„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Aðför að heilsu kvenna: „Hvaða endalausa væl er þetta um leghálsskimanir“

Aðför að heilsu kvenna: „Hvaða endalausa væl er þetta um leghálsskimanir“

„Nú verðum við að leggja til hliðar póli­tík og aðra hags­muni, þetta mál er stærra en allt það og ég hrein­lega skil ekki að þetta hafi ekki ratað inní ykkar þætti þar sem þetta snertir okkur öll,“ segir Þórlaug Alda Gunn­ars­dóttir, í opnu bréfi þar sem hún skorar meðal ann­ars á rík­is­fjöl­mið­il­inn RÚV að fjalla nánar um óheyri­legan bið­tíma eftir svörum úr sýna­töku.

Bréfið birtir Þórlaug Alda í Facebook-hópnum Aðför að heilsu kvenna og skorar hún á aðra með­limi hóps­ins að þrýsta einnig á opin­bera umfjöllun í þeim til­gangi að krefj­ast umbóta. „Ég veit vel að ég er alveg örugg­lega ekki sú eina sem hefur bent ykkur á þetta mál og verð ekki sú síð­asta,“ segir Þórlaug Alda jafn­framt. „Og að fjalla ekki um mál sem snýr að líf og heilsu allra kvenna þessa lands sem hafa fætt í þennan heim hvern ein­asta skatt­borg­ara þessa lands, er væg­ast sagt lélegt.“

Of óspennandi fyrir umfjöllun?

Þórlaug Alda skefur ekki af hlut­unum. „Þú sem lest þennan póst og hugsar: Hvaða væl er þetta enda­laust um þetta mál það selur ekki nógu vel eða það er eng­inn að tala um þetta. Þú þekkir alveg örugg­lega ein­hverja konu sem er með tárin í aug­unum heima hjá sér því hun fær engin svör um hvort hún sé haldin lífs­hættu­legum sjúk­dómi eða ekki eða hún fær mis­vísandi svör eða hún hefur beðið í margar vikur, jafn­vel mán­uði sem síðan skila því að sýni sé ófull­nægj­andi“.

Spyrja forviða hvað orðin nánari leit feli í sér

Innlegg Þór­laugar Öldu hefur vakið sterkar und­ir­tektir í hópnum og segir þannig annar með­limur: „Ég væri líka til í að fá svör við því af hverju við þurfum bara að koma á 5 ára fresti hér eftir í skimun.“ Áhyggju­fullur með­limur spyr þá einnig hvernig „sú leit sé nán­ari“ og vísar þar til svara heilsu­gæslu um nán­ari leit en áður. Má einnig lesa vanga­veltur um hvað ljós­mæður eigi við með að nú fram­kvæmi heilsu­gæslu­stöðvar nán­ari skimun: „En þetta sagði ljós­móðir mér á minni heilsu­gæslu­stöð í óspurðum fréttum.“

Furðar sig á þöggunartilburðum og vill efla umræðuna til muna

Þórlaug Alda segir í við­tali við blaða­mann MANNLÍF segir völ­und­ar­ganga krabba­meins­skim­ana til hábor­innar skammar. Vísar hún einnig í óheyri­lega langan bið­tíma og í opnu bréfi til frétta­skýrenda RÚV leggur hún til gagn­gera rann­sókn­ar­um­fjöllun með orð­unum: „Þú sem lest þennan póst og hugsar: Hvaða væl er þetta enda­laust um þetta mál.“

Þórlaug vildi í við­tali við blaða­mann ekki geta þess hvort eða hvenær hún vænti svara en MANNLÍF mun fylgja máli grannt eftir næstu daga og kanna hversu gott aðgengi íslenskra kvenna er að leg­hálskrabba­meins­skimunum um þessar mundir. Hér má sjá opið bréf Þór­laugar Öldu eins og það birt­ist í Facebook hópnum Aðför að heilsu kvenna í dag:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins