„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gerum betur, núna

Gerum betur, núna
Ósk Heiða Sveins­dóttir

Eftir Ósk Heiðu Sveins­dóttur

Eigum við að breyta því hvernig við eigum sam­skipti við við­skipta­vini?

Breyta því hvernig við­skipti fara fram og búa til ný tæki­færi til sóknar.

Hvað myndir þú gera ef þú hlust­aðir á ekk­ert nema háværu rödd­ina í hausnum á þér og til­finn­ing­una sem kemur svo sterkt þegar tæki­færi mynd­ast. Þú veist hvaða rödd þetta er. Þetta er pepp­aða röddin sem öskrar á þig hug­myndir.

Per­sónu­leiki vöru­merkis skiptir öllu í sam­tali við við­skipta­vini. Það skiptir miklu að öll skila­boð sem fyr­ir­tækið sendir frá séu í takt og inni­haldi í grunn­inn sömu rödd en aðlag­aðan tón fyrir hvern flöt og miðil. Það hefur eng­inn eins mik­inn áhuga á þér og þú, þannig að ef þú ert kom­inn með leiða á því sem fyr­ir­tækið þitt hefur fram að færa, þá er við­skipta­vin­ur­inn þinn fyrir löngu hættur að hlusta. Um leið og sagt er: „þetta hefur alltaf verið svona“, þá þarf að ýta á stopp og hugsa hlut­ina upp á nýtt.

Ákvarð­ana­fælni í bland við fast­heldni er ein allra besta leiðin til þess að drepa niður frum­kvæði og ástríðu. Það vill eng­inn við­ur­kenna að vera á þeim stað, en ef þú hefðir frjálsar hendur og byrj­aðir með alveg hreint blað – hvað myndir þú gera?

Ef grunn­ur­inn er sterkur, stefna, mark­mið og per­sónu­leiki vöru­merk­is­ins á hreinu, þá er mitt ráð: próf­aðu og láttu vaða. Mark­hóp­ur­inn þinn hefur engan tíma eða þol­in­mæði fyrir inni­halds­lausri froðu eða stífri sölu­á­herslu. Grunn­ur­inn er alltaf sá sami – gott sam­band við við­skipta­vin­inn og þá eru ekki enda­laus tæki­færi gefin. Sem við­skipta­vinur hefur þú vænt­ingar til þeirra fyr­ir­tækja sem þú velur að eiga við­skipti við og hikar ekki við að leita annað stand­ist þær ekki.

Ekki troða upp á við­skipta­vini þína því sem þú heldur að þeir vilji heyra, skil­greindu virðið sem þú getur veit. Settu þig í spor þeirra, er efnið sem þú ert að birta áhuga­vert og hefur virði fyrir þá sem því er beint að? Ekki? Slepptu því þá og farðu aftur að teikni­borð­inu. Fylgstu með straumum í nýsköpun og staf­rænni þróun, hlust­aðu á mark­að­inn, ekki úreld­ast. Það eru ekki enda­lausir sénsar gefnir, en þú færð tæki­færi á meðan þú ert að bæta þig og ert heið­ar­leg/ur með það. Lítum á alla snertifleti milli þín og þinna við­skipta­vina og rýnum í tæki­færin á bættri og arð­bærri upp­lifun, sterkara sam­bandi.

Ekki bera þig saman við þann skásta í þínum flokki. Hver er heims­meist­ari í grein­inni? Spilum við þá bestu í brans­anum, til að vinna.

Það eru ekki enda­lausir sénsar gefnir. Notaðu tæki­færið núna til þess að hlusta á pepp­uðu rödd­ina, hráu hug­mynd­irnar sem þú veist að eiga eftir að hafa áhrif og keyra árang­ur­inn upp. Núna!

Grein­ar­höf­undur er for­maður FKA Fram­tíðar og for­stöðu­maður þjón­ustu og mark­aða hjá Póstinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu