„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Barnapíur með hærri laun en unglingar Vinnuskólans

Barnapíur með hærri laun en unglingar Vinnuskólans

Barnapössun gefur hærri laun en Vinnu­skól­inn þetta árið. Þetta eru laus­legar nið­ur­stöður óform­legrar rann­sóknar rit­stjórnar sem renndi yfir umræðu­þræði í mæðra­hópum á Facebook nú í dag, en spurt er hversu hátt tíma­kaup tólf ára barnapía eigi að inn­heimta fyrir að gæta sér yngri barna nú meðan sól er hvað hæst á himni og skól­arnir skella í lás.

Spurt er í einum slíkum hóp hversu hátt tíma­kaup tólf ára barn ætti að þiggja fyrir að gæta yngri systk­ina og eru flestir á því máli að 500 til 1000 krónur séu ágætt tíma­kaup. Einhver stingur upp á dag- og kvöld­vinnu­taxta, 500 krónum að degi til og 1000 krónum að kvöld­lagi.

Aðrir vísa í launa­taxta Vinnu­skól­ans og segja tíma­kaup sum­ar­vinnu ágætt við­mið. „Þar sem nokkrar tala um vinnu­skóla eða 2000 kr. á tím­ann þá vil ég bara segja að barnið mitt á 17. ári fær 2227 krónur á tím­ann í vinnu­skól­anum í okkar bæj­ar­fé­lagi,“ svarar ein móð­irin á umræðu­þræði í Mæðra Tips. „Ég væri bara glöð ef barnið mitt fengi að passa með 500 kr. á tím­ann, sorry með mig en mér finnst þetta orðið ansi dýrt og mögu­lega orðið erfitt fyrir krakka að fá að passa því margir geta ekki borgað 1000 kr og eig­in­lega ekki til orð þegar fólk talar um 2000 kr!“ svarar þá önnur og bendir þar á að ekki allir for­eldrar svo efn­aðir.

„Ég borg­aði minni 1250 kr. á tím­ann, hún var yfir­leitt hjá mér í tvo tíma í enn svo 2500 kr skiptið“ svarar önnur en ekki fylgir sög­unni hversu langt er um liðið. Flestar eru mæður svar­þráðar þó sam­mála um að 500 til 1000 kr. séu ljóm­andi góð laun fyrir barnapíur nú í sumar þó flestar hall­ist þær að hærri töl­unni. „Barni sem er 12 ára myndi ég borga 500, ekki 1000. Barnið er ekki komið á vinnu­aldur og að passa 7 ára barn sem er frekar dug­legt að gera hlut­ina sjálft á þeim aldri en ekki 3-4 ára sem algjör­lega þarf að passa að heyr­ist hljóð í svo það pissi ekki…“ bendir hag­nýt hús­móðir á.

Þess má geta að Vinnu­skóli Reykja­vík­ur­borgar greiðir 8. bekk­ingum 664 kr. á tím­ann nú í ár, þá hækkar taxt­inn upp í 886 kr. fyrir 9. bekk­inga og loks fá börn í 10. bekk 1.107 kr. á tím­ann fyrir að reita arfa og snyrta blóma­beð í höf­uð­borg­inni í sumar, en orlof er reiknað ofan á laun. Mæður virð­ast því nokkuð ríf­legar í samn­ingum við barnapíur ef marka má sam­an­burð­ar­tölur þær sem lesa má hér að ofan, en nýleg könnun á vegum Lands­bank­ans sýnir að þriðj­ungur barnapía fær um 1000 krónur í tíma­kaup. Í öðru sæti könn­unar tróna þær barnapíur sem þiggja 700 krónur í tíma­kaup og lest­ina reka svo um 30% svar­hlut­falls, 500 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins