„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ertu hugsanir þínar?

Ertu hugsanir þínar?
Ásta Guðrún Guð­brands­dóttir

Eftir Ástu Guðrúnu Guð­brands­dóttur

Oft heyrir maður „þú ert það sem þú borðar“ en ertu þá ekki einnig sem þú hugsar?

Hefur þú spáð í því hver þú ert? Hvernig hefur þú gert það og hvernig litar það lífið þitt? Lifir þú eftir þínum hugs­unum eða hugs­unum ann­arra, lætur þú hugs­anir þínar eða ann­arra stjórna þínu lífi eða hefur þú stjórn á þeim? Þegar upp koma hugs­anir í koll­inn sem þú vilt ekki hafa eða vita af hvað gerir þú við þær? Við skulum skoða þetta aðeins nánar og sjá hvort við getum ekki haft meiri stjórn á þeim en við höldum.

Kanntu vel á þig og þínar hugs­anir?

Hvernig er hugs­ana­gangur þinn, eru hugs­anir þínar nei­kvæðar, jákvæðar eða bland af hvoru tveggja? Eitt vitum við að þegar þú ert með nei­kvæðar hugs­anir eru litlar líkur á fram­förum í líf­inu. Maður kemst ekk­ert áfram heldur spólar í sömu hjól­för­unum. Til að ná árangri þarf jákvætt hug­ar­far að fylgja alla leið, þannig komumst við upp úr hjól­förum og förum að láta okkur líða vel,

þannig fram­kvæmum við hluti í jákvæðu flæði. Það sem við sendum frá okkur hvort sem það er í orði eða orku kemur alltaf til­baka til okkar en þó vitum við aldrei í hvaða formi eða hvenær eitt­hvað birt­ist í okkar lífi. Að breyta til dæmis nei­kvæðri umræðu getur verið mikil áskorun (á vinnu­stað, sauma­klúbb, fjöl­skyldu­boði eða hvar sem er) yfir í jákvæða, það getur verið krefj­andi en jafn­framt góð æfing til að koma af stað jákvæðu hug­ar­fari hjá sjálfum sér og í kringum sig.

Segjum að ef þú byrjar mark­visst að huga að jákvæðu hug­ar­fari og tekur af skarið og allir í kringum þig taka vel í það og verða sam­mála þér, þá byrjar þú að smita út frá þér þessu jákvæða hug­ar­far og orku. Og hvað haldið þið að komi í kjöl­farið? Ef þú ert með lífs­gildin þín á hreinu og jákvæða hugsun í far­ar­nesti þá eru þér allir vegir færir og allar dyr standa þér opnar.

Gott að muna þegar nei­kvæðar hugs­anir læð­ast inn:

  • Segðu: Nei, góðan dag­inn hvað ert þú að gera hér, ég bauð þér ekki hingað inn. Prufaðu svo að snúa yfir í jákvæða – þetta er hægt!
  • Ef þú breytir þinni hugsun mun það breyta þínum heimi.
  • Hugsanir hafa orku – hafðu jákvæða orku.
  • Þján­ingar okkar stafa oft af hugsun.
  • Þú þarft ekki að læra hvernig á að stjórna hugs­unum þínum heldur þarftu bara að láta þær hætta að stjórna þér.
  • Kenndu hug­anum þínum ann­ars mun hann kenna þér.
  • Hugsanir verða að hlutum, hvernig hluti vilt þú?
  • Ham­ingjan í þínu lífi ræðst af gæði þinna hugs­ana
  • Talaðu við sjálfan þig eins og þú myndir gera við ein­hvern sem þú elskaðir.

Þegar þú nærð góðri stjórn á þínum hugs­unum verður lífið allt miklu ein­fald­ara og skemmti­legra. Þú getur þannig látið gott af þér leiða.

Vertu smit­beri á jákvætt hug­ar­far!

Grein­ar­höf­undur er PCC Mark­þjálfi og félags­kona í FKA

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pistill

Bakdyramegin á bannaðar myndir
Reynir Traustason
Skoðun

Reynir Traustason

Bak­dyra­megin á bann­aðar myndir

Ein helsta skemmtun okkar púkanna á Flateyri var að fara í bíó í Sam­komu­hús­inu. Tvisvar í viku voru sýn­ingar á blóma­tíma bíó­ferð­anna. Á sunnu­dögum voru barna­sýn­ingar og á fimmtu­dags­kvöldum voru myndir sem á stundum voru harð­bann­aðar yngri en 16 ára. Ég hef lík­lega verið orð­inn 11 ára þegar þörf okkar krakk­anna í þorp­inu til að kom­ast á bann­aðar myndir varð...
Íslendingar kunna ekki væntingastjórnun
Skoðun

Brynjar Birgisson

Íslend­ingar kunna ekki vænt­inga­stjórnun

Ég skal fús­lega við­ur­kenna að ég á til að synda á móti straumnum þegar kemur að skoð­unum á knatt­spyrnu en ég ein­fald­lega næ ekki utan um þær hug­leið­ingar að íþrótta­blaða­menn og aðdá­endur íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu telji árangur Åge Hareide með lands­liðið ekki nógu góðan. Í raun er talað um það innan knatt­spyrnu­heims­ins að öruggt sé að Norð­mann­inum verði sagt...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu