„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Netþrjótar herja á Arion banka og Bónus: Láttu ekki plata þig

Netþrjótar herja á Arion banka og Bónus: Láttu ekki plata þig

Net­þrjótar eru teknir að færa sig hressi­lega upp á skaftið ef marka má deil­ingar í íslenskum Facebook-hópum neyt­enda og í ein­hverjum til­fellum eru jafn­vel íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki og mat­vörurisar á borð við Arion­banka og Bónus notuð í bíræfnum til­raunum til fjársvika.

Granda­lausir Facebook-not­endur hafa þannig deilt í góðri trú lof­orðum sem virð­ast runnin undan rifjum íslenskra stór­fyr­ir­tækja og lofa þrjót­arnir gulli og grænum skógum í vinn­ing, allt í skiptum fyrir kredit­korta­númer og banka­reikn­ing við­kom­andi, að því gefnu að orðið sé látið áfram ganga.

Í hópnum Sparn­aðar Tips segir þannig stjórn­andi hóps­ins að tveimur slíkum færslum hafi síð­ast verið eytt út í dag og að þeir hóp­með­limir sem deildu blekk­ing­ar­póst­unum sem íslensku við­skipt­ar­isarnir Arion­banki og Bónus voru hafðir fyrir, hafi fengið form­lega áminn­ingu.

Eru með­limir Sparn­aðar Tips beðnir að ganga hægt um gleð­innar dyr í deil­ingum leikja á net­inu, þó vissu­lega geti verið gaman að taka þátt, en árétta stjórn­endur að gæta að skrán­ingu per­sónu­upp­lýs­inga án nán­ari aðgáts þegar leikir eigi í hlut.

Hér í frétt má sjá skjá­skot af óprút­tnum til­raunum svika­hrappa sem farnir eru að slá um sig með íslenskum vöru­merkjum, allt í þeim til­gangi að féfletta granda­lausa not­endur undir for­merkjum pen­inga­gjafa. Lög­reglan hefur ötul­lega varað almenn­ing við fjársvikum á net­inu und­an­farin miss­eri en segir erfitt að sporna við glæpum af þessu tagi með öðru móti en að sýna amenna árverkni á Facebook og öðrum sam­skipta­miðlum. Lítið mál sé fyrir net­þrjóta að setja upp falskar vef­síður og net­föng, ásamt þeim póstum sem sjá má hér að neðan.

Skynsemi og raun­sæi ásamt sæmi­legu net­læsi er því öfl­ug­asta mótefnið enn sem komið er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins