„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hallgrímur Helgason: Samherjamenn ættu að leggja í langa afsökunarferð

Hallgrímur Helgason: Samherjamenn ættu að leggja í langa afsökunarferð
Hall­grímur Helgason

Samherji hefur ekki beðið rit­höf­und­inn Hallgrím Helgason form­legrar afsök­unar á fram­ferði skæru­leiða­deildar útgerð­ar­ris­ans og segir Hall­grímur aug­ljóst að yfir­lýs­ing á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins í gær hafi átt að vera eins konar hlað­borð.

„Nei, ég hef ekki fengið neina afsök­un­ar­beiðni enda hefur þetta átt að vera svona eitt yfir alla. Þetta hefur átt að vera hlað­borð. Mér finnst að áður en Samherji biður okkur rit­höf­unda, frétta­menn, fjöl­miðla og almenn­ing afsök­unar hér heima þá ættu þeir fyrst að fara til Namibíu þar sem hálf rík­is­stjórnin hefur setið í gæslu­varð­haldi þeirra vegna og þjóðin farið út á götur til að mót­mæla.“

Namib­íu­menn eiga um sárt að binda.

Til Kýpur, Noregs og Færeyja

„Þeir ættu því næst að elta slóð sína til Kýpur og biðja fólkið þar afsök­unar á því að hafa mis­notað tóma skúffu í mið­borg­inni. Svo ættu þeir að fara til Noregs og biðja fólk afsök­unar þar fyrir að hafa mis­notað þjóð­ar­bank­ann þeirra og fara svo til Færeyja og biðj­ast afsök­unar á því að hafa ekki borgað sína skatta þar og fyrir að hafa verið að blekkja þar­lend yfir­völd.“

Afsökunarbeiðni í Karabíahafið

„Síðan ættu þeir að þræða sig eftir eigin völ­und­ar­húsi alla leið í Karí­ba­hafið og í skatta­skjólin sín þar og biðj­ast afsök­unar á því að hafa falið kvóta­gróð­ann sinn á þeim sak­lausu eyjum,“ segir Hall­grímur jafn­framt og heldur áfram. „Svo ættu þeir að fljúga beint norður úr Karí­ba­haf­inu og fara norður í Eyja­fjörð og biðja starfs­fólkið sitt í frysti­hús­inu á Dalvík afsök­unar á því að hafa kennt þeim um þetta allt saman. Þá fyrst geta þeir komið suður yfir heiðar og byrjað að biðj­ast afsök­unar hér í höf­uð­borg­inni. Þá skulum við taka þeim fagn­andi,“segir rit­höf­und­ur­inn og lista­mað­ur­inn Hall­grímur Helgason.

Ráðherrann frá ríkisstjórnarborðinu

„Að lokum legg ég til að Samherji dragi ráð­herra sinn frá rík­is­stjórn­ar­borð­inu,“ klykkir Hall­grímur út með, en segir aðspurður að óþarft sé að vísa til nafns ráð­herra. „Það segir sig sjálft. Ég þarf ekki að nefna það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins