„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Röddin vöðvi sálarinnar

Röddin vöðvi sálarinnar
Þórey Sig­þórs­dóttir Mynd / Saga Sig

Eftir Þóreyju Sig­þórs­dóttur

Í síð­ustu viku flutti ég  fyr­ir­lestur „Röddin – Þarfasti þjónn­inn?” röddin sem atvinnu­tæki. Síðasta árið hafa mínir fyr­ir­lestrar verið á net­inu, út af svolitlu, þess vegna var það ein­stak­lega ánægju­legt að hitta áheyr­endur í eigin per­sónu.

Þessi fyr­ir­lestur er í sér­stöku upp­á­haldi hjá mér þar sem ein mín helsta ástríða er að opna augu fólks fyrir því hversu mikið töfra­tæki röddin getur verið og  þjónað þér, hvort sem er í einka­lífi eða starfi. Ekki má gleyma því að röddin er eitt öfl­ug­asta heil­un­ar­tæki sem við höfum til að nýta okkur, alltaf.

Fyr­ir­lest­ur­inn fór fram í ynd­is­legu umhverfi, á heilsu­stofnun þar sem áherslan er á heild­ræna heilsu­styrk­ingu, bæði and­lega og lík­am­lega. Áheyr­endur mínir var starfs­fólkið sem vinnur þar sitt góða starf, ýmist með við­skipta­vini sína í með­ferð sem kallar á náin sam­skipti eða það heldur fræðslu­fyr­ir­lestra um sitt sér­fag. Allt fært fag­fólk á sínu sviði.

Þegar ég spurði hversu margir við­staddir hefðu atvinnu af rödd­inni sinni réttu allir upp hönd­ina. Þegar ég svo spurði hversu margir þjálf­uðu rödd­ina reglu­lega, var ein hendi á lofti.

Þetta er normið. Fólk er almennt mjög ómeð­vitað um nauð­syn þess að þjálfa rödd­ina og byggja hana upp þótt hún sé þeirra helsta atvinnu­tæki. Þá er ónefnt hvernig radd­þjálfun getur bætt sam­skipta­færni okkar.

Nú veistu af hverju ég er á „mis­sjón” að breiða út boð­skap­inn! Þarna er þekk­ing­argap!

Ég heyrði nýverið við­tal við einn helsta sér­fræð­ing okkar á þessu sviði Dr. Valdísi Ingi­björgu Jóns­dóttur, sér­fræð­ings í rödd. Hún var að tala um nákvæm­lega þetta. Fólk sem leigir út rödd­ina sína, hefur atvinnu af henni, þjálfar ekki rödd­ina sína. Það er ekki af því að þeir þurfi ekki á því að halda eða glími ekki við nein vanda­mál. Fólk fer bara ekki að hugsa um rödd­ina sína fyrr en hún bilar og þá er stundum of seint í rass­inn gripið. Jafnvel hefði skað­inn ekki orðið ef radd­þjálfun og fræðsla um hana hefði átt sér stað.

Eins og Valdís segir, fólk kemur of seint í radd­þjálfun. Flestir setja markið ekki hærra en geta „bara talað” þangað til þeir geta það ekki, þeir hafa misst rödd­ina og þá leita þeir hjálpar.

En röddin er eins og hver annar vöðvi, það þarf að þjálfa hana ef þú vilt að hún vinni fyrir þig.

Þú myndir aldrei fara af stað og hlaupa mara­þon án þess að fræð­ast, und­ir­búa þig og þjálfa! Eða hvað? Myndir þú gera það?

Grein­ar­höf­undur er fag­stjóri í leik­list og rödd við Kvik­mynda­skóla Íslands, leik­kona, leik­stjóri og félags­kona í FKA

Þeir sem vilja kynna sér fyr­ir­lest­ur­inn betur og bóka hann eða nám­skeið geta haft sam­band við Þóreyju á net­fang­inu: [email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pistill

Bakdyramegin á bannaðar myndir
Reynir Traustason
Skoðun

Reynir Traustason

Bak­dyra­megin á bann­aðar myndir

Ein helsta skemmtun okkar púkanna á Flateyri var að fara í bíó í Sam­komu­hús­inu. Tvisvar í viku voru sýn­ingar á blóma­tíma bíó­ferð­anna. Á sunnu­dögum voru barna­sýn­ingar og á fimmtu­dags­kvöldum voru myndir sem á stundum voru harð­bann­aðar yngri en 16 ára. Ég hef lík­lega verið orð­inn 11 ára þegar þörf okkar krakk­anna í þorp­inu til að kom­ast á bann­aðar myndir varð...
Íslendingar kunna ekki væntingastjórnun
Skoðun

Brynjar Birgisson

Íslend­ingar kunna ekki vænt­inga­stjórnun

Ég skal fús­lega við­ur­kenna að ég á til að synda á móti straumnum þegar kemur að skoð­unum á knatt­spyrnu en ég ein­fald­lega næ ekki utan um þær hug­leið­ingar að íþrótta­blaða­menn og aðdá­endur íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu telji árangur Åge Hareide með lands­liðið ekki nógu góðan. Í raun er talað um það innan knatt­spyrnu­heims­ins að öruggt sé að Norð­mann­inum verði sagt...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu