur og þýtt tvö Shakespe­are verk og svo hefur hann málað svo mörg mál­verk að það veit senni­lega eng­inn – og ekki einu sinni hann sjálfur – hvað þau eru mörg.

„Bókin verður fram­hald af bók­inni „60 kíló af sól­skini“. Það er mikið verk. Núna er það í yfir­lestri. Ég veit ekki hvort ég þurfi að bæta ein­hverju við eða taka eitt­hvað út. En ég hef sum­arið til þess.“

60 kíló. Hvað er nýjasta bókin löng?

„Hún varð aðeins lengri en sú síð­asta. Þessi er um 500 blað­síður.“

Rit­höf­und­ur­inn er spurður hvar hann fái allar þessar hug­myndir.

Hall­grímur Helgason rit­höf­undur og lista­maður.

„Maður er bara með sína eigin rödd og reynir að láta hana blómstra og ég reyni að þróa hana og þroska. Það er erfitt að útskýra þetta. Maður getur eig­in­lega bara skrifað það sem sprettur fram úr brjóst­inu. Maður sýgur í sig raun­veru­leik­ann og lífið og svo síast það allt í ein­hverri kvörn innra með manni, sem spýtir því svo út í ákveðnu formi, eða ekki. Maður veit aldrei hvað kemur, sem er nátt­úr­lega svo­lítið skemmti­legt. En þetta er dáldið eins og að stilla á ein­hverja útvarps­stöð sem eng­inn annar heyrir og skrifa niður það sem maður heyrir þar. Það er stundum hálf­dul­ar­fullt hvaðan þetta kemur.“

Hann er spurður hvort hann telji að það sé ein­hver að ofan sem sendi honum jafn­vel skila­boð. Úr öðrum heimi.

„Ofan eða neðan.“ Hann hlær. „Eða ein­hvers staðar að austan eða vestan. Maður veit það ekki. Já, mér finnst það stundum. Rit­höf­und­ur­inn er yfir­leitt mun klár­ari og gáf­aðri í text­anum heldur en hann sjálfur er í prí­vat­líf­inu. Það kemur eitt­hvað utan­að­kom­andi elem­ent þarna inn.“

Hall­grímur Helgason er spurður hver draumur hans sé varð­andi bók­mennt­irnar.

„Að geta skrifað áfram sem lengst. Maður á mikið eftir. Ég meina sko, að maður á mikið af hug­myndum eftir. Maður veit hins­vegar ekki hvað lífið end­ist. Það er númer eitt að reyna að gera sem mest áður en maður fer.“

Maðurinn sem kom­inn er á sjö­tugs­aldur er far­inn að hugsa svona. Tala svona. Hugsa og tala um dauð­ann í svona hálf­kveðnum vísum. Hann er spurður hvað dauð­inn sé í huga hans.

Þögn.

„Það er bara hurð með merki fyrir ofan og á því stendur EXIT.“

Trúir hann á líf eftir dauð­ann?

„Ég trúi á fram­halds­líf í bókum. Að bæk­urnar lifi. Maður vonar það. Ég hef ekki velt hinu mikið fyrir mér en bíð bara spenntur. Pabbi dó síð­asta haust og ég sat mikið hjá honum síð­ustu dag­ana. Það er reynsla sem á kannski eftir að skila sér út á ein­hvern hátt, en mér fannst alltaf eins og hann væri að upp­lifa dauða­hríðir, sem ríma þá við fæð­ing­ar­hríð­irnar. Á korters fresti var eins og hann sveifl­að­ist yfir landa­mærin og var þar nokkra stund, kom svo til baka og alltaf með ein­hvern sann­leik, magn­þrungnar setn­ingar eins og: “Ég sá að him­in­inn var einn kirkju­garður, allur í krossum.” Höfuð­nið­ur­staða hans var sú að það þyrfti að kenna fólki að deyja. Þetta end­ur­tók hann mart­goft: “Það þarf að kenna fólki að deyja!”“

Nauðgunin

Hall­grímur Helgason vildi út. Hann vildi út í heim. Hann var kom­inn í mynd­list­ar­nám í München rúm­lega tví­tugur.

„Ég tal­aði enga þýsku, náði engu sam­bandi við kenn­ar­ana, kennsl­una eða skól­ann og var utan­garðs og ein­hvern veg­inn lít­ill í mér. Svo fór ég til Ítalíu um jólin og varð í Flórens við­skila við hóp drukk­inna Íslend­inga. Ég ætl­aði bara að redda mér hót­eli en það var alls staðar fullt. Svo hitti ég eitt­hvað par á gangi um borg­ina sem bauð mér að gista hjá sér en þau sögð­ust vera með hót­el­her­bergi. Svo var konan allt í einu horfin og við fórum tveir upp í lyft­unni. Ég var svo grænn. Ég lagð­ist síðan í rúm í hlið­ar­her­bergi á hót­el­her­berg­inu og bauð góða nótt en tíu mín­útum síðar var mað­ur­inn allt í einu kom­inn uppí til mín, allsnak­inn. Svo getur fólk lesið um rest­ina í bók­inni minni „Sjó­veikur í München”. Maðurinn sagð­ist vera með byssu í tösk­unni þegar ég reyndi að flýja.“

Maðurinn var senni­lega á fer­tugs­aldri. Frá fyrrum Júgóslavíu.

Hall­grímur sagði ekki frá. Og hann skamm­að­ist sín. Honum datt ekki í hug eftir á að reyna að hafa upp á mann­inum til að kæra hann. Vissi ekki hver hann var. Hann seg­ist helst ekk­ert hafa viljað vita af þessu og vildi halda áfram með lífið.

„Mér fannst ég vera alger hálf­viti að hafa komið mér í þessar aðstæður. Ég var alger­lega grænn og sak­laus ungur maður frá Íslandi þar sem engin umræða um sam­kyn­hneigð var til yfir höfuð. Ég áfelld­ist sjálfan mig og vildi bara gleyma þessu sem fyrst. Ég reyndi að jarða þetta niðri í ein­hverri kistu lengst niðri í minn­inu. Þetta var bara einum of. Það var ekk­ert svona í umræð­unni á þessum tíma. Ég kom frá sveita­legu og sak­lausu landi og vissi varla hvað sam­kyn­hneigð var og fyrsta sjokkið var auð­vitað að upp­götva það yfir­höfuð að karl­maður skyldi girn­ast annan karl­mann á þennan hátt. Það var bara ekki inni í heims­mynd minni. Bara það var mikið sjokk. Og hvað þá að ég færi að segja frá því.“

Árin liðu. Nætur liðu. Vondir draumar. Martraðir.

Það var svo 30 árum síðar sem Hall­grímur ákvað að segja fólk­inu sínu frá. Og hann skrif­aði um þessa reynslu í fyrr­nefndri bók sem kom út árið 2015. Og hann ræddi við starfs­fólk Stíga­móta nokkrum sinnum sem hann segir að hafi hjálpað mikið. Hann sá eftir að hafa ekki farið þangað mörgum árum áður. Og hann sá eftir að hafa ekki fyrr sagt frá.

„Fyrsti tím­inn hjá Stíga­mótum var mik­il­vægastur. Þar var mér sagt að það væri eðli­legt að mér liði eins og mér leið, að ég væri að upp­lifa nauðg­un­ina upp á nýtt, þegar ég fékk þessi vondu við­brögð við því að koma út með þetta. Þetta var allt mun erf­ið­ara en ég hafði haldið, ég taldi þjóð­fé­lagið vera komið lengra en reyndin var. En eftir á að hyggja var það þess virði. Það frels­aði mig. Þetta er eins og allt í líf­inu – maður þarf að ganga í gegnum þján­ingar til að upp­lifa sann­leik og sælu.

Mér finnst ég vera annar maður eftir að ég sagði frá. Ég skrifa og mála öðru­vísi, finnst mér. Það er betra fyrir aðra að dæma en mér líður þannig. Ég er frjáls­ari. Maður hefur ekk­ert að fela lengur. Svona atburður særði mig nátt­úr­lega djúpt og ég reyndi að hylma yfir eða fela sárið. Það fer nátt­úr­lega ein­hver orka í svo­leiðis.“

Margir þekkja fígúru í mörgum mál­verkum Hall­gríms. Hann heitir Grim og lík­ist honum.

„Ég er hættur að mála hann. Ég held að hann hafi verið tengdur ein­hverju djúpu sál­rænu elem­enti í mér. Ég held að þessi Grim-karakter hafi verið ein­hver tján­ing á þeirri þján­ingu sem fylgdi kyn­ferð­is­of­beld­inu. Nú get ég bara ekki lengur málað Grim eða gert Grim-myndir eftir að ég sagði frá nauðg­un­inni; hann var eins og ein­hver gríma sem ég er nú búinn að fella.“

Hall­grímur seg­ist hafa lært mikið af þess­ari lífs­reynslu. Þessu ofbeldi.

„Það voru ekki allir hrifnir af því að ég skyldi segja frá og það var meira að segja gert grín að mér fyrir það. Eldri karlar skrif­uðu hræði­lega pistla um þetta, einn þeirra var titl­aður “Aumingi vik­unnar” og var eftir virtan geð­lækni. Sá versti var eftir virtan kollega í hópi rit­höf­unda og hlutar úr honum voru síðan fluttir í útvarp­inu. Versta setn­ingin var: „Hvaða kyn­vill­ingur hafði svona slæman smekk?“ Þetta var í menn­ing­ar­þætt­inum Víðsjá, og átti víst að vera þar í bók­mennta­fræði­legu sam­hengi, ein­hvers­konar “fag­ur­fræði­leg” umfjöllun eins og sumir hafa skrifað hér og þar, og reynt með því að sann­færa þol­and­ann um að honum hefði ekk­ert átt að sárna. Slíkt er vel þekkt í fræð­unum og heitir gas­lýs­ing: Þessi van­líðan þín er bara mis­skiln­ingur, þig mis­minnir bara. Hættu nú þessu ves­eni. En talandi um fag­ur­fræði þá vita lista­menn það auð­vitað manna best að fyrir þeim er fag­ur­fræðin bara eins og flug­verk­fræðin er fyrir fugl­unum, eins og góður maður sagði.”

„Ég hélt við værum komin lengra í þessum málum. Me too-bylt­ingin var tveimur árum seinna og svo kom önnur Me too-bylt­ing um dag­inn og þá lenti ég aftur í hasar út af þessu. Manni svíður að fólk geti haft kyn­ferð­is­of­beldi í flimt­ingum og jafn­vel átalið ein­hvern fyrir að stíga fram og segja að sér hafi verið nauðgað. Ég vil bara minna fólk á það enn og aftur. Að ávíta þol­anda kyn­ferð­is­of­beldis fyrir að stíga fram með sögu sína er ákveðið form kyn­ferð­is­of­beldis. Svo vona ég bara að menn, karl­menn, læri eitt­hvað af þessu öllu saman.“

Rit­höf­undar skrifa sumir um lífs­reynslu sína. Hall­grímur hefur stundum skrifað um nauðg­anir í bókum sínum.

„Það gefur mér tæki­færi til að fjalla um þessi mál af því að ég þekki það frá fyrstu hendi. Kannski er það ekki til­viljun að mér er tíð­ritað um nauðg­anir. Sárs­auk­inn er auð­vitað mátt­ugt við­fangs­efni.“

Hann nefnir líka skilnað. Skilnaði.

„Að koma út með kyn­ferð­is­of­beldi er soldið eins og að lenda í skiln­aði. Ann­að­hvort brotnar maður eða styrk­ist af því. Lífið mallar ekki bara áfram eins og það var. Það fer ann­að­hvort niður, eða upp. Og til­finn­ing mín er að ég hafi bara styrkst af þessu. Eða ég vona það alla­vega.“

Ástin

Skiln­aður. Skiln­aðir.

Hall­gímur hefur þrisvar verið í sam­bandi og núver­andi maki hans er Þor­gerður Agla Magn­ús­dóttir.

Hvað er ástin?

Þögn.

„Það er að geta verið maður sjálfur og að hin mann­eskjan geti verið hún sjálf og að maður taki henni eins og hún er og hún taki manni eins og maður er. Mik­il­væg­ast í sam­böndum er síðan traust, hrein­skilni og djúp vin­átta. Svo snýst líka bara um að geta hlegið saman, hafa sama húmor, og geta gert grín að hvort öðru. Það gefur alveg ótrú­lega mikið.“

Hall­grímur er spurður hvað hafi heillað hann við Öglu.

„Fyrst var það nú bara hvað hún var klár og sæt og með þessa ótrú­lega fal­legu, mjúku húð. Svo fann ég fljótt ég að hún er það sem kall­ast alvöru kona. Það er hug­tak sem er erfitt að útskýra, en snýst aðal­lega um traust. Svo er hún kannski líka bara rétta konan fyrir mig, með sína miklu þol­in­mæði og hlustun, og enda­lausu virð­ingu og næmi fyrir hug­myndum, tján­ingu og list. Svo kemur lands­byggðar-elem­entið þarna líka sterkt inn; hún ólst upp á sveitabæ í Önund­ar­firði. Fólk sem elst upp í djúpum firði úti á landi er auð­vitað dýpra en annað fólk!

Hall­grímur Helgason rit­höf­undur og lista­maður.

Hann hlær.

Hall­grímur og ástin hans eiga þriggja ára gamla dóttur. Hún heitir Mál­fríður Jóhanna. Hún er óska­barn.

„Við Agla vorum búin að vera í tækni­frjóvg­un­ar­ferli í sjö ár sem gekk upp og ofan. Tvær af þeim til­raunum báru árangur en svo slokkn­uðu þau líf skömmu eftir að við fengum strik á prikið. Þetta var rosa­legur rús­sí­bani að ganga í gegnum og mjög frústrer­andi auð­vitað. Maður var orð­inn dauð­leiður á því að bruna með volgt sæði eftir Reykja­es­braut­inni upp í Kópavog þar sem Art Medica var til húsa. Þetta var eins og maður væri að keyra upp ein­hver leggöng og vona að þetta myndi heppn­ast í það skiptið. Og svo að afhenda þetta í mót­tök­unni hjá kon­unum og aldrei gekk þetta. Það eru kómískar hliðar á þessu líka. Þetta var erf­ið­ara fyrir Öglu af því að hún átti engin börn. Ég átti þrjú börn fyrir. Þannig að miss­ir­inn var alltaf meiri hennar megin. En ég var líka sár yfir að geta ekki átt barn með henni. Svo tókst það fyrir þremur árum síðan og úr varð hátíð sem hefur staðið yfir síðan yfir. Það er gleði­fjör á hverjum degi. Sú stutta er svo skemmti­leg.“

Hall­grímur eign­að­ist elsta barn sitt, dóttur, þegar hann var 25 ára.

„Það var svona „one night stand“. Síðan flutti mamma hennar til Hafnar í Horna­firði og ég til New York. Það var því ekki mikið sam­band fyrstu árin. Ég var ungur og óþol­in­móður og vildi bara vera að mála og tók þetta kannski ekki nógu alvar­lega. Ég álasa mér fyrir það í dag. Það er ekk­ert hægt að bæta upp þennan tíma sem ég glat­aði með elstu dóttur minni. Hann er bara far­inn og tengslin við hana eru því önnur en við hin börnin. Og ég ákvað að svona mætti ekki ger­ast aftur. Svo á ég tvö börn með Oddnýju Sturlu­dóttur, sem eru 16 og 17 ára, og skildum við þegar þau voru mjög ung. Við vorum með þau viku og viku og þegar maður er í slíku kerfi þá hættir manni til þess að leyfa þeim meira, láta meira eftir þeim og gera allt fyrir þau. Ég held ég hafi ekki verið eins strangur og ella af því að ég var alltaf svo feg­inn þegar þau komu til mín. Þá varð maður svo glaður og vildi leyfa þeim allt. Þannig að upp­eldið varð kannski aðeins öðru­vísi. Í dag er þetta hálf­full­orðið fólk og viku-viku kerfið úr sög­unni.“

Svo kom Mál­fríður í heim­inn.

„Agla var svo rosa­lega ánægð með að hafa eign­ast barn og móð­ur­ástin er svo stór að mér finnst ég ekki eiga roð í hana. Þær eru rosa­lega sterk ein­ing og ég verð dáldið útundan; kannski vegna þess að ég er svo­lítið eldri og þreytt­ari pabbi. Stelpan vill mest vera með mömmu sinni og ég þarf stundum að berj­ast fyrir mínum pabb­arétti til að fá að lesa fyrir hana!“

Er Hall­grímur afbrýði­samur?

„Já. Ég er það. Mér finnst það bara hollt. Það er ekk­ert svo slæm til­finn­ing. Bara gott abbó sko.“

Hann var 58 ára þegar Mál­fríður Jóhanna fædd­ist.

„Það hafði nú bara vakn­andi og hvetj­andi áhrif mann að verða faðir tæp­lega sex­tugur. Maður yng­ist upp og það er eins og lífið byrji aftur. Það er alla­vega ekki eins og því sé að fara að ljúka. Þetta kemur hins vegar aðeins niður á afa­hlut­verk­inu; ég er svo þreyttur í lok dags að ég hef ekki jafn­mikla orku fyrir barna­barnið og ella.“

Hann á eitt barna­barn. Missti það fyrsta.

Dóttir hans, Hall­gerður, fæddi and­vana dóttur þegar hún var full­gengin með.

„Þetta var sama haust og umræðan um bók­ina mína og nauðg­un­ina fór fram þannig að þetta voru frekar dimmir dagar þarna haustið 2015. Barna­barns­miss­ir­inn var eitt af þessum stóru áföllum sem maður óskar engum að lenda í. Hrein martröð.“

Þögn.

„Við gátum tekið gleði okkar aftur ári síðar þegar þau Hall­gerður og Sigurður Arent Jónsson, maður hennar, eign­uð­ust annað barn. Það var mjög slá­andi að sjá hvernig nýtt líf getur bætt miss­inn á öðru.“

Hall­grímur orti ljóð um barna­barnið fyrsta sem lifði ekki. Ljóðabók kom út með þeim ljóðum. Hún heitir „Fiskur af himni“. Eitt ljóðið er svona:

27.09.15

(hluti)

“Þið megið koma núna inn”

segir rauð­birkin kona á hvítum klossum

en skurð­grænni blússu

og við göngum fylktu liði

hönd í hönd eftir gang­inum

Líkfylgd á fæð­ing­ar­deild

Faðirinn bíður okkar á gang­inum

yfir­veg­aður af sorg

með augu sem hafa séð

það sem eng­inn á að sjá

það sem ekki verður sagt

Hann vísar okkur inn til konu sinnar

og dóttur

sem liggur graf­kyrr í kæli­vöggu

eilítið grá­leit á hvítri sam­fellu

heimt úr hafi

volkuð og blettuð

og vara­lituð svört af óvini lífs­ins

fyrir þessa athöfn

en samt sem áður svo eng­il­fríð og eng­is­mjúk

með nefið móður sinnar og munn­inn föður síns

en augun aftur

útaf fyrir sig

sín eigin augu

sem sáu svo margt á ferðum sínum

en liggja nú lukt

í þessu skín­andi skæra ljósi

frá per­unni hér í loft­inu

Og örlítið pirruð á svip­inn

af því hún er ekki alveg ánægð með þetta

Nei

Hún er greini­lega

ekk­ert sér­stak­lega ánægð með þetta

For­eldr­arnir ungu segja hvað hún heitir

og nafnið kemur eins og eld­hnífur í sárið

við lypp­umst aftur niður

rétt náum að grípa um næsta háls

svo við hröpum ekki aftur

niður í blátt fljót­andi plast

Hér ger­ist allt í einu

fæð­ing skírn og útför

En ég leyfi mér að trufla

það athafna­flóð

með orð­inu afsakið

rétti upp hönd

og gríp hér inn í

næ

með öllu mínu afli

með öllu mínu ímynd­un­ar­afli

að varna þessum lyftu­dyrum lífs­ins

að lok­ast

og ég sé

ég sé inn í lyft­una

ég sé hana blása á kerti

ég sé hana skora mark

ég sé hana hlæja á djamm­inu

ég sé hana í flug­vél

ég sé hana rísa úr sæti og fara á klóið í flug­vél

hún er háfætt

og þarf ögn að beygja höf­uðið

þegar hún hverfur inn á snyrt­ing­una

ég sé hana koma út á pall með græn­meti á teini

sem á eftir að grilla

ég heyri hana segja að hún ætli að flytja til Afríku

að hún þurfi að flytja til Afríku

hún er víst fyrsti Íslend­ing­ur­inn sem lærir afa­rísku

sem töluð er í Eþíópíu Eritreu og Djibútí

hún seg­ist finna sig þar

hún

Hún sem fær ekki

hún sem fékk ekki

hún sem

Ekki

Hall­grímur Helgason rit­höf­undur og lista­maður.

Teslan

Rit­höf­undur. Mynd­list­ar­maður. Þekktur. Hall­grímur Helgason hefur verið gagn­rýndur fyrir hitt og þetta svo sem að þiggja lista­manna­laun.

„Ég tek ekk­ert mark á svo­leiðis. Það eru bara bullu­kollar úti í bæ sem gera það af ein­hverri öfund eða halda að það sé engin vinna að vera lista­maður og launin fái maður “fyrir ekk­ert” þegar lista­fólk er nú einmitt það fólk sem leggur alltaf mest á sig og vinnur lengst og mest. Lista­manna­laun eru ekki há laun. Þetta eru um 409.580 krónur á mán­uði og verk­taka­greiðsla að auki. Það er bara eins og hver annar rík­is­starfs­maður fær, samt í lægri kant­inum og maður reynir að skrimta á þessu með öllum ráðum. Mark­að­ur­inn á Íslandi er mjög lít­ill og það er erfitt að sjá fyrir sér og sínum með því að skrifa bók á tveggja til þriggja ára fresti sem maður fær kannski tvær til þrjár millj­ónir fyrir ef hún selst vel. Það er nátt­úr­lega ekki nóg til að lifa af. Þá koma lista­manna­launin inn og það er líka bara mjög erfitt að fá lista­manna­laun. Maður verður að sýna að maður sé virkur og sé að skrifa og það þarf að skila vinnu­skýrslu eftir hvert ár og sýna fram á hvað maður gerði síð­asta árið sem maður var á launum. Þetta eru erf­iðar síur sem maður fer þarna í gegnum, þannig að ég lít alltaf á það sem mik­inn heiður að fá lista­manna­laun.“

Hann við­ur­kennir að hann hafi lúm­skt gaman af því að vera skot­spónn.

„Lista­menn geta bara grætt á umtali, líka þó það sé illt. Það bara fylgir þessu djobbi. En ég verð að segja að mér hefur sárnað að sjá að það sé til fólk þarna úti sem finnst í lagi að gera grín að nauðgun, og það jafn­vel eftir Metoo-bylgju númer tvö. Það stingur mig. Ég er hins vegar ekki eins við­kvæmur því hvað fólk segir um bæk­urnar mínar, hvað ég segi í við­tölum eða hvort ég sé á lista­manna­launum. Mér er alveg sama um það. Það snertir mig ekki mikið.“

Honum er skít­sama en honum er ekki skít­sama um sam­fé­lagið sem hann býr í og seg­ist nýta um hálf­tíma á hverjum degi til að láta skoð­anir sínar í ljós svo sem á sam­fé­lags­miðlum. Hann hefur látið þær í ljós á annan hátt í gegnum tíð­ina og tók til dæmis þátt í bús­á­halda­bylt­ing­unni á sínum tíma.

„Þetta var svo mikið sjokk fyrir alla. Og kannski extra mikið sjokk fyrir mig af því að ég hafði verið lúm­skt hrif­inn af þessum útrás­ar­vík­ingum. Þeir voru reyndar að gera alveg óskilj­an­lega hluti en það var þessi ljómi yfir þeim. Það voru í raun allir sam­mála um að þetta væru allt stór­kost­legir gaurar og að útrásin væri frá­bær. Annað heyrð­ist varla. Það var því svo mikið sjokk þegar allt hrundi. Og rík­is­stjórn­inn vara bara lens, með Davíð del­er­andi á kant­inum. Full­komið kaos. Algjört hrun. Bús­á­halda­bylt­ingin var bara sjálf­sprottin. Það voru engir leið­togar. Þessu var ekk­ert stjórnað. Þetta bara gerð­ist. Og fólk fékk kikk út úr því að standa fyrir utan Alþing­is­húsið og berja á potta og pönnur. Sumir kveiktu í jóla­tré og ég kastaði snjó­bolta í Stjórn­ar­ráðið og barði í bíl­rúð­una hjá Geir H. Haarde. Þetta var heilög reiði. Og kannski gengum við stundun of langt. En þetta var ein­hver and­leg hreinsun. Nauð­syn­leg hreinsun. Og Ísland varð ekki eins á eftir. Það varð mun meiri þátt­taka í lýð­ræð­is­legri umræðu. Allt í einu fóru allir að skrifa greinar og allt í einu var Facebook log­andi af þús­und röddum sem fengu að ljóma þar. Það var ekki lengur bara hlustað á ákveðna skríbenta. Þetta var ótrú­leg bylt­ing sem sýndi sig best í stjórn­ar­skrár­ferl­inu; að við kusum fólk til að semja nýja stjórn­ar­skrá og hún var síðan sam­þykkt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og það er ótrú­legt að stjórn­mála­menn­irnir hafi svo bara ákveðið að hundsa hana. Ég meina, Brexit var sam­þykkt í alveg eins þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og það hvarfl­aði ekki að neinum í Bret­landi að hundsa hana. Hér gilda hins­vegar ein­hver önnur lög­mál en lýð­ræði þegar kemur að mik­il­væg­ustu og við­kvæm­ustu mál­unum.“

Hall­grímur hefur líka vakið athygli á skoðun sinni á mál­efnum hæl­is­leit­enda og jafn­vel því að honum finnst að veita ætti öllum hæli.

„Níger­íu­maður kom í fjöl­skyldu okkar fyrir tveimur árum og kvænt­ist systur Öglu í fyrra og þau eign­uð­ust síðan barn. Hann kom hingað sem náms­maður. Allt sem fylgir honum er auð­vitað mjög fram­andi en fyrir okkur er hann bara gang­andi krafta­verk og úr því kom þetta líka krafta­verk sem barnið er. Og mikil ham­ingja. Við Íslend­ingar eigum að hætta að vera hrædd við krafta­verk. Við erum nefni­lega alltaf að vísa þeim frá okkur. Við höfum það svo gott á Íslandi. Við ættum að taka opnum örmum því fólki sem er að flýja stríð eða fátækt. Það ætti bara að leggja niður þetta mikla útlend­inga­batt­erí sem eyðir rosa­legum pen­ingum og breyta því í stór­kost­lega gesta­mót­töku. Við verðum líka að end­ur­hugsa hug­takið „þjóð“. Hvað er þjóð? Kannski er það hug­tak bara úrelt. Ég vil að fólk spyrji sig spurn­ing­ar­innar: Hvort er mik­il­væg­ara, menn­ing eða manns­líf? Hér er pláss fyrir 20 millj­ónir. Ef það strand­aði olíu­skip úti fyrir Langa­nesi með 5000 flótta­menn um borð, hvort myndum við reyna að bjarga þeim eða reyna að bjarga íslenskri tungu og menn­ingu frá þeim?“

Hall­grímur er spurður hvort honum finn­ist vera ras­ismi á Íslandi.

„Hann er lúmskur. Hann er þarna. Hann er líka í menn­ing­unni. Íslend­ingar hlusta til dæmis bara á hvíta músík. Tólist­ar­menn verða að vera hvítir karl­kyns Amer­ík­anar eða Bretar til að fólk hlusti á tón­list þeirra.“

Hann er spurður hvernig tón­list hann hlusti á.

„Upp­á­halds­tón­listin mín er eighties RnB, sem ég kynnt­ist á New York árunum, og ég hef hana stundum á þegar ég er að mála. En ég held að ég sé algjör­lega einn um þennan tón­list­arsmekk hér á landi! Fyrir utan þetta hlusta ég alltaf meira á klass­ísk. Núna erum við hlustum við á Töfraflaut­una í bílnum þegar ég sæki dóttur mína í leik­skól­ann, það er visst óperu-upp­eldi í gangi og hún er einkar hrifin af Næt­ur­drottn­ing­unni. Í popp­inu læt ég Eurovision duga, þessi þrjú lög sem hún gefur af sér árlega.“

Hall­grímur Helgason rit­höf­undur og lista­maður.

Hann kaus úkra­ínska lagið.

Talandi um bíla.

Svo er það Samherji og Teslan fyrir utan húsið þar sem Hall­grímur býr.

„Mér leið­ast tölur og pen­ingar, kjara­mál og efna­hags­mál, og næ því aldrei að verða almenni­lega heitur í þeim málum. Ég er meira fyrir spill­ing­ar­málin eins og Sam­herj­a­málið til dæmis. Sam­herj­a­málið hefur verið mér hug­leikið síð­ustu daga og ég varð reiður eftir að skæru­liða­deildin var afhjúpuð og þar kom ég meira að segja við sögu. Þeir flettu mér upp í öku­tækja­skrá til að njósna um mig. Auðvitað sveið manni það. Það átti að nota gegn mér að ég ætti Teslu og væri á lista­manna­launum, upp­taktur að því­líku stór­hneyksli. Stað­reyndin er sú að nágranni minn, sem deilir með mér inn­keyrslu, á Teslu. Tesla er svo ann­ars ekk­ert rosa­lega dýr bíll en hann lúkkar vel og er svo­lítið milla­legur að sjá. Mér finnst nú, í ljósi atburða, að Sam­herj­a­menn megi alveg splæsa í eina Teslu handa mér. :)“

Sjálfur seg­ist Hall­grímur eiga Hyundai Santa Fe árgerð 2005. Svo á hann gamlan Galoper-jeppa árgerð 1998 sem er úti í Hrísey.

„Það er í raun­inni heiður að vera kom­inn á hitt­list­ann hjá Samherja. Það sýnir að maður er að gera eitt­hvað rétt og gott.“

Lífið er stundum eins og mál­verk og mál­verk eru stundum eins og lífið sjálft. Speg­il­myndir. Realismi. Súr­r­eal­ismi.

Hall­grímur er búinn að taka af sér grímuna og losa sig við Grim. Hann er far­inn að mála öðru­vísi myndir. Hann stefnir að því að halda sýn­ingu í haust.

„Ég er nú meira fyrir að mála innra lífið en það ytra. Ég nenni ekki lengur að vera nat­úral­ískur og mála hlut­ina eins og þeir líta út á yfir­borð­inu. Óvissan er meira spenn­andi, að fanga ástandið sem ríkir innra með mér og sjá hvað kemur út úr því. Maður sé það ekki fyrr en myndin er búin. Þetta er auð­vitað óvissu­ferð sem getur stundum verið mjög óþægi­leg og frústrer­andi, en eins og banda­ríski málar­inn Philip Guston sagði, þá snýst hin sanna list frekar um frústra­sjón en full­næg­ingu.

Er lífið óvissu­ferð?

„Já, það verður að vera. Annars er ekk­ert fútt í því. Það þarf að vera eitt­hvað óvænt á bak við hól­inn.“

Óvissu­ferð. Öðruvísi myndir. Jú, stundum er lífið eins og skáld­saga. Í mörgum bindum. Næsta bindið kemur út í haust. Sextíu kíló af ein­hverju sem við vitum ekki hvað verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu