„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Orð eru til alls fyrst

Orð eru til alls fyrst
Kristín Snorra­dóttir

Eftir Kristínu Snorra­dóttur

Taktu eftir því hvernig þú talar við eða um þig…

Ertu að segja þér að þú sért glat­aður/glötuð eða getir ekki, ljótur/ljót, von­laus eða eitt­hvað í þá ver­una? Ef það er vani þinn þá ertu að brjóta niður eigið sjálf ?

Það sem meira er að þú ert að draga úr líkum á að þú getir og þar með að brjóta sjálfs­traust þitt meira og meira. Brotið sjálfs­traust getur leitt til mik­illar van­líð­unar og jafn­vel komið af stað þung­lyndi og kvíða.

Það er svo magnað að við heyrum allt sem við segjum við okkur sjálf og öll skyn­færin taka við því!

Heyrnin nemur það og flytur boðin til und­ir­með­vit­und­ar­innar sem tekur þessum orðum sem heilögum sann­leika þar sem þau koma frá sjálfum ein­stak­lingnum!

Sjálfið trúir því að þú sért glat­aður/glötuð, getir ekki eða sért ljótur/ljót, von­laus eða eitt­hvað enn verra!

Börn læra það sem fyrir þeim er haft!

Ef þú ert for­eldri og barnið þitt heyrir þig tala niður til sjálfs þíns er það eitt­hvað sem barnið lærir og lítur á sem eðli­legan hlut og fer að tala sjálft sig niður.

Brotin sjálfs­mynd eykur lík­urnar á því að barn á ung­lings­árum leið­ist út í áhættu­hegðun á borð við vímu­efna­neyslu.

Öflug sjálfs­mynd er und­ir­staða okkar allra að lífs­gæðum.

Það sama ger­ist þegar þú talar upp­byggi­lega við þig.

Segir þér að þú sért frá­bær, hug­rakkur/hug­rökk, fal­legur/fal­leg og til­búin til að sigr­ast á þeim áskor­unum sem þú mætir.
Heyrnin nemur það og flytur boðin til und­ir­með­vit­und­ar­innar sem tekur þessum orðum sem heilögum sann­leika þar sem þau koma frá sjálfum ein­stak­lingnum!
Taktu eftir þessu og próf­aðu að tala bara fal­lega og jákvætt til sjálfs þíns og sjáðu hvað ger­ist.

Það besta er að ef þú ert for­eldri þá lærir barn þitt að meta eigið virði sem leiðir til öfl­ugrar sjálfs­myndar. Rann­sóknir hafa sýnt fram á að öflug sjálfs­mynd ung­menna er lyk­il­at­riði þegar kemur að því að takast á við hóp­þrýst­ing ung­lings­ár­anna og því er öflug sjálfs­mynd eins besta for­vörn sem til er fyrir áhættu­hegðun og vímu­efna­neyslu.

Sjálfs­mynd er að þroskast frá vöggu til grafar, erfðir og umhverfi hafa áhrif á hana. Það má alltaf vinna við að styrkja sjálfs­mynd og til þess eru margar leiðir en eitt gott ráð er að vera með­vit­aður um hvernig þú talar til þín og grípa það þegar þú ferð að mis­þyrma þér með orðum, staldra við og íhuga myndi ég segja þetta við eitt­hvern annan?

Ef ekki þá skaltu biðja þig afsök­unar og forð­ast að sýna þér þessa fram­komu aftur.

Höfundur er Acc vott­aður mark­þjálfi og félags­kona í FKA

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pistill

Bakdyramegin á bannaðar myndir
Reynir Traustason
Skoðun

Reynir Traustason

Bak­dyra­megin á bann­aðar myndir

Ein helsta skemmtun okkar púkanna á Flateyri var að fara í bíó í Sam­komu­hús­inu. Tvisvar í viku voru sýn­ingar á blóma­tíma bíó­ferð­anna. Á sunnu­dögum voru barna­sýn­ingar og á fimmtu­dags­kvöldum voru myndir sem á stundum voru harð­bann­aðar yngri en 16 ára. Ég hef lík­lega verið orð­inn 11 ára þegar þörf okkar krakk­anna í þorp­inu til að kom­ast á bann­aðar myndir varð...
Íslendingar kunna ekki væntingastjórnun
Skoðun

Brynjar Birgisson

Íslend­ingar kunna ekki vænt­inga­stjórnun

Ég skal fús­lega við­ur­kenna að ég á til að synda á móti straumnum þegar kemur að skoð­unum á knatt­spyrnu en ég ein­fald­lega næ ekki utan um þær hug­leið­ingar að íþrótta­blaða­menn og aðdá­endur íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu telji árangur Åge Hareide með lands­liðið ekki nógu góðan. Í raun er talað um það innan knatt­spyrnu­heims­ins að öruggt sé að Norð­mann­inum verði sagt...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu