„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kristín Snæfells Arnþórs kýlir krabbann í rot

Kristín Snæfells Arnþórs kýlir krabbann í rot

Kristín Snæfells Arn­þórs­dóttir skæl­brosir hug­rökk mót ill­vígu krabba­meini í nýút­komnu tón­list­ar­mynd­bandi við bar­áttu­lagið Lífið er núna, en stutt er síðan MANNLÍF greindi frá því að Guðbjörg Elísa, dóttir Krist­ínar, hefði samið texta lags til heiður Kraftur, stuðn­ings­sam­taka ungs fólks sem greinst hefur með krabba­mein og aðstand­endur þeirra.

Kristín greind­ist með tvær teg­undir krabba­meins á síð­asta ári og sagði Guðbjörg, dóttir hennar í við­tali fyrir skemmstu að áfallið hefði vissu­lega verið gíf­ur­legt fyrir alla fjöl­skyld­una. „Tón­listin hefur alltaf verið mín helsta huggun þegar á móti blæs og þannig fór ég beint í meló­díurnar.“ Þá sagði Guðbjörg einnig að í hennar huga hafi stuðn­ings­sam­tökin Kraftur alla tíð átt óskipt þakk­læti hennar. „Ég tengdi lagið við bróður minn og ömmu mína í upp­hafi sem dóu bæði úr krabba­meini. Þegar sjúk­dóms­grein­ingin lá svo fyrir hjá elsku mömmu minni, þá fór ég ósjálfrátt að syngja til mömmu. Þá hug­mynd sótti ég í slag­orð Krafts.“

Kristín fer með stórt hlut­verk í mynd­band­inu og tekur sér hlut­verk ofur­hetju fyrir hendur í box­hringnum

Þá segir Guðbjörg einnig að her­ferðin Lífið er núna hafi snortið hana mjög djúpt. „Herferð Krafts snertir mig mjög djúpt vegna bróður míns og ömmu minnar og þegar mamma svo greind­ist, þá fór ég ósjálftrátt að tengja text­ann og lagið við mömmu og fer ósjálfrátt að syngja lagið fyrir hana. Þetta er í dag orðið að stór­kost­legu verk­efni sem hægt er að tengja við úrvinnslu fleiri teg­undir áfalla og lífs­reynslu.“

Guðbjörg reimar æfinga­skó á fætur móður sinnar, Krist­ínar í mynd­band­inu og gerir til­búna fyrir slag­inn

Og úr varð ekki ein­ungis texti við tón­list heldur einnig bar­áttu­mynd­band sem ætlað er að boða kraft kær­leik­ans á ögur­stundu. „Mamma fær bestu umönnun sem kostur er á og við erum þakk­lát hverjum degi. Vissu­lega er krabba­meins­með­ferð erfið og við þurftum að takast á við bakslag fyrir ein­hverjum vikum síðan, þetta var tví­sýnt um tíma og ég hélt í skamma stund að ég myndi missa mömmu. En lyfja­með­ferð gengur vel og mömmu líður eins vel og hægt er að vona.“

Kristín mætt í box­hring­inn og reiðu­búin í slag­inn gegn þeim vágesti sem krabba­mein er

Í við­tal­inu sagði Guðbjörg aðspurð að skila­boðin væru skýr: „Í lag­inu er ég ekki bara að syngja um það að sleppa, lifa og njóta því lífið er núna; lagið fjallar líka um að standa saman og berj­ast gegnum hvers konar erf­ið­leika, hlúa að sínum nán­ustu og sjálfum sér eins mikið og hægt er. Að njóta þess að lifa í krafti kær­leik­ans sem er ávallt mestur.“

MANNLÍF óskar þeim mæðgum Kristínu og Guð­björgu Elísu alls hins besta. Hér má sjá sum­arsmell­inn Lífið er núna sem er óður til Krafts, stuðn­ings­fé­lags ungs fólks sem hefur greinst með krabba­mein og aðstand­endur þeirra en Kristínu má sjá í gervi box­hetju sem ræðst með alefli á þá ill­vígu vá sem krabba­mein er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins