„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hagræðingartækifæri í Covid

Hagræðingartækifæri í Covid
Ásdís Ósk Vals­dóttir Mynd / Ásta Krist­jáns

Eftir Ásdísi Ósk Vals­dóttur

Með til­komu Covid þurftu fast­eigna­salar að takast á við ýmsar áskor­anir. Allt í einu var ekki hægt að halda hefð­bundin opin hús. Margir verk­ferlar urðu úreltir og við urðum að end­ur­hugsa margt upp á nýtt. Ég hef verið fast­eigna­sali í 18 ár og þrátt fyrir að tækn­inni hafi fleygt fram  hafa opin hús, sýn­ingar, skrán­ingar og eft­ir­fylgni verið nán­ast óbreytt allan þennan tíma.

Ég lét því gamlan draum ræt­ast og lét skrifa kerfið Mínar síður sem tekur út megnið af handa­vinn­unni. Mínar síður gera einnig okkar við­skipta­vinum kleift að fylgj­ast mun betur með sölu­ferl­inu.

Kaup­endur geta bókað sig  í opið hús á net­inu og sótt upp­lýs­inga­bæk­ling fyrir eign­ina. Þeir geta valið þann tíma innan tímara­mma opna húss­ins sem hentar þeim best. Með því að sækja upp­lýs­inga­bæk­ling­inn þá eru þeir mjög vel upp­lýstir um eign­ina áður en þeir mæta á svæðið.

Selj­endur geta fylgst með í raun­tíma hversu margir kaup­endur hafa bókað sig í opna húsið og hvernig það gekk fyrir sig. Þeir geta einnig  átt sam­skipti við fast­eigna­sal­ann í gegnum kerfið. Þegar eignin er seld þá er kaup­and­inn einnig tengdur við kerfið og þá fá báðir aðilar aðgang að upp­lýs­ingum á sama tíma.

Það er  auð­velt að stýra hversu margir koma að skoða á sama tíma og okkar reynsla er að kaup­endur vilja síður mæta í troðin opin hús þar sem erfitt er að skoða eign­ina og ná athygli fast­eigna­sal­ans fyrir mann­fjölda. Við getum  lengt í opna hús­inu á ein­faldan máta ef þess þarf. Eftir opna húsið fá allir kaup­endur sjálf­virkan eft­ir­fylgni­póst til að kanna hvernig þeim hafi lit­ist  á eign­ina. Þannig tryggjum við að allir sitji við sama borð og að eng­inn gleym­ist. Áður gat eft­ir­fylgnin hæg­lega tekið 5-10 klukku­tíma ef mjög margir mættu í opna húsið, núna tekur hún 1 mín­útu, algör­lega óháð fjöld­anum sem mætir .

Við erum einnig með Kaupóska­kerfi undir Mínar síður. Þar geta kaup­endur skráð inn sínar kaupóskir. Þeir fá sendar ábend­ingar þegar eignir koma á skrá sem passa við þeirra kaupóskir og stundum fara eignir ekki á netið heldur eru ein­göngu seldar út úr þessum listum. Einnig geta selj­endur leitað á heima­síðu Húsa­skjóls og séð hversu marga kaup­endur við erum með á skrá að þeirra eign.

Við notum raf­rænar und­ir­rit­anir þannig að bæði kaup­endur og selj­endur geta skrifað undir til­boð og fylgi­skjöl með raf­rænum hætti og skiptir engu hvar í heim­inum þeir eru staddir, á meðan þeir hafa íslenskt sím­kort. Við hjá Húsa­skjóli tókum þá ákvörðun að breyta okkar vinnu­um­hverfi. Við lok­uðum stóru skrif­stof­unni, leigðum minna skrif­stofu­hús­næði sem allir starfs­menn hafa aðgang að þegar þeir vilja, ásamt fund­ar­her­bergjum. Við vinnum heima og nýtum t.d. zoom fyrir vinnufundi. Öll verð­möt fara fram á zoom og skiptir því engu hvar starfs­mað­ur­inn er staddur, hann getur alltaf tekið þátt.

Á einu ári fórum við með Húsa­skjól úr því að vera hefð­bundin fast­eigna­sala í það að vera raf­ræn og sjálf­virk fast­eigna­sala. Vinnu­sparn­aður per eign er að með­al­tali 10 klukku­tímar. Með því að inn­leiða nýja kerfið  fengum við fast­eigna­sal­arnir auk­inn tíma til að ein­beita okkur að því sem skiptir mestu máli, að þjón­usta við­skipta­vin­inn betur. Í stað­inn fyrir að skrá niður upp­lýs­ingar í opnu húsi um skoð­endur getur við verið til staðar og svarað spurn­ingum gest­anna.

Árið 2021 er langstærsta ár Húsa­skjóls frá upp­hafi en samt hafa færri vinnu­stundir verið unnar. Þessi breyt­ing gerir það að verkum að við getum veitt betri þjón­ustu og sinnt vinn­unni okkar miklu betur án þess að þurfa að vinna öll kvöld og helgar eins og áður.

Grein­ar­höf­undur er lög­giltur fast­eigna­sali, eig­andi Húsa­skjól fast­eigna­sölu og félags­kona í FKA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

„Giggari eitthvað sem hefur verið til lengi en höfum kallað það annað – Ný staða á vinnumarkaði“
Innlentatvinnumál

„Giggari eitt­hvað sem hefur verið til lengi en höfum kallað það annað – Ný staða á vinnu­mark­aði“

Árið 2020 var 33% vöxtur á svoköll­uðum „gigg­störfum“ á heims­vísu og sam­kvæmt rann­sókn McKinsey myndi einn af hverjum sex starfs­mönnum í hefð­bundnu starfi helst vilja starfa sjálf­stætt. Spár gera ráð fyrir gíf­ur­lega hröðum vexti gigg-hag­kerf­is­ins á næstu árum. „Það má segja að það sé komin upp ný staða á vinnu­mark­aði,“ segir Harpa Magn­ús­dóttir sem er stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Hoobla klas­ans,...
Kvenleiðtogar hafa forskot í fjarvinnunni
Fólk

Kven­leið­togar hafa for­skot í fjar­vinn­unni

Eftir Ingrid Kuhlman Nú er ár liðið síðan stjórn­völd um allan heim hvöttu starfs­menn að vinna heima. Hvaða áhrif hefur heima­vinnan haft á starfs­menn? Dr. Mark van Vugt, pró­fessor í vinnu­sál­fræði við VU háskól­ann í Amster­dam, kann­aði það ásamt 30 alþjóð­legum kol­legum í fag­inu. Árs fjár­vinna ekki fagn­að­ar­efni „Fæstir líta á árs fjar­vinnu sem fagn­að­ar­efni. Flestir starfs­menn hafa upp­lifað bæði...
Póstdreifing segir upp 304 manns
Innlentatvinnumál

Póst­dreif­ing segir upp 304 manns

Póst­dreif­ing hefur sagt upp öllum 304 blað­berum sínum, og taka upp­sagn­irnar gildi 1. ágúst. Fyr­ir­tækið er í eigu Árvakurs, útgef­anda Morg­un­blaðs­ins og Torgs, sem gefur út Frétta­blaðið. RÚV greinir frá. Kristín Björk Ein­ars­dóttir fram­kvæmda­stjóri Póst­dreif­ingar segir að um end­ur­skipu­lagn­ingu sé að ræða og flestir verði ráðnir aftur í breyttu vinnu­fyr­ir­komu­lagi. Blað­ber­arnir eru á aldr­inum 15 ára og til átt­ræð­is­ald­urs, og...
Viltu vinna með Þórólfi? – Hér er tækifærið
Innlentatvinnumál

Viltu vinna með Þórólfi? – Hér er tæki­færið

Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, er einn umtal­að­asti maður árs­ins og það af góðu einu. Þórólfur hefur ásamt Víði Reyn­is­syni yfir­lög­reglu­þjóni hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra og Ölmu Möller land­lækni staðið vakt­ina í COVID-19 heims­far­aldr­inum. Þau hafa áminnt þjóð­ina um reglur og hátt­semi í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og staðið sig að lang­flestra mati með góðum hætti. Fyrst í stað hélt þrí­eykið dag­lega upp­lýs­inga­fundi, sem síðan fækk­aði í...
Sólveig Anna segir Hörð segja ósatt
Innlent

Sólveig Anna segir Hörð segja ósatt

Sólveig Anna, for­maður Eflingar, segir Hörð Ægisson, rit­stjóra Mark­að­ar­ins, segja ósatt í leið­ara hans í Frétta­blað­inu í dag. Í leið­ar­anum skrifar Hörður um mál Icelandair og þátt­töku líf­eyr­is­sjóð­anna í end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins. „Í árásar-leið­ara dags­ins í Frétta­blað­inu segir Hörður Ægisson í mik­illi van­still­ingu sinni ósatt,“ segir Sólveig Anna og segir eft­ir­far­andi full­yrð­ingu hans ranga. „Ákvörðun líf­eyr­is­sjóð­anna, sem komu síð­ast að end­ur­reisn...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu