„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Yfirlæknir vildi skylda GBS-skimun: „Ég skil ekki hvers vegna ekki er skimað“

Yfirlæknir vildi skylda GBS-skimun: „Ég skil ekki hvers vegna ekki er skimað“

Hartnær tveir ára­tugir eru síðan barn lést síð­ast hér á landi vegna sam­bæri­legrar sýk­ingar og raunin varð í til­felli Friðriks Ragnars Hansen, sem veikt­ist lífs­hættu­lega af völdum heila­himnu­bólgu í kjöl­far GBS sýk­ingar í apríl á þessu ári.

Friðrik Ragnar sem kom í heim­inn eftir 33 vikna með­göngu þann 3. apríl síð­ast­lið­inn er nú orð­inn ríf­lega tveggja mán­aða gam­all og er undir stöð­ugu eft­ir­liti tauga­læknis. Karen Ing­ólfs­dóttir sem er móðir drengs­ins sagði í við­tali við Mannlíf nú í gær að taka þurfi blóðprufur af barn­inu í hverri viku til að mæla natr­íumbirgðir lík­am­ans. Þetta er gert þar sem litli dreng­ur­inn veikt­ist það alvar­lega af heila­himnu­bólgu ein­ungis fjórum dögum eftir fæð­ingu að heila­d­ing­ull hans varð fyrir skaða á sjón- og hreyf­is­viði lík­am­ans sem svo hafði alvar­leg áhrif á getu lík­am­ans til að vinna úr natr­íum.

Upplýsingar færðar í sjúkraskrá án vitundar

Karen telur að skylda ætti skimun barns­haf­andi kvenna á Íslandi en slíkt tíðkast víða meðal nágranna­þjóða okkar. GBS skimun á með­göngu er val­kvæður mögu­leiki á Íslandi í dag en fjöl­margar konur eru svo­nefndir GBS-berar án þess að hafa nokkru sinni fundið ein­kenni eða til nokk­urra óþæg­inda. Sú reynd­ist raunin í til­felli Karenar en að sögn hinnar nýbök­uðu móður voru upp­lýs­ing­arnar færðar í með­göngu­skrá hennar án frek­ari mála­leng­inga og fengu for­eldrar barns­ins ekki að vita af skrán­ingu fyrr en nýfæddur dreng­ur­inn var orð­inn lífs­hættu­lega veikur.

Einkennalausir GBS berar

Fleiri eru á sama máli og Karen, en ekki þarf að líta lengra aftur í tím­ann en aftur til árs­ins 2013, en þá veikt­ist 9 daga gömul stúlka lífs­hættu­lega vegna strept­ókokka­sýk­ingar frá fæð­ing­ar­vegi móður. Í við­tali við Vísi árið 2013, sagði Þórður Þor­kels­son, þáver­andi yfir­læknir vöku­deildar að skima ætti allar barns­haf­andi konur til að úti­loka að þær bæru strept­ókokka af þess­ari gerð. Slík skimun væri ein­föld í fram­kvæmd og gæti dregið stór­lega úr hættu á að nýburar veikt­ust svo alvar­lega. Liðin eru ein átta ár frá orðum þáver­andi yfir­læknis vöku­deildar og stendur reglu­gerðin enn óbreytt í heil­brigð­is­kerf­inu. Talið er að fjórð­ungur mæðra sem fæða börn hvert ár séu svo­kall­aðir GBS berar en að helm­ingur þeirra barna smit­ist og þar af væru fáein börn úr þeim hópi, eða um 1 – 2 pró­sent sem veikt­ust alvar­lega.

Orð yfir­læknis vöku­deildar fengu sterkan hljóm­grunn árið 2013 og tók Birna Harð­ar­dóttir, móðir Matt­hildu litlu sem aðeins 9 daga gömul var lögð inn á spít­ala í hasti með sýk­ingu í blóði og þvagi, heils­hugar undir orð Þórðar Þor­kels­sonar sem þá sagði í við­tölum við fjöl­miðla að börn væru í bráðri lífs­hættu ef bakt­er­ían kæm­ist í blóðið. „Erlendar rann­sóknir hafa sýnt til­tölu­lega háa dán­ar­tíðni, 30-40 pró­sent en sem betur fer er dán­ar­tíðnin ekki nærri eins há hér á landi“.

Vonar að frásögn hennar muni hrinda af stað skylduskimun á meðgöngu

Átta ár eru nú liðin frá síð­asta þekkta til­felli hér á landi og orðum yfir­læknis, sem stað­festi að sýk­ing hjá nýfæddum börnum völdum strept­ókokka í fæð­ing­ar­vegi móður gæti orðið svo alvar­leg að gæti valdið heila­himnu­bólgu. Slíkt varð raunin í til­felli Friðrik litla. „Hugsun okkar for­eldr­anna í dag er sú að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir að hann veikt­ist svona alvar­lega. Ég skil ekki hvers vegna ekki er ski­mað fyrir GBS hjá óléttum konum eins og gert er ann­ars staðar í heim­inum. Ég óska engum að lenda í þessu og vona ég inni­lega að frá­sögn mín verði til þess að skyldu­ski­mað verði fyrir GBS á með­göngu kvenna héðan í frá,“ sagði Karen í við­tali við Mannlíf.

Upp­lýs­ingar um GBS má finna á fræðslu­vef ljós­mæðra en þar kemur fram að ekki hafi verið mælt með skimun allra barns­haf­andi kvenna fyrir GBS hér á landi. Konur sem hafi áður fætt barn sem sýkt­ist af GBS eða hafa greinst með GBS í þvagi eða leggöngum/enda­þarmi á með­göngu eigi allra helst að fá sýkla­lyfja­gjöf í æð meðan á fæð­ingu stendur.

Fræðslu­efni um GBS:

DOKTOR – Strept­ókokkar í leggöngum

LJÓSMÓÐIR – GBS berar

ÖSKUBUSKA – Ert þú GBS beri? 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

meðganga

Birta Líf og Gunnar Patrik eiga von á öðru barni: „Gunn­ars­dótt­ir 2025”
Menning

Birta Líf og Gunnar Patrik eiga von á öðru barni: „Gunn­ars­dótt­ir 2025”

Birta Líf Ólafs­dóttir hlað­varps­stjarna og fast­eigna­sal­inn Gunnar Patrik Sig­urðs­son, eiga von á sínu öðru barni á næsta ári. Fyrra barn þeirra kom í heim­inn 11. apríl 2021 og hlaut hið fal­lega nafn Embla Líf. Það var um helg­ina sem stjörnuparið sem fagn­aði tíu ára sam­bands­af­mæli sínu fyrr á þessu ári til­kynnti stór­tíð­indin á Instagram en þar kom fram að um...
Glowie birti glæsilega meðgöngumynd: „Bæði algjörlega dauðhrædd og svo spennt að verða mamma“
Menning

Glowie birti glæsi­lega með­göngu­mynd: „Bæði algjör­lega dauð­hrædd og svo spennt að verða mamma“

Sara Pét­urs­dóttir eða Glowie eins og hún kallar sig, birti glæs­lega með­göngu­ljós­mynd af sér á Instagram á dög­unum. Glowie á von á barni með ljós­mynd­ar­an­um Guðlaugi Andra Eyþórs­syni en von er á barn­inu eftir um það bil fimm vikur. Glowie birti í upp­hafi nýja árs­ins fal­lega með­göngu­ljós­mynd og það svart­hvíta. Við færsl­una skrif­aði hún eft­ir­far­andi texta (þýddan yfir á íslensku):...
Birgitta Líf birti glænýjar meðgöngumyndir – Fékk atvinnuljósmyndara í verkið
Menning

Birgitta Líf birti glæ­nýjar með­göngu­myndir – Fékk atvinnu­ljós­mynd­ara í verkið

Birgitta Líf Ein­ars­dóttir fékk Helga Ómarsson til að taka fal­legar með­göngu­myndir af sér og birti á Instagram. Áhrifa­vald­ur­inn Birgitta Líf Ein­arssdóttir og kær­asti hennar Enok Jónsson eiga von á barni á nýju ári en Birgitta hefur verið dug­leg að birta myndir af óléttu­bumbunni sætu á Instagram. Í gær birti hún svo tvær nýjar ljós­myndir en í þetta skiptið fékk hún...
Verðandi móður ekki sagt að hún væri GBS-beri: „Sonur okkar er með heilaskaða“
Innlentmeðganga

Verðandi móður ekki sagt að hún væri GBS-beri: „Sonur okkar er með heilaskaða“

Fjögurra daga drengur sem kom í heim­inn eftir 33 vikna með­göngu móður veikt­ist lífs­hættu­lega af heila­himnu­bólgu á vöku­deild Lands­spít­ala fyrr í vor og var um hríð í önd­un­ar­vél. Orsökin er völdum strept­ókokka í fæð­ing­ar­vegi en þrátt fyrir að upp­lýs­ingar þær væri að finna í með­göngu­skjölum var móður ekki greint frá því að hún væri GBS-beri. Að sögn móður barns­ins, Karenar...
Gabríela ólétt og smitaðist af rjómafernu – Amma smituð líka
Innlent

Gabríela ólétt og smit­að­ist af rjóma­fernu – Amma smituð líka

„Ég hitti ömmu mína á föstu­degi og fór í búð áður. Ég hef örugg­lega bara smit­ast af rjóma­fern­unni sem ég keypti eða ein­hverjum snertifleti,“ segir Gabríela Birna Jóns­dóttir, 24 ára íþrótta- og heilsu­fræð­ingur úr Reykja­vík, sem greind­ist með COVID 19 þann 1. ágúst. Hún er barns­haf­andi og átti aðeins eftir hálfan mánuð af með­göng­unni. Gabríela Birna segir í sam­tali við...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins