„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hælisleitendur á sóttvarnarhótel – „Við treystum ekki Útlendingastofnun því þeir ljúga svo oft “

Hælisleitendur á sóttvarnarhótel – „Við treystum ekki Útlendingastofnun því þeir ljúga svo oft “

Hæl­is­leit­endur sem greindust með Covid-19 og allir úr tveimur bygg­ingum á vegum Útlend­inga­stofn­unar hafa verið fluttir á sótt­varn­ar­hótel. Mikil óvissa hefur ríkt á meðal hæl­is­leit­enda í dag. Þórólfur Guðnason sótt­varna­lænkir greindi frá hópsmit­inu í dag.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir

Mannlíf hefur verið í sam­bandi við nokkra af þeim hæl­is­leit­endum sem eru hluti af á milli 50 til 70 hæl­is­leit­endum sem tengj­ast hópsmit­inu sem greind­ist á meðal þeirra þann 4. júní. Mikil óvissa og ringul­reið ríkti á köflum í hús­næði á vegum Útlend­inga­stofn­unar þegar hópsmitið kom upp. Flytja þurfti alla á sótt­varn­ar­hótel til þess að hægt væri að hefja sótt­hreinsun á vist­ar­verum fólks­ins. Um er að ræða tvær bygg­ingar en hópsmitið virð­ist þó ein­ungis tengj­ast annarri þeirra.

Útsýni eins úr hópnum sem er mættur á sótt­varn­ar­hótel
Her­bergið sem einn af við­mæl­endum Mannlífs mun dvelja á í tvær vikur nema eitt­hvað breyt­ist með með­ferð nið­ur­staðna Covid- prófa, að þær verði ekki not­aðar til þess að senda fólk úr landi

Tengjast ekki hópsmitinu

Eins og Mannlíf hefur fjallað um hafa hæl­is­leit­endur neitað að fara í Covid – próf en það skal tekið fram að þeir 18 ein­stak­lingar sem nú eru á göt­unni eftir að hafa neitað Covid– próf­inu tengj­ast þess­ari hóp­sýk­ingu ekki á nokkurn hátt.

Vandi á höndum

Nú er hættan þó sú að þeir hæl­is­leit­endur sem tengj­ast þessu atviki og eru í stöðu þar sem hægt er að nota Covid– próf til þess að flytja þá úr landi, neiti því alfarið og eru margir sem hafa nú þegar neitað að gang­ast undir prófið á þessum for­sendum. Þeir sem hafa tekið prófið þurfa að dvelja í viku á sótt­varn­ar­hót­el­inu en þeir sem hafa neitað þurfa að dvelja þar í tvær vikur. Mannlíf hefur haft fregnir af því að til stendur að finna lausn á þessu vanda­máli sem myndi þá gefa þeim ein­stak­lingum færi á því að gang­ast undir Covid – próf án þess að hægt sé að nota það til þess að vísa þeim á brott. Við­mæl­endur Mannlífs vildu ekki láta nafn síns getið af ótta við að það hefði nei­kvæð áhrif á þeirra mál hjá Útlend­inga­stofnun. Þetta sögðu þeir þó: „Við treystum ekki Útlend­inga­stofnun því þeir ljúga svo oft “

Allir hressir

Enginn af þeim sem Mannlíf hefur talað við er með ein­kenni né hafa þeir verið nærri þeim sem smit­aðir eru en allur er var­inn góður og von­andi fá allir þeir ein­stak­lingar Covid – próf sem ekki verður notað gegn þeim á nokkurn hátt. Það hlýtur að vera eðli­legur liður í því að rekja smit til dæmis að nið­ur­stöður allra sem eiga í hlut liggi fyrir.

Hæl­is­leit­endur við Aust­ur­völl að mót­mæla brott­vís­unum til Grikk­lands

Mannlíf hefur fjallað um mál­efni hæl­is­leit­enda og mun halda áfram að fylgj­ast með og fjalla um tengd mál­efni. Hér að neðan má finna tvær fréttir er tengj­ast mál­efnum hæl­is­leit­enda.

 https://gamla.mannlif.is/frettir/haelisleitendur-neita-taka-covid-prof-thvi-annars-sendir-til-grikklands/

https://gamla.mannlif.is/frettir/iyad-jad-alah-sendur-a-gotuna-af-utlendingastofnun-eg-er-ungur-en-mer-lidur-eins-og-eg-se-gamall/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins