„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svona verður veðrið á næstunni: „Regnjakki fyrir norðan og lopapeysa undir“

Svona verður veðrið á næstunni: „Regnjakki fyrir norðan og lopapeysa undir“
„Regnjakki fyrir norðan og lopa­peysa undir,“ eru heil­ræði Teits Arasonar veð­ur­fræð­ings en hér má sjá hita­kort af Íslandi í dag, 12. júní

Strekk­ingsnorð­an­átt, rign­ing og slydda og snjó­koma til fjalla. Þetta eru svör Veð­ur­stofu við spurn­ingum sól­ar­þyrstra um veð­ur­horfur næstu dag­anna. Lít­ils­háttar hret segja veð­ur­fróðir þó ekki merkja smá­vetur þó hálf­leið­in­legt verði vegna næð­ings. Þessi spá gildir þó aðeins um blá­helg­ina en vinda­samt og vott hefur sum­arið verið og glittir í snævi þakta fjall­stoppa á Vest­fjörðum og víðar.

„Lægð­ar­brautin er akkúrat yfir okkur núna“

„Regnjakki fyrir norðan og lopa­peysa undir,“ eru heil­ræði Teits Arasonar veð­ur­fræð­ings. Laug­ar­dagur, sem til allrar ham­ingju er á morgun, vísar til lukku eins og vísan gamla kveður á en þurrt verður fram eftir degi og glittir í sól hér og þar fyrripart. Bæta mun í vind seinnipart dags og verður farið að rigna á land­inu sunn­an­verðu þegar að kvöld­verði kemur.

Snjór í byggð í Árnes­hreppi: „Þetta verður gott sumar þegar hret­inu slotar“.

Hlýjast verður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Kirkju­bæj­ar­klaustri en spáin lofar 11 gráðu hita beggja vegna. Kaldast verður á Akureyri og nær­sveitum en áætl­aður hiti er 8 gráður. Þá má reikna með krapi og snjó­þekju á sumum fjall­vegum á norð­an­verðu land­inu nú um helg­ina og því full ástæða fyrir ferða­langa að aka var­lega um þjóð­vegi lands­ins.

Norð­an­strekk­ingur sá sem Teitur veð­ur­fræð­ingur spáir rétti­lega um hefur komið niður víðs­vegar um landið en all­hvass vind­ur­inn verður á bil­inu 10 18 metrar á sek­úndu. Eigendur far­ar­tæja sem eru við­kvæm fyrir vindi ættu þannig að tryggja hjól­hýsi og hús­bíla nú um helg­ina og kanna aðstæður á vef­síðu Vega­gerð­ar­innar áður en haldið er af áfram á þjóð­vegum.

„Gránar í fjöll fyrir norðan á sunnu­dag“

„Það er svona hálfur dagur sem verður góður,“ segir Teitur veð­ur­fræð­ingur og er þar að fjalla um veð­ur­spá laug­ar­dags­ins 12. júní.

„Já, fólk ætti eig­in­lega að drífa sig út fyrri­part­inn,“ ráð­leggur veð­ur­fræð­ing­ur­inn jafn­framt og kul­sæknum því væn­leg­ast að læð­ast inn­an­dyra frá kvöld­verð­ar­tíma. „Það er nú bara rign­ing um allt land á sunnu­dag og aftur fer að grána í fjöll fyrir norðan á sunnu­dag,“ segir Teitur jafn­framt. „Við erum í miðri lægð núna, en það er engin ástæða til að ætla að svona haldi áfram í allt sumar. Lægð­ar­brautin er akkúrat yfir okkur núna eins og hún er stundum á vet­urna. Við sjáum þetta oft þegar storm­arnir koma í röðum og svo er rólegra á milli. En núna í júní er lægð­ar­gang­ur­inn rign­ing og leið­in­legur vindur fyrir árs­tím­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins