„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svandís fær Drífu til að móta þjónustu við þolendur heimilisofbeldis

Svandís fær Drífu til að móta þjónustu við þolendur heimilisofbeldis
Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna. .

Svandís Svavars­dótt­ir heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur ákveðið að láta móta og inn­leiða sam­ræmt verk­lag fyr­ir heil­brigðis­stofn­an­ir vegna þjón­ustu við þolend­ur heim­il­isof­beld­is og hefur Drífa Jón­as­dóttir, afbrota­fræð­ingur verið ráðin til verks­ins.

Þetta kemur fram á vef heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins en skýrsla Finn­borgar Salome Stein­þórs­dóttur, nýdoktor í kynja­fræði, Heilsa og heil­brigð­is­þjón­usta: kynja- og jafn­rétt­is­sjón­ar­mið verður höfð til hlið­sjónar við mótun sam­ræms verk­lags. Skýrsl­una vann Finnborg fyrir heil­brigð­is­ráðu­neytið og fela nið­ur­stöður skýrsl­unnar í sér mat á því hvernig heil­brigð­is­kerfið mæti ólíkum þörfum kynj­anna ásamt til­lögum að úrbótum.

Barnshafandi þolendur 16% líklegri til að missa fóstur

Í skýrsl­unni kemur meðal ann­ars fram að barns­haf­andi konur sem verða fyrir ofbeldi í nánum sam­böndum eru 16% lík­legri en aðrar til að missa fóstur og 41% lík­legri til að eiga barn fyrir tím­ann. Vart kemur nokkrum á óvart að ofbeldi í nánum sam­böndum geti haft alvar­leg áhrif á and­lega heilsu þolenda.

Í skýrsl­unni kemur þá einnig fram að heim­il­is­of­beldi hafi áhrif á heilsu og líðan barna sem alast upp við slíkar aðstæður en þau börn séu í auk­inni hættu á að þróa með sér rask­anir auk þess að búa við skert­ari lífs­gæði en önnur börn.

Drífa mótar og innleiðir samræmt verklag fyrir heilbrigðisstofnanir

Drífa vinnur nú að dokt­ors­verk­efni við lækna­deild Háskóla Íslands þar sem hún leit­ast við að meta umfang, eðli og kostnað sam­fé­lags­ins af völdum heim­il­is­of­beldis. Drífa er jafn­framt verk­efna­stjóri hjá Kvenna­at­hvarf­inu og sér­fræð­ingur hjá Hagstofu Íslands þar sem hún vinnur m.a. að umfangs­mik­illi rann­sókn á kyn­bundnu ofbeldi á Íslandi.

Verkefni Drífu, sem segir hér að ofan, verður að móta og inn­leiða sam­ræmt verk­lag fyrir heil­brigð­is­stofn­anir vegna þjón­ustu við þolendur heim­il­is­of­beldis og muni sam­ráð við heil­brigð­is­stofn­anir, barna­vernd­ar­yf­ir­völd og lög­reglu haft að leið­ar­ljósi við stefnu­mótun og skil­grein­ingu verk­lags.

Leggja þarf mat á árangur verkferla og úrræða við móttöku þolenda

„Ákvörðun heil­brigð­is­ráð­herra um að ráð­ast í gerð sam­ræmds verk­lags hjá heil­brigðis­stofn­un­um vegna þjón­ustu við þolend­ur heim­il­isof­beld­is er í sam­ræmi við ábend­ing­ar til úr­bóta í skýrslu Finn­borg­ar [Salóme Stein­þórs­dóttur, nýdokt­ors í kynja­fræði]. Þar seg­ir m.a. að leggja þurfi mat á ár­ang­ur verk­ferla og úrræða við mót­töku þolenda of­beld­is í nán­um sam­bönd­um, skoða hvernig miðlun upp­lýs­inga er háttað milli þjón­ustu­kerfa og mis­mun­andi úrræða, auk þess sem byggja þurfi á þekk­ingu um valda­ó­jafn­vægi kynj­anna og öðrum þátt­um sem hafa áhrif á fé­lags­lega stöðu fólks og aðstæður,“ segir jafn­framt á vef ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins