„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nýbakaður íslenskur milljarðamæringur: Þiggur ráðgjöf vegna auðævanna

Nýbakaður íslenskur milljarðamæringur: Þiggur ráðgjöf vegna auðævanna

„Þær reglur gilda að þetta er skatt­frjáls vinn­ingur og rennur óskiptur til vinn­ings­hafa,“ segir Pétur Hrafn Sig­urðs­son, upp­lýs­inga­full­trúi Íslenskrar Getspár, um einn stærsta lottó­vinn­ing sem nokkur Íslend­ingur hefur hreppt í sögu lýð­veld­is­ins. Þá verður vinn­ing­ur­inn greiddur út í einu lagi. „Já, vinn­ing­ur­inn verður greiddur út í einu lagi eftir fjórar vikur,“ segir , upp­lýs­inga­full­trúi Íslenskrar Getspár.

Öllum vinn­ings­höfum sem hreppa fyrsta vinn­ing býðst ráð­gjöf sér­fræð­ing á vegum Íslenskrar Getspár og hefur sá heppni, sem er fjöl­skyldu­faðir á fer­tugs­aldri í Reykja­vík að sögn upp­lýs­inga­full­trúa þegið boðið. Hinn ljón­heppni millj­arða­mær­ingur sem um ræðir vann þannig 1.2 millj­arða í Vík­inga­lottói nú í þess­ari viku en mið­inn var keyptur gegnum lotto.is og mun vinn­ing­ur­inn vera svo stór­felldur vegna kerf­is­breyt­inga á lottó­kerf­inu sjálfu.

„Allir sem fá hærri vinn­inga, allt frá 7 til 9 millónum króna, fá boðun um ráð­gjöf. Þessi vinn­ings­hafi hefur þegið það.“

En í hverju ætli ráð­gjöf Íslenskrar Getspár sé háttuð í grófum dráttum? „Það er svo margt sem huga þarf að við slíkan vinn­ing,“ segir Pétur Hrafn jafn­framt. „Þó vinn­ing­ur­inn sé skatt­frjáls þá þarf til dæmis að til­greina vinn­ing­inn á skatta­skýrsl­unni. Það eru alls kyns þættir sem koma til, hvar á að geyma pen­ing­inn og svo fram­vegis.“ Íslensk Getspá veitir þó ekki nákvæma fjár­mála­ráð­gjöf og segir upp­lýs­inga­full­trúi að þær upp­lýs­ingar séu bundnar algerum trún­aði.

Komið hefur fram í íslenskum fjöl­miðlum að vinn­ings­haf­inn er íslenskur fjöl­skyldu­faðir á fer­tugs­aldri. Ætlar sá hinn sami að gefa upp nafn sitt eða óskar fjöl­skyldu­fað­ir­inn ljón­heppni að njóta opin­berrar nafn­leyndar? „Hann nýtur nafn­leyndar,“ segir Pétur Hrafn að lokum. „Það er þá ekki nema hann sjálfur vilji gefa sig fram. Þá gerir hann það bara. En hann nýtur nafn­leyndar af hálfu Getspár“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins