„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Viltu vinna með Þórólfi? – Hér er tækifærið

Viltu vinna með Þórólfi? – Hér er tækifærið
Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, hefur ekki stórar áhyggjur af veirunni enn sem komið er.

Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, er einn umtal­að­asti maður árs­ins og það af góðu einu. Þórólfur hefur ásamt Víði Reyn­is­syni yfir­lög­reglu­þjóni hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra og Ölmu Möller land­lækni staðið vakt­ina í COVID-19 heims­far­aldr­inum.

Þau hafa áminnt þjóð­ina um reglur og hátt­semi í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og staðið sig að lang­flestra mati með góðum hætti. Fyrst í stað hélt þrí­eykið dag­lega upp­lýs­inga­fundi, sem síðan fækk­aði í tvo og loks einn í viku, og nú hefur sá síð­asti verið hald­inn, í bili að minnsta kosti.

Líklega sakna margir þrí­eyk­is­ins og heil­ræða þeirra af skjánum, en fagna á sama tíma að ekki er þörf á upp­lýs­inga­fund­unum lengur.

Þeir sem sakna þess að sjá Þórólf dag­lega geta nú freistað þess að sækja um vinnu hjá emb­ætti Land­læknis. Að vísu er það ekki á allra færi því við­kom­andi þarf jú að vera mennt­aður í lækn­is­fræði auk ann­arra skil­yrða, sem lesa má um í aug­lýs­ingu á Starfa­torgi:

Yfir­læknir – sótt­varna­svið emb­ættis land­læknis

Embætti land­læknis óskar eftir að ráða yfir­lækni til starfa á sviði sótt­varna. Starfið felst fyrst og fremst í verk­efnum tengdum sýkla­lyfja­ó­næmi ásamt fjöl­breyttum verk­efnum á sviði sótt­varna. Í boði er áhuga­vert og krefj­andi starf þar sem reynir á þekk­ingu í lækna­vís­indum, fag­mennsku og sam­skipta­hæfni. Næsti yfir­maður er sótt­varna­læknir en við­kom­andi mun vinna í nánu sam­starfi við teymi sér­fræð­inga í sam­ræmi við lög­bundna starf­semi sótt­varna­læknis sam­kvæmt sótt­varna­lögum. Starfið er laust frá og með 1. októ­ber eða eftir nán­ara sam­komu­lagi. Um er að ræða fullt starf en mögu­leiki er á hluta­starfi.

Helstu verk­efni og ábyrgð
# Vinna að opin­berum aðgerðum gegn sýkla­lyfja­ó­næmi, skyn­sam­legri notkun sýkla­lyfja í sam­vinnu við lækna, vinnslu gagna og birt­ingu þeirra
# Sam­skipti við helstu aðila inn­an­lands og erlendis um aðgerðir gegn útbreiðslu sýkla­lyfja­ó­næmis
# Önnur verk­efni að beiðni sótt­varna­læknis eða land­læknis, þar með talið vinna við heims­far­aldur COVID-19 eins og þörf er á hverju sinni

Hæfni­kröfur
# Sér­fræði­menntun í lækn­is­fræði og íslenskt starfs­leyfi sem sér­fræði­læknir
# Víðtæk starfs­reynsla í heil­brigð­is­þjón­ustu
# Reynsla í far­alds­fræði æski­leg
# Góð færni í íslensku og ensku
# Almenn góð tölvu­kunn­átta
# Starfs­reynsla á sviði stjórn­sýslu er kostur
# Jákvæðni og lip­urð í mann­legum sam­skiptum
# Sjálf­stæði í vinnu­brögðum og skipu­lags­hæfni

Frekari upp­lýs­ingar um starfið
Laun sam­kvæmt gild­andi kjara­samn­ingi sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og við­kom­andi stétt­ar­fé­lag hafa gert.
Við ráðn­ingu er tekið mið af jafn­rétt­is­stefnu emb­ætt­is­ins og við hvetjum ein­stak­linga af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknin gildir í 6 mán­uði eftir að umsókn­ar­frestur rennur út nema umsækj­andi ákveði annað. Embætti land­læknis áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað að ráðn­ingu lok­inni.

Umsókn skal fylgja ítar­leg náms- og starfs­fer­il­skrá, auk kynn­ing­ar­bréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rök­stuðn­ingur fyrir hæfni við­kom­andi í starfið. Mat á hæfni umsækj­enda byggir á inn­sendum gögnum og við­tölum við umsækj­endur.

Embætti land­læknis starfar í sam­ræmi við lög um land­lækni og lýð­heilsu. Hlutverk emb­ætt­is­ins í hnot­skurn er að stuðla að góðri og öruggri heil­brigð­is­þjón­ustu, heilsu­efl­ingu og öfl­ugum for­vörnum. Embættið hefur sett sér þrjú gildi sem starfs­mönnum ber að hafa að leið­ar­ljósi þ.e. ábyrgð, virð­ing og traust. Við erum heilsu­efl­andi vinnu­staður sem leggur áherslu á að efla mannauð og stuðla að góðri heilsu og líðan starfs­manna.

Starfs­hlut­fall er 100%
Umsókn­ar­frestur er til og með 01.09.2020

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

„Giggari eitthvað sem hefur verið til lengi en höfum kallað það annað – Ný staða á vinnumarkaði“
Innlentatvinnumál

„Giggari eitt­hvað sem hefur verið til lengi en höfum kallað það annað – Ný staða á vinnu­mark­aði“

Árið 2020 var 33% vöxtur á svoköll­uðum „gigg­störfum“ á heims­vísu og sam­kvæmt rann­sókn McKinsey myndi einn af hverjum sex starfs­mönnum í hefð­bundnu starfi helst vilja starfa sjálf­stætt. Spár gera ráð fyrir gíf­ur­lega hröðum vexti gigg-hag­kerf­is­ins á næstu árum. „Það má segja að það sé komin upp ný staða á vinnu­mark­aði,“ segir Harpa Magn­ús­dóttir sem er stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Hoobla klas­ans,...
Kvenleiðtogar hafa forskot í fjarvinnunni
Fólk

Kven­leið­togar hafa for­skot í fjar­vinn­unni

Eftir Ingrid Kuhlman Nú er ár liðið síðan stjórn­völd um allan heim hvöttu starfs­menn að vinna heima. Hvaða áhrif hefur heima­vinnan haft á starfs­menn? Dr. Mark van Vugt, pró­fessor í vinnu­sál­fræði við VU háskól­ann í Amster­dam, kann­aði það ásamt 30 alþjóð­legum kol­legum í fag­inu. Árs fjár­vinna ekki fagn­að­ar­efni „Fæstir líta á árs fjar­vinnu sem fagn­að­ar­efni. Flestir starfs­menn hafa upp­lifað bæði...
Póstdreifing segir upp 304 manns
Innlentatvinnumál

Póst­dreif­ing segir upp 304 manns

Póst­dreif­ing hefur sagt upp öllum 304 blað­berum sínum, og taka upp­sagn­irnar gildi 1. ágúst. Fyr­ir­tækið er í eigu Árvakurs, útgef­anda Morg­un­blaðs­ins og Torgs, sem gefur út Frétta­blaðið. RÚV greinir frá. Kristín Björk Ein­ars­dóttir fram­kvæmda­stjóri Póst­dreif­ingar segir að um end­ur­skipu­lagn­ingu sé að ræða og flestir verði ráðnir aftur í breyttu vinnu­fyr­ir­komu­lagi. Blað­ber­arnir eru á aldr­inum 15 ára og til átt­ræð­is­ald­urs, og...
Sólveig Anna segir Hörð segja ósatt
Innlent

Sólveig Anna segir Hörð segja ósatt

Sólveig Anna, for­maður Eflingar, segir Hörð Ægisson, rit­stjóra Mark­að­ar­ins, segja ósatt í leið­ara hans í Frétta­blað­inu í dag. Í leið­ar­anum skrifar Hörður um mál Icelandair og þátt­töku líf­eyr­is­sjóð­anna í end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins. „Í árásar-leið­ara dags­ins í Frétta­blað­inu segir Hörður Ægisson í mik­illi van­still­ingu sinni ósatt,“ segir Sólveig Anna og segir eft­ir­far­andi full­yrð­ingu hans ranga. „Ákvörðun líf­eyr­is­sjóð­anna, sem komu síð­ast að end­ur­reisn...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins