Jóna Hrönn Bolladóttir prestur segir áhyggjuefni að stytting vinnuviku Kirkjugarða Reykjavíkur. Slíkt geti bitnað á syrgjendum og þeim sem þiggja þjónustu Kirkjugarðanna.
,,Við sem veitum þjónustu á erfiðustu stundum fólks þurfum að vanda okkur og vera í góðu samstarfi. Það þarf að ríkja samráð og samstaða til að við getum umvafið á sem bestan hátt eftirlifandi ástvini þegar dauðinn kveður dyra. Það er jafnframt mikilvægt að þau öll sem vinna á þessum vettvangi fái frítíma og finni skilning við sín störf.“
Jóna Hrönn segist ekki mótfallin styttingu vinnuvikunnar hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur en að styttingin megi þó ekki koma niður á þeim sem þiggi þjónustuna, sem geti falið í sér álag á samstarfsfólk. „Við prestar erum sálusorgarar og eigum að vernda hagsmuni þeirra sem missa og við sinnum. Það er enþá 45 % sem óska eftir jarðaförum en 55% sem vilja bálfarir. Það segir sig þvi sjálft að það skapar erfileika ef ekki er hægt að jarðsetja á föstudögum nema að útförin sé kl.10 sem er erfiður útfaratími, ekki síst í svartasta skammdeginu. Það hentar mörgum illa að koma í kistulagningar kl. 9 og svo til jarðafarar kl.10 í staðinn fyrir að það hefur verið hægt í gegnum árin að hafa jarðarfarir kl.11:00, 13:00 og 15:00 svo breytingin er vægast sagt mikil. Eða eins og ágæt vinkona mín sagði á sinni banalegu ,,Jóna Hrönn, þú jarðar mig kl.13. Það má ekki vera eitt af morgunverkunum að fylgja mér til grafar.“
Þá segir Jóna Hrönn að hægt hefði verið að stytta vinnudaginn með öðru móti, til að mynda með því að jarðsetja að lokinni athöfn klukkan 3 á föstudögum en vegna umferðarþunga í vikulok sem skelli á fljótlega eftir hádegi á síðasta vinnudegi hverrar viku hafi hún sjálf ráðið fólki frá því í gegnum árin að velja slíkan tíma því engum sé til hagsbóta að sitja í umferðarteppu á leið til greftrunar í kirkjugarðinum að lokinni athöfn.
Hér má lesa orð Jónu Hrannar á Facebook um styttingu vinnuviku Kirkjugarða:




















Athugasemdir