„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dauðinn stór partur af lífi Brynju Dan: „Sorgin er svo fallegt fyrirbæri“

Dauðinn stór partur af lífi Brynju Dan: „Sorgin er svo fallegt fyrirbæri“

„Ég fann meira fyrir því þegar ég var að alast upp en í dag. Þá voru fáir dökkir í skól­anum og óneit­an­lega var ég meira öðru­vísi en í dag,“ segir áhrifa­vald­ur­inn Brynja Dan Gunn­ars­dóttir, sem var ætt­leidd frá Sri Lanka. Brynja mun skipa annað sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík norður í Alþing­is­kosn­ing­unum í haust. Hún er með BS-gráðu í rekstr­ar­verk­fræði, er þekkt fyrir að vera dugn­að­ar­forkur og að vera með mörg járn í eld­inum og hún seg­ist vinna best undir álagi. Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum en hún missti for­eldra sína á ung­lings­ár­unum. Miss­ir­inn gerði hana sjálf­stæð­ari, sterk­ari og ákveðn­ari en um leið hrædda en auð­mjúka fyrir líf­inu. Brynja er í Helga­við­tali Mannlífs. 

Sri Lanka er eyríki út af suð­aust­ur­strönd Ind­lands­skaga og er án efa svo­lítið ævin­týra­legt í huga margra: Höf­uð­borgin heitir Srí Jajevar­denepúra og opin­beru tungu­málin kall­ast singal­íska og tamíl­ska. Wikipedia segir þetta um Sri Lanka:

„Forn­minjar benda til þess að menn hafi sest að á Srí Lanka á forn­stein­öld fyrir allt að 500.000 árum. Leifar af balangoda­mann­inum (Homo sapi­ens balangodensis) eru frá mið­stein­öld og eru taldar elstu leifar líf­fræði­legra nútíma­manna í Suður-Asíu. Elsta vís­unin til Srí Lanka í rit­uðum heim­ildum er í sagna­kvæð­inu Ramayana frá 5. eða 4. öld f.Kr. Hugs­an­lega voru elstu íbúar Srí Lanka for­feður veda sem nú eru lít­ill hópur frum­byggja á eyj­unni. Á mið­öldum varð Srí Lanka fyrir inn­rásun Chola-veld­is­ins á Indlandi og síðan Kalinga Magha árið 1215 og eyj­unni var skipt milli hinna ýmsu kon­ung­dæma. Portú­galir lögðu strand­héruð eyj­ar­innar undir sig á 17. öld en Hol­lend­ingar náðu þeim brátt af þeim. Í upp­hafi 19. aldar lögðu Bretar eyj­una undir sig. Srí Lanka lýsti yfir sjálf­stæði frá Bretum árið 1948 en fljót­lega settu átök milli sin­hala­mæl­andi meiri­hluta og tamíl­sku­mæl­andi minni­hluta svip sinn á stjórn­mál lands­ins þar til borg­ara­styrj­öld braust loks út árið 1983 milli stjórn­ar­innar og Tamíl­tígra. Árið 2009, eftir mikið mann­fall, tókst stjórn­ar­hernum að sigra Tamíl­tígra.“

Ung móðir á Sri Lanka, Ranjani, ákvað árið 1985 að gefa nýfædda dóttur sína til ætt­leið­ingar. Ung, íslensk hjón urðu for­eldrar hennar. Snjólaug heitin Stef­áns­dóttir og Dan Gunnar heit­inn Hansson. Þau gáfu dóttur sinni nafnið Brynja Dan.

Brynja nokk­urra mán­aða með móður sinni, Snjó­laugu.

„Ég ólst upp í Hafn­ar­firð­inum. Ég var aldrei íþrótta­stelpa en hélst í kór alveg í 10 ár og æfði á píanó. Keppn­is­skap er ekki til í mér þegar kemur að íþróttum en þegar kemur að ein­hverju öðru þá blossar það upp. Ég var frekar rólegt barn og ung­lingur með ein­staka und­an­tekn­ingu að sjálf­sögðu. Mér gekk vel í skóla og átti minn trausta vina­hóp. Ég var alltaf frekar feimin og í grunn­inn er ég mjög prí­vat þó feimnin hafi þroskast af mér.“

„Negrarnir inn að aftan“

Það hafði áhrif að vera ætt­leidd; að vera með dekkri húð en flestir aðrir krakkar á Íslandi „Það er kannski erfitt að útskýra það en maður er alltaf með­vit­aður um að maður sé aðeins öðru­vísi þegar maður kemur á flesta staði og er eina dökka mann­eskjan á svæð­inu. Hins vegar hef ég alltaf litið á það sem kost að skera mig úr fjöld­anum og það hefur oft verið styrkur minn. Ég fagna fjöl­breyti­leik­anum og tek því fagn­andi þegar fólk spyr mig hvaðan ég sé og vill fræð­ast og læra. Mér finnst það alls ekki vera móðg­andi. Fólk hefur spurt mig hvort það megi koma við til dæmis hárið á mér og húð­ina og ég skil það svo vel. Ég hef alveg viljað snerta til dæmis afró­hár því það er eitt­hvað sem ég er ekki með og mér finnst það vera fal­legt; mann langar að snerta til að finna eitt­hvað sem er manni fram­andi og læra. Það finnst mér vera fal­legt.“

Hún rifjar upp nokkur dæmi þar sem hún hefur oriðið fyrir for­dómum – vilj­andi eða óvilj­andi.

„Íþrótta­kenn­ari sýndi mjög óvið­eig­andi fram­komu í skóla­ferða­lagi sem stóð yfir í nokkra daga. Hann tók okkur tvö dökku fyrir og lét okkur gera 100 arm­beygjur. Ég gat það ekki þá og ekki nú en bekkj­ar­fé­lagar mínir voru fljótir að rísa upp á aft­ur­fæt­urna okkur til varnar og þessi kenn­ari var lát­inn fara eftir þetta atvik. Mér var einu sinni sagt að fara inn bak­dyra­megin á skemmti­stað; „neg­arnir inn að aftan“ var kallað yfir röð­ina. Ég svo sem tók það ekki til mín þó við­kom­andi hafi vissu­lega verið að tala við mig en ég er ekki svört og mér fannst það lýsa fáfræði hans meira en eitt­hvað annað. Ein lítil í sundi neitað að fara ofan í því henni fannst að ég væri svo skítug; þetta er bara krútt­legt og börn eru börn og segja bara það sem þeim dettur í hug en það sem við segjum á móti er það sem skiptir máli. Allt eru þetta hlutir sem hafa í stóra sam­heng­inu engin áhrif á mig. Ég ólst upp við það að virði mitt kemur ekki út frá áliti ann­arra og það er eðli­legt að vera hræddur við það sem maður þekkir ekki. Þess vegna er fræðsla það sem skiptir svo miklu máli þegar við tölum við börnin okkar.

Brynja og blóð­móðir hennar árið 2016 þegar þær hitt­ust á Sri Lanka eftir 30 ár.

Ég held að við séum mark­visst að vinna í því að upp­ræta alls konar for­dóma. Það varð bylt­ing í kjöl­far dauða George Floyds og fólk er mun með­vit­aðra í dag en bara fyrir ári. Ég tek eftir því að unga fólkið okkar er mjög vel upp­lýst þegar kemur að ras­isma og er fljótt að kynna sér og til­einka sér nýja hluti og er vilj­ugt til þess að kynna sér sögu ann­arra og þeirra bar­áttu sem hafa staðið yfir svo lengi. Síðasta árið höfum við átt mjög lær­dóms­rík sam­töl um hvað má og hvað má ekki, það er fullt af hlutum sem við gerðum fyrir stuttu en gerum ekki í dag. Við erum öll að læra hvað við getum gert sem lyftir öðrum menn­ing­ar­heimum upp. Við erum ekki lengur að lesa „10 litlir negra­strákar“ og við hættum því fyrir löngu en núna bara síð­asta ösku­dag fór af stað umræða um alls konar bún­inga og það var mik­il­vægt að átta sig á því hvað er í lagi og ekki; að við skiljum að bún­inga­dagur er ekki dagur þar sem við getum leyft okkur að klæða okkur upp eins og við til­heyrum annarri menn­ingu eða trú en höfum svo dags dag­lega ekki rými til þess að leyfa fólki af þeirri menn­ingu eða trú að vera þannig í sam­fé­lag­inu okkar án for­dóma.“

Hvað með son hennar, Mána? Hefur hann orðið fyrir for­dómum vegna dökks lit­ar­hafts?

„Strák­ur­inn minn er frekar sterkur karakter og hefur alltaf verið vina­margur. Það var ekki fyrr en á síð­asta ári sem við urðum vör við for­dóma í fyrsta sinn og það virki­lega reynir á mömmu­hjartað. Hvernig skól­inn tók á því var algjör­lega til fyr­ir­myndar og auð­vitað ber þeim að taka svona málum alvar­lega. Ef það er ekki gert í byrjun þá geta þau auð­veld­lega þró­ast i eitt­hvað miklu stærra og alvar­legra.“

Sorgin

Syst­urnar eru tvær en Brynja á systur sem er tveimur árum yngri. Það var ekki allt eins og það átti að vera. Faðir Brynju glímdi við þung­lyndi og alkó­hól­isma og tók eigið líf þegar hún var 13 ára. Snjólaug fékk síðan heila­æxli og lést þegar Brynja var 18 ára.

„Missir mótar mann alltaf en svo er bara að velja hvernig það mótar mann. Þetta gerði mig sjálf­stæð­ari, sterk­ari og ákveðn­ari en um leið hrædda en auð­mjúka fyrir líf­inu. Þetta tók mig út úr skel­inni minni og ég neydd­ist til þess að taka pláss, hafa hátt og gera mitt besta til þess að nýta það til góðs. Sorgin er svo fal­legt fyr­ir­bæri eins skringi­lega og það hljómar. Þessar hráu til­finn­ingar neyða mann til að horfast í augu við sjálfan sig og velja hvernig maður ætlar að nýta hana sem kraft. Mér finnst vera svo mik­il­vægt að leyfa sér að finna allar til­finn­ing­arnar. Hver og einn syrgir á sinn hátt og engin leið er rétt­ari en önnur. Ég varð rosa­lega reið en svo klárar maður það tíma­bil og þá tekur næsta skref við í átt að aðeins minni sárs­auka og á end­anum lærir maður svo að lifa með sorg­inni. Það er samt þannig að maður er oft svo­lítið að syrgja fram­tíð­ina svo það er ný sorg sem fylgir hverju skrefi. Mamma og pabbi voru ekki hér þegar ég eign­að­ist barn, þau sáu mig ekki útskrif­ast, þau verða ekki til staðar ef ég gifti mig einn dag­inn og hver mun þá leiða mig upp að alt­ar­inu? Svo eru þau ein­fald­lega að missa af barna­börn­unum sínum og því sem maður er stolt­astur af. Í dag er það til dæmis þannig að þó ég sakni þeirra á jól­unum þá sakna ég þess meira að þau fái ekki að njóta stráks­ins míns, hafi misst af ömmu- og afa­hlut­verk­inu og að hann hafi aldrei fengið tæki­færi til að hitta þau.“

Brynja í fangi blóð­móður sinnar á Sri Lanka.

Hvað er dauð­inn í huga Brynju?

„Dauðinn er eitt­hvað sem ég hugsa lík­lega aðeins of oft um. Hann er stór partur af mínu lífi og auð­vitað óum­flýj­an­legur eins og við öll vitum. Og ég er mjög með­vituð um það og reyni að lifa líf­inu svo­lítið þannig að ég sjái ekki eftir neinu. Ég hef haft það fyrir reglu í mörg ár að segja „já“ við sem flestu ef ég get gert það en það hefur opnað svo margar dyr og búið til svo ótelj­andi ævin­týri. Lífið verður svo mun skemmti­legra ef maður reynir að segja „já“ við sem flestu.“

Óttast Brynja dauð­ann?

„Já, auð­vitað, mig grunar að það geri það flestir. En það þýðir víst lítið að staldra lengi við þá hugsun. Vonandi verð ég gömul og grá, ég er reyndar löngu orðin grá,“ segir hún og hlær, „en ef ekki þá er ég með alls konar und­ir­búið. Brennt barn forð­ast eld­inn á kannski við þar en ég er með bréf til stráks­ins míns sem ég skrifa á hverju ári á afmæl­is­dag­inn hans og sting inn í albú­mið hans því ég vil að hann eigi eitt­hvað frá mér hvort sem við lesum það saman eftir mörg ár á hans stærstu dögum í líf­inu eða ekki; von­andi verður það þannig en hvað veit maður og þá á hann þau. Þá eru þessi bréf alla­vega til. Ég gæfi aleig­una fyrri að eiga svona bréf frá for­eldrum mínum.“

Ættleidd

Móðir, blóð­móðir, á Sri Lanka. Brynja hefur alltaf átt mynd af blóð­móður sinni. Myndin hefur alltaf verið það dýr­mætasta sem hún hefur átt fyrir utan fólkið sitt. Á mynd­inni stendur blóð­móðir hennar með hana í fang­inu. Brynja á líka skart­gripi og ýmsa muni frá Sri Lanka. Það var svo vegna sjón­varps­þátt­ar­ins „Leitin að upp­runanum“ sem hún ákvað að hafa sam­band við dag­skrár­gerð­ar­mann­inn og bolt­inn fór að rúlla. Hún vildi fara til Sri Lanka og leita að blóð­móður sinni. Og það tókst. Þess má geta að þegar Brynja var ung­lingur hafði hún séð fyrir sér að leita upp­runa síns með móður sinni, Snjó­laugu, en móðir hennar vildi að hún fyndi ræt­urnar. Frumrit allra skjala tengd ætt­leið­ing­unni voru og eru geymd í banka­hólfi í Lands­bank­anum og þar voru þær vís­bend­ingar sem hún þurfti: Nafn blóð­móður hennar, nafn heim­bæjar hennar og sjúkra­húsið þar sem Brynja fædd­ist.

Mér finnst vera mik­il­vægt að vera með tekjur á mis­mun­andi stöðum og hef alltaf stefnt á að vera ekki háð einni vinnu.

Það var árið 2016 sem Brynja fór ásamt syni sínum, Mána, sem nú er 13 ára, og dag­skrár­gerð­ar­fólk­inu til Sri Lanka. Þau lentu í Colombo og fóru síðan til strand­bæj­ar­ins Bentota. Hitinn var kæf­andi. Ávextir héngu á trjám og margir voru ber­fættir.

Svo rann dag­ur­inn upp þegar Brynja hitti blóð­móður sína sem tók dóttur sína strax í fangið. Hún og aðrir ætt­ingjar þef­uðu af Brynju. Öll voru þau brosmild. Ljúf. Hún hitti til dæmis systur sína, Dilmi, og bróður sinn, Pran. Geð­hrær­ing Brynju var mikil. Þetta var eins og í draumi. Og svo hitti hún líka ömmu sína og frændsystk­ini. Hún fékk líka knús frá henni. Og þeim. Ætt­in­gj­arnir á Sri Lanka hafa það betra en Brynja bjóst við.

„Ég hugs­aði í raun­inni aldrei þannig um blóð­móður mína nema bara hvort hún væri á lífi eða ekki. Á mynd­inni sem ég á af henni sá ég alltaf að við værum líkar og það ein­hvern veg­inn tengdi mig við hana. Þegar við svo hitt­umst þá var það bara eins og móðir að hitta barnið sitt.

Vissu­lega 30 árum seinna en samt var allt svo eðli­legt. Ég var hins vegar allt of stutt úti og hefði eftir á að hyggja átt að taka mér meiri tíma í allt ferlið.“

Brynja seg­ist hafa lent á vegg við heim­kom­una.

„Þetta var bara ofsa­lega krefj­andi á lík­ama og sál; langt og strangt ferða­lag og svo algjör til­finn­inga­rús­sí­bani. Að koma svo heim og eiga heila, nýja fjöl­skyldu en vera svo langt frá þeim var bara erfitt í alla staði. Að byrja á því að sakna þeirra aftur og aftur og hafa verið svona stutt með þeim. Þetta var spennu­fall vegna þess að 30 ára draumur hafði ræst, allir voru á lífi og allir vildu mig. Þetta var bara eins og Disney-ævin­týri en ofsa­lega lær­dóms­ríkt og gef­andi ferli.“

Brynja óskaði eftir því að systir sín fengi að koma til Íslands og fékkst það.

„Hún kom hingað en fékk því miður bara leyfi til þess að vera hérna í fimm daga. Hún ferð­að­ist því í næstum því 30 klukku­stundir fyrir fimm daga á Íslandi. Ég hefði helst viljað hafa hana hér í að minnsta kosti þrjár til fjórar vikur en það er ekki í boði.“

Brynja er í góðu sam­bandi við ætt­ingja sína á Sri Lanka og seg­ist heyra í þeim oft í mán­uði.

Hún er spurð hvað hún hafi lært um sjálfa sig við að finna ætt­ingja sína.

„Hvað það er góð til­finn­inng að líkj­ast ein­hverjum og fá svör sem manni innst inni hefur dreymt um að fá einn dag­inn. Ég fór út algjör­lega varn­ar­laus og vissi ekk­ert hvað biði mín en þau voru bara dásam­leg og tóku mér svo vel. Það er hins vegar bara þannig að það er í eðli okkar að vilja vita hvaðan við komum og þetta var púslið sem mig vant­aði. Því miður hafa ekki allir tök á því að finna þetta púsl og maður lifir vel án þess en það er óneit­an­lega gott að hafa fundið það. En auð­vitað er þetta strembið ferli og ákveðið spennu­fall.“

Brynja er spurð hvað Sri Lanka sé í huga hennar.

„Sri Lanka er hin eyjan mín. Fallegra land hef ég ekki séð. Algjör­lega magn­aður staður. Fólkið er svo gott og lit­irnir og orkan þar svo nær­andi.“

Sjálf er Brynja jú móðir eins og þegar hefur komið fram.

„Móð­ur­ástin er nátt­úr­lega bara eitt­hvað yfir­nátt­úru­legt sem kemur yfir okkur. Að vera mamma er það sem ég lifi fyrir. Ég á einmitt á mynd­band af mér fjög­urra ára þar sem mamma spyr hvað mig langi til að verða þegar ég verð stór og svarið er „mamma“. Það breytir okkur flestum að fá mann­eskju í fangið sem maður ber 100% ábyrgð á og ég held að við upp­lifum öll ákveðið varn­ar­leysi. Allt í einu er þessi litla mann­vera komin og heim­ur­inn stækkar og allt hræðir mann við hann á sama tíma. Þó maður vilji meina að heim­ur­inn sé fal­legur þá er svo margt sem hræðir mann fyrir hönd barn­anna sinna. Ég fékk lít­inn „elli­líf­eyr­is­þega“, segir hún og á við Mána, „og við erum ofboðs­lega náin og gerum enda­laust af skemmti­legum hlutum saman svo þetta er svo­lítið eins og að eiga besta vin sinn. Það er hins vegar engin lygi að það þarf heilt þorp til að ala svona unga upp og við erum ein­stak­lega heppin með þorps­bú­ana okkar. Það sem kom mér kannski mest á óvart er það hvað það er magnað að finna hvað það skiptir mann miklu að líkj­ast ein­hverjum. Loksins var ein­hver sem líkt­ist mér og það er alveg ein­stök upp­lifun og eitt­hvað sem flestir kannski spá ekki mikið í en þegar maður hefur aldrei fundið það þá er það alveg magnað.“

Á fyrirtæki og er í stjórnum

Jú, Brynja Dan er dugn­að­ar­forkur. Hún vann með bæði mennta­skóla- og háskóla­námi.

„Ég vann í Lands­bank­anum með háskóla­námi og fór svo í mark­aðs­störf hér og þar eftir að ég útskrif­aðst frá HR með próf í rekstr­ar­verk­fræði.“

Hún vann við mark­aðs­mál þangað til hún stofn­aði eigið fyr­ir­tæki fyrir tveimur árum síðan.

„Ég er alltaf með frekar mörg járn í eld­inum og vinn best undir álagi. Það hentar mér vel að taka svona skorpur nokkrum sinnum á ári eins og Singles Day er en þá vinnur maður myrkr­anna á milli í nokkrar vikur og svo er það bara búið á sól­ar­hring,“ segir hún en hún er upp­hafs­maður Singles Day hér á landi og hefur haldið það fyrir net­ver­salnir und­an­farin sex ár. „Mér finnst vera mik­il­vægt að vera með tekjur á mis­mun­andi stöðum og hef alltaf stefnt á að vera ekki háð einni vinnu. Síðan mín 111.is heldur utan um til­boðs­daga á net­inu og var upp­haf­lega til þess að lyfta íslenskri net­verslun. Síðustu tvö ár hef ég síðan staðið vakt­ina í Loppunni minni sem hefur verið eitt lær­dóms­rík­asta ferli sem ég hef tekið þátt í.“

Extra­loppan. Hvað er það? Jú, tæp­lega 200 básar fullir af not­uðum vörum sem eru til sölu. Á síðu Extra­lopp­unnar segir meðal ann­ars að þar geti fólk bæði keypt og selt not­aðan vel með far­inn full­orð­ins­fatnað, fylgi­hluti og hús­búnað. Sem selj­andi leigir við­kom­andi bás í eina viku að lág­marki og verð­leggur sjálfur vör­urnar sínar. Rúmlega 11.000 manns hafa líkað við Facebook-síðu Extra­lopp­unnar þar sem fást notuð föt, skór, töskur, sól­gler­augu, heim­il­is­vörur.“

Brynja er komin í „business“. Hvað þýðir það fyrir hana? Að vera kona í við­skipta­líf­inu?

„Mér finnst það vera ofsa­lega gaman og það er gaman að fá að taka þátt í við­skipta­líf­inu; fá að kynn­ast ölllum hliðum, vera sjálf að reka fyr­ir­æki og kynn­ast upp­bygg­ingu fyr­ir­tækis frá grunni, allt frá samn­ingum um leigu­verð og yfir í mannauðs­málin.“

Svo situr hún í stjórnum. Hún hefur setið í stjórn Barna­heilla í fjögur ár og nýlega sett­ist hún í stjórn Íslenskrar ætt­leið­ingar. Henni finnst að bæta mætti ýmis­legt varð­andi mál­efni ætt­leiddra barna.

„Á síð­asta ári komu fimm börn til lands­ins sem er mun minna en þegar ég til dæmis kom en þá hafa þau lík­lega verð 40 eða fleiri. Svo það er tölu­vert minna um það að fólk sé að ætt­leiða og tals­vert færri umsækj­endur hjá félag­inu eins og staðan er í dag. Það hins vegar ger­ist líka að íslensk börn sem eru að leita að fóst­ur­for­eldrum eru pöruð við fólk sem er á bið hjá ÍÆ.

Það er grunn­skylda okkar sem sam­fé­lag að aðstoða börn sem búa við erf­iðar aðstæður í land­inu og við vitum að umsækj­endur ÍÆ hafa stundum farið inn í fóst­ur­kerfið. Löndin sem eru opin í dag eru Kína, Kólumbía, Tékkland og Tógó og við erum að vinna í því að gera samn­inga við Indland aftur og Dóminíska lýð­veldið svo það eru spenn­andi tímar fram undan.

Móð­ur­ástin er nátt­úr­lega bara eitt­hvað yfir­nátt­úru­legt sem kemur yfir okkur. Að vera mamma er það sem ég lifi fyrir.

Það sem ég myndi vilja sjá er ein­hvers konar eft­ir­fylgni. Í dag er ÍÆ að sjá um eft­ir­fylgn­ina en það ætti að vera á ábyrgð rík­is­ins. Nú erum við að láta for­eldra greiða fyrir þjón­ustu eftir ætt­leið­ingu sem er frá­leitt að mínu mati og því þarf að breyta. Það þarf að koma á eins konar ung­barna­eft­ir­liti eða þjón­ustu eftir ætt­leið­ingu; eitt­hvað sem nýbak­aðir for­eldrar fá en ekki þeir sem ætt­leiða. Svo er það þessi eft­ir­fylgni, mörg börn koma hingað með skil­greindar þarfir og rann­sóknir sýna að snemmtæk íhlutun ber miklu meiri árangur heldur en að bíða með vand­ann þar til hann er orð­inn of stór og ill­við­ráð­an­legur. Það væri draumur að þegar barn er ætt­leitt að þá færi eitt­vað ferli í gang sem fylgdi því í leik­skól­ann og grunn­skól­ann sem og fræðsla fyrir þá sem kenna og ann­ast barnið sem er núna greitt af for­eldrum.“

Áhrifavaldur

Margir fylgja Brynju á sam­fé­lags­miðlum og má geta þess að hún er með um 16.400 fylgj­endur á Instagram. Hún er spurð hvaða máli það skipti fyrir hana að vera áber­andi á sam­fé­lags­miðlum. Að vera „áhrifa­valdur“.

„Það var alls ekki planið og æxl­að­ist bara þannig en það eru auð­vitað kostir og gallar við það að hafa svona stóran vett­vang. Það er ansi tíma­frekt og oft mun meiri vinna en fólk almennt gerir sér grein fyrir. Þetta er bara eins og að reka sinn eigin miðil. Maður setur kannski ekki alveg hvað sem er þarna inn þó ég reyni nú að halda í húmor­inn og hafa þetta ekk­ert of form­legt. Ég hef alltaf verið þeirrar skoð­unar að það sé til­gangs­laust að vera með stóran vett­vang og nýta hann ekki til þess að láta gott af sér leiða. Í grunn­inn er það þess vegna það sem ég geri því mér finnst ég geta haft áhrif og kannski vakið fólk til umhugs­unar á alls konar mál­efnum. Mér finnst vera svo mik­il­vægt að ræða hlut­ina og að við venjum okkur við gagn­rýna hugsun.

Það hefur skap­ast nei­kvæð umræða um þetta orð eða starfs­heiti, „áhrifa­valdur“, en í grunn­inn er það samt svo jákvætt að vilja hafa áhrif og í dag á tímum sam­fé­lags­miðla eru svo sem allir áhrifa­valdar. Hver kann­ast ekki við að hafa séð vini eða vanda­menn snæða eitt­hvað gott á Snapchat, Facebook eða ann­ars staðar og langað að prófa sama stað? Flest erum við með þús­und manns bara á Facebook og notum þann stað til þess að deila hlutum. En að starfa við þetta er svo miklu meiri vinna en fólk gerir sér grein fyrir; maður er í raun að skapa efni, taka myndir, mynd­bönd og búa eitt­hvað til. Vanalega væru fleiri sem koma að þessu en þarna er maður bara einn að sjá um allar hliðar. Svo ég vil alls ekki meina að þetta sé auð­veld vinna.“

Í framboð

Brynja vill meira; konan sem seg­ist alltaf vera með mörg járn í eld­inum og vinna best undir álagi. Hún mun skipa annað sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík norður í Alþing­is­kosn­ing­unum í haust. Hún seg­ist aldrei áður hafa verið skráð í flokk; seg­ist hafa alist upp í stórri krata­fjöl­skyldu svo hún eigi ekki langt að sækja löng­un­ina í póli­tík.

Að ég geti lagt eitt­hvað af mörkum til betra sam­fé­lags. Mér finnst það vera til­gangur minn og það sem ég von­ast til þess að ná fram til dæmis með fram­boð­inu. Að ég geti breytt ein­hverju til hins betra.

„Þetta hefur kannski alltaf verið svo­lít­ill draumur. Ég hef verið dug­leg að ræða um alls konar mál­efni og taka umræður sem eru ekki alltaf vin­sælar. Ég hef verið að lauma þessu út í „kosmósið“ af og til og svo kom að því að ein­hver hlust­aði og ég ákvað svo­lítið bara að láta slag standa eftir að Ásmundur Einar boð­aði mig á fund og við sáum að við erum á sömu blað­síðu. Þá var bara um að gera að stökkva í djúpu laug­ina og von­andi fáum við að sam­eina krafta okkar.“

Hvers vegna Framsókn?

„Ég hef tekið eftir því hvað Ásmundur Einar er búinn að gera magn­aða hluti og auð­vitað Lilja líka og í mál­efnum sem ég brenn fyrir. Eftir að hafa svo hitt fólkið í flokknum þá sá ég að við erum eins mis­jöfn og við erum mörg og það er svo heill­andi hvað við erum með mis­mun­andi bak­grunn. Ég fann strax að mig lang­aði til að vera partur af þess­ari heild og leggja mitt af mörkum.“

Brynja er spurð á hvað hún myndi vilja leggja áherslu.

„Ég vil auð­vitað gera betur þegar kemur að börn­unum okkar. Það má alltaf bæta umhverfi þeirra og til dæmis barna sem búa við erf­iðar aðstæður, barna sem verða fyrir missi, eft­ir­fylgni með ætt­leiddum börnum til dæmis og börnum af erlendu bergi brotnu. Ég vil sjá ein­stak­lings­miðað nám í grunn­skólum og að leitað verði leiða svo að allir geti vaxið og dafnað. Mér finnst fátt vera fal­legra en tungu­málið okkar og vil alls ekki glata því og held að við þurfum að halda því vel að börn­unum okkar og láta nýj­ustu tækni eins og snjall­sím­ana vinna með okkur en ekki a móti okkur.“

Eigandi Extra­lopp­una telur að það sé kom­inn tími til stjórn­völd fari í ein­hverjar aðgerðir fyrir lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki.

„Áhersla stjórn­valda und­an­farin ár og þá sér­stak­lega nú í heims­far­aldr­inum Covid-19 hefur verið fyrst og fremst á stærri fyr­ir­tækin. Að mínu mati þurfum við að beina kröftum okkar í miklu meira mæli til lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja. Þessi fyr­ir­tæki eru und­ir­staða íslensks atvinnu­lífs. Um það bil 70% fyr­ir­tækja í land­inu heyra þarna undir og því er nauð­syn­legt að hlúa enn frekar að þessu hópi fyr­ir­tækja en verið hefur. Þessi stærð af fyr­ir­tækjum féll ein­hvern veg­inn ekki undir neinar aðgerðir stjórn­valda því miður og róð­ur­inn er oft mjög þungur og sér­stak­lega núna síð­asta árið. Það er nú samt þannig að þetta eru mik­il­væg störf og stór partur af því að halda atvinnu­líf­inu gang­andi. Landslag rekstr­ar­að­ila hjá litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum er oft svo­lítið snúið og flókið. Kerfið þarf að vera ein­falt og skil­virkt og aðstoða okkur en ekki öfugt.“

Brynja er spurð um draum varð­andi stjórn­málin. Hvað með ráð­herra­stól ef allt gengur að óskum? Og ef svo er – hvaða ráð­herra­stól?

„Ég verð að segja að félags- og barna­mála­ráð­herra heillar mikið þegar maður sér hvað það er hægt að gera mikið og hafa mikil áhrif eins og Ásmundur Einar hefur sýnt og sannað. Ég á eftir að læra mikið af honum.“

Konur og karlar. Konur í stjórn­málum. Er alltaf tekið jafn­mikið mark á þeim og körlum?

„Já, ég held að það hafi breyst mikið síð­ustu ár og bara síð­asta árið ef út í það er farið. Við erum komin með svo flottar, sterkar konur í stjórn­málin, frá­bærar fyr­ir­myndir fyrir okkur allar og okkur öll. Ég held að það heyri sög­unni til að það sé eitt­hvað minna mark­tækt það sem kona segir. Auðvitað er það þannig að það eru ekki allir allra en að það sé háð kyni er frekar und­an­tekn­ingin en hitt í dag. Það hefur aðeins borið á ald­urs­for­dómum í póli­tík­inni en aldur mann­eskju segir svo lítið til um hæfni hennar eða reynslu. Það er bara virki­lega gaman að sjá hvað það eru margar konur komnar í póli­tík og ungar konur. Varðandi klæða­burð þá held ég að það sé nú kannski aðeins að breyt­ast og fólk sé með­vitað um að vera snyrti­legt til fara en um leið að vera það sjálft; fötin okkar og stíll segja svo margt um okkur og er bara ein tján­ing­ar­leið. Ég er mjög lítil hæla­mann­eskja og fátt sem getur breytt því og ef við horfum á Kamala Harris þá er hún oft­ast í Converse-striga­skóm við sín föt.“

Brynja Dan Gunn­ars­dóttir vill gera þjóð sinni gagn.

Hún er spurð hvað Ísland sé í huga hennar.

Ég vil auð­vitað gera betur þegar kemur að börn­unum okkar. Það má alltaf bæta umhverfi þeirra og til dæmis barna sem búa við erf­iðar aðstæður, barna sem verða fyrir missi, eft­ir­fylgni með ætt­leiddum börnum til dæmis og börnum af erlendu bergi brotnu.

„Ísland er land öryggis og sjálf­stæðis . Land jafn­réttis og bar­áttu og á að vera það sem við erum að sjá svo skýrt núna. Við erum að berj­ast fyrir því að gera betur þegar kemur að ofbeld­is­málum. Ísland er land sterkra kvenna og kvení­mynda sem ryðja braut­ina fyrir kom­andi kyn­slóðir. Ísland er land feg­urðar hvort sem það er nátt­úran okkar eða fólkið okkar. Við stöndum saman þegar á reynir, erum ekki alltaf sam­mála en tök­umst á og sætt­umst.“

Hver er draumur Brynju?

„Svona fyrir utan að allir lifi lengi og séu heilsu­hraustir í kringum mig þá er það að reynsla mín nýt­ist öðrum. Að ég geti lagt eitt­hvað af mörkum til betra sam­fé­lags. Mér finnst það vera til­gangur minn og það sem ég von­ast til þess að ná fram til dæmis með fram­boð­inu. Að ég geti breytt ein­hverju til hins betra. Það er eitt­hvað sem ég hugsa út í dag­lega; hvað má betur fara og hvernig hægt sé fram­kvæma það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu