„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigurbjörg er trúarleiðtogi: „Amma var myrt af fíkniefnaneytanda“

Sigurbjörg er trúarleiðtogi: „Amma var myrt af fíkniefnaneytanda“

„Við gerum yfir­leitt ekki var­an­legar og nauð­syn­legar breyt­ingar fyrr en við erum neydd til þess því við erum svo föst í viðjum van­ans. Það er svo gott að lenda stundum í aðþrengdum kring­um­stæðum en þá gerum við oft loks breyt­ingar sem geta orðið til þess að maður blóm­stri enn frekar í líf­inu, segir Sig­ur­björg Gunn­ars­dóttir, safn­að­ar­leið­togi í Smára­kirkju.

Sig­ur­björg hefur upp­lifað mikla gleði í líf­inu en einnig mikil áföll.

Börnin hvött til að vara sig

Sig­ur­björg seg­ist hafa fengið óhefð­bundið upp­eldi. „Mamma og pabbi voru nátt­úr­lega á kafi í kristna geir­anum, þau Inga og Gunnar í Kross­inum. Ég gekk um í pilsi, klippti ekki á mér hárið né lit­aði og mál­aði mig aldrei. Ég er ekki að segja að það hafi ekki verið mitt val en það var vissu­lega ákveð­inn þrýst­ingur. En þegar ég lít til baka man ég eftir góðri æsku og góðu upp­eldi og ég sé ekki eftir neinu. Margt var öðru­vísi á mínu heim­ili og börnin í hverf­inu voru hvött til að vara sig á okkur. Það var vissu­lega svo­lítið sárt á þeim tíma því börn taka svona inn á sig og framan af ævinni var ég mjög upp­tekin af því hvað fólki fannst um mig, senni­lega út af æsku­ár­unum, en ég er komin á þann aldur að ég er komin yfir það. Í dag er ég sátt og mín við­ur­kenn­ing kemur frá mínu sam­fé­lagi við Guð og menn. Mér finnst svo gott að vera á þeim stað”. 

Morðið á ömmu eitt stærsta áfallið

Sig­ur­björg kynnt­ist eig­in­manni sínum innan Krossins þar sem hann var einnig með­limur og voru þau vinir í sjö ár áður en þau hófu sam­band. „Hann reyndi að bjóða mér út öll þessi ár en ég sagði alltaf nei. Við grín­umst oft með það að ég hafi látið ganga á eftir mér! En svo ger­ist eitt­hvað og ég verð svona yfir­gengi­lega ást­fangin af honum, sem er svo­lítið merki­legt því það er nefni­lega oft erfitt stíga út af vina­svæð­inu þegar maður er búinn að koma sér vel fyrir þar. En ég var svo lánsöm að hann ávann hjarta mitt og heldur því áfram á hverjum degi enn þann dag í dag”.

Sig­ur­björg og eig­in­maður hennar Aðal­steinn Scheving.

Fimm mán­uðum eftir að þau gengu í hjóna­band upp­lifði Sig­ur­björg eitt stærsta áfall lífs síns. „Amma mín ynd­is­leg, sem ég heiti í höf­uðið á, var myrt af fíkni­efna­neyt­anda sem bank­aði upp hjá henni og framdi þetta voða­verk. Þetta var hræði­legt mál og ég upp­lifði gríð­ar­legt áfall og fór í kjöl­farið að fá martraðir upp á hverja nótt og vakn­aði í svita­baði. Ég vissi ekk­ert hver orsökin var en seinna lærði ég að þarna var um áfallastreituröskun að ræða.”

Varð hrædd og óttaslegin

Venju­lega er and­lit hulið við kistu­lagn­ingu ef um áverka er að ræða en það var ekki gert í til­felli ömmu Sig­ur­bjargar. „Það var aug­ljóst að eitt­hvað hafði átt sér stað en hún var með sára­um­búðir og því aug­ljóst að dauð­dagi hennar var ofs­feng­inn og ofbeld­is­fulllur. Uppfrá því varð ég hrædd og ótta­slegin yfir svo að segja öllu og hugs­aði iðu­lega um hennar síð­ustu and­ar­tök. Þarna er ég 26 ára og ekki enn búin að leita mér hjálpar við að gera upp mín mál tengd æsk­unni.

Aðal­steinn þurfti að ganga vel og lengi á eftir Sig­ur­björgu.

Mörgum árum síðar kom bana­maður ömmu Sig­ur­bjargar á sam­komu hjá henni en áður hafði hann komið á sam­komu í Kross­inum auk þess sem Gunnar og Inga heim­sóttu hann í fang­elsið.

Hefur hún fyr­ir­gefið? „Það var meira en að segja það fyrir mig að sjá hann ég bara við­ur­kenni það fús­lega. Ég myndi ekki vilja umgang­ast við­kom­andi í hinu dag­lega lífi en fyr­ir­gefn­ingin hefur ekk­ert með það að gera, þú verður að leyfa þér að halda áfram í líf­inu. Auðvitað er eðli­legt að finna til reiði við missi og sárs­auka, það á rétt á sér en lyk­ill­inn er að halda áfram svo þú lifir ekki í bit­urð. Fyr­ir­gefn­ing hefur með mann sjálfan að gera og er svo mik­il­væg. Með henni leysi ég ekki aðeins sjálfa mig, ég leysi líka út fólkið sem situr óvel­komið í koll­inum á mér án þess að greiða nokkra leigu“.

Jónína var algjör týpa

Talið snýst að átök­unum sem urðu til þess að Krossinn var lagður niður.

„Árið 2010 var erfitt. Pabbi og mamma skilja árið 2009 og árið 2010 kemur Jónína Ben inn í líf okkar og hún og pabbi gifta sig. Sama ár fara ásak­an­irnar á hendur pabba af stað og ég enda óvænt sem for­stöðu­maður sem var eitt­hvað sem ég hafði ekki séð fyrir.” 

Jónína og Gunnar.

Sig­ur­björg segir Jónínu hafa verið magn­aða konu. „Hún var algjör týpa og svaka­lega skemmti­leg. Ég dáð­ist að svo mörgu sem hún var að gera, hún var súper­klár og ótrú­lega dríf­andi og ég bar mikla virð­ingu fyrir henni. En hún gat sko verið dram­an­tísk! Hún var til dæmis mikið gefin fyrir að vera í fjöl­miðlum sem mér fannst stundum helst til of mikið. Ég veit til dæmis ekki hvað margar síður í blöð­unum fóru undir brúð­kaup þeirra pabba. Sjálf hef ég ekki þessa þörf fyrir stöðuga fjöl­miðla­at­hygli“.

Höfum ólíka styrkleika

Þegar ásak­an­irnar á hendur Gunnari komu fram tók hann þá ákvörðun að stíga til hliðar og til­nefndi Sig­ur­björgu sem eft­ir­mann. „Ég hafði verið pabba mjög innan handar og unnið náið með honum við að stýra innra starfi kirkj­unnar nokkur ár þar á undan. En aðal starf mitt var sem deild­ar­stjóri í banka á þessum tíma, var á kafi í allt öðrum hlutum og var aðal­lega starf­andi innan kirkj­unnar um kvöld og helgar. Við pabbi erum um margt lík en samt að mörgu leiti afar ólík, við höfum ólíka styrk­leika.

Sig­ur­börg segir sig ekki hefði getað tekið mál pabba síns meira inn á sig þótt hún hefði  hefði lent í því sjálf. „Ég held að að fólk átti sig ekki á hvað svona ásak­anir geta haft mikil og djúp­stæð áhrif á fjöl­skyldu þess sem verður fyrir en þetta var ein erf­ið­asta reynsla lífs míns og ég veit að systk­ini mín segja sömu sögu“.

Snúinn og erfiður tími

„Þetta var óskap­lega erfitt en þarna æxl­uð­ust mál þannig að ég var sett inn í hlut­verk sem ég hafði aldrei séð fyrir mér og var aldrei í minni áætlun. Ritn­ingin kennir að vegir Guðs eru órann­sak­an­legir og þá svo sann­ar­lega við í mínu til­felli.  Án þess að fara of djúpt í það þá var þetta snú­inn og erf­iður tími en á sama tíma óskap­lega lær­dóms­ríkur.

Mála­rekstur gegn pabba hélt áfram og þetta var grið­ar­legt áfall sem tók veru­lega á hann og okkur öll fjöl­skyld­una. Á þessum tíma var ég ekki búin að takast á við öll gömlu áföllin sem ég var enn að burð­ast með”.

Gunnar Þor­steins­son.

Hún segir árin 2011 og 2012 hafa verið sér­stak­lega erfið og hún hafi verið að keyra sig út. „Ég er rosa­lega orku­mikil og fær­ist mikið í fang. Yfir­leitt vinn ég á við þrjá, sem er ekki snið­ugt”, segir hún og hlær.  „Ég mæli ekki með því! En á þessum tíma, þegar ég er verð fyrir per­sónu­legum áföllum á öllum sviðum, leita ég mér loks­ins hjálpar, fór til fag­að­ila sem hjálp­aði mér að vinna í sjálfri mér og guð minn góður hvað það var gott!”

Undirlögð af áfallastreituröskun

Hún segir að þrátt fyrir að fjöl­skylda hennar hafi mikið verið í sviðs­ljós­inu á árum áður séu þau afar prí­vat fólk. „Ég er ekki mikið í við­tölum og slíku og lengi vel vissi ég ekki að ég þyrfti á hjálp til að takast á við það sem ég hef gengið í gegnum. En þarna fékk ég loks­ins upp­lýs­ingar um að tauga­kerfið mitt hefði verið und­ir­lagt af áfallastreituröskun í tólf ár og það hjálp­aði mér mikið að gera upp mín mál, mál sem rekja má alveg til æsku.

Ég mæli eind­ergið með því að opna hjarta sitt, það er svo gott að fá lán­aða dóm­greind, ein­hverns sem heyrir. Það sama ger­ist við bæn­ina, við léttum á hjarta okkar við bæn og það er ein­hver sem heyrir. Það er mikil streitu­losun sem felst í bæn­inni“.

Þurfti að læra að setja heilbrigð mörk

Sig­ur­björg segir að ef til hljómi það ein­kenni­lega en hún sé smá efa­semda­mann­eskja. ,,Ég er alinn upp af Gunnari og Ingu sem eru alveg brenn­andi í trúnni, en mín trú er ekki eins og þeirra. Við upp­lifum öll hlut­ina ólíkt.  Það er ekki nóg fyrir mig að vera sagt eitt­hvað, ég verð að finna og upp­lifa sjálf. Ég væri sjálf­sagt ekki trúuð í dag nema fyrir per­sónu­lega trú­ar­reynslu þar sem ég hef fundið fyrir nær­veru Guðs. Hann hefur verið mér ljós á vegi mínum í erf­iðum kring­um­stæðum.Það jafn­ast ekk­ert á við þá full­vissu að maður er ekki einn á erf­iðum vegi. Það er ein­hver æðri sem sér um mig”

Hún segir að hún hafi reyndar vitað hvað hún þurfti að gera þegar hún tal­aði við sál­fræð­ing­inn. „En ég þurfti að fá stað­fest­ingu því maður hefur til­hneig­ingu til að efast um sjálfan sig. Þarna fékk ég loks­ins nafn á það sem var að hrjá mig.  Ég hafði til dæmis ekki hug­mynd um að ég væri með­virk og þurfti að læra að setja mér heil­brigð mörk.”

Er allt önnur manneskja

Hún seg­ist telja það öllum hollt að vinna í sjálfum sér, flokka hlut­ina og taka til í gömlu dóti og vinsa frá. „Ég lærði svo mikið um hvað er heil­brigt fyrir mig og mína fjöl­skyldu. Ég var til dæmis alin upp við það að heim­ilið okkar væri opið allan sól­ar­hring­inn en það er ekki þannig hjá mér í dag. Einkalíf minnar fjöl­skyldu er mér afar mik­il­vægt. Ég elska að þjóna fólki og sjá það blómstra en ég elska líka að vera heima í róleg­heitum með fólk­inu mínu. Lífs­við­horf mitt hefur breyst stór­kost­lega á síð­ustu tutt­ugu árum, ég er allt önnur mann­eskja og hef lært að leyfa kring­um­stæð­unum að móta mig, mýkja og breyta.”.

„Drengurinn minn deyr“

 Talið berst að fjöl­skyld­unni og Sig­ur­björg hrein­lega lýs­ist upp af stolti og gleði yfir börn­unum sínum.

„Ég eign­að­ist tví­bura nokkrum árum eftir lát ömmu, strák og stelpu, fimm vikum fyrir tím­ann, sem ekki er óeðli­legt þegar um fjöl­bura er að ræða. En dreng­ur­inn minn deyr og er end­ur­lífg­aður. Hann varð fyrir súr­efn­is­skorti, var gríð­ar­lega veikur og okkur var sagt að það væru helm­ings­líkur að hann hefði það af. Í kjöl­farið missi ég algjör­lega tökin á áfallastreiturösk­un­inni og dreymdi á hverri nóttu að ég væri að missa börnin. Þarna var ekki komin í gang umræða um afleið­ingar af áfallastreituröskum né hvað væri hægt að gera”.

Tví­burarnir Hulda María og Gunnar gengu i gegnum erfið veik­indi sem börn.

Þremur árum seinna gerð­ist það að dóttir Sig­ur­bjargar fékk heila­himnu­bólgu og missti hluta af sjón­inni en var mjög lánsöm að lifa það af. „Það grein­ast kannski þrjú slík til­felli á ári svo bæði börnin mín hafa verið mjög lífs­hættu­lega veik og glíma við ákveðnar afleið­ingar af því. Þú sérð það samt aldrei á þeim, þau eru ótrú­lega flott og frá­bær bæði tvö, svo mikil guðs­gjöf”.

Það mátti ekki seinna vera

Læknir, sem kom heim heim til þeirra, sagði þeim hjónum að ekki væri ástæða til að hafa áhyggjur af stelp­unni en Sig­ur­björgu fannst þá eins og tekið væri utanum sig og henni sagt að fara með barnið upp á spít­ala. „Ég er sann­færð um að þarna var æðri kraftur að verki því það mátti ekki seinna vera. Hún fór beint í önd­un­ar­vél og lækn­ir­inn sagði að hún hefði ekki lifað það af hefði hún verið heima. Þarna fann ég svo vel hvað það er passað upp á okkur og hvernig ég er látin vita þegar mikið liggur við. Mér finnst ég svo lánsöm að eiga trúna”.

Þegar sonur Sig­ur­bjargar var var fjög­urra ára var hann greindur með ódæmi­gerða ein­hverfu og lækn­ir­inn vildi meina að þar hafi súr­efn­is­skort­inum í fæð­ingu verið um að kenna. „Við höfðum verið vöruð við því að lífið gæti orðið honum mjög erfitt en ég er mjög ánægð með að segja frá því að ekk­ert af þessu hefur stað­ist og bæði hann og systir hans eru glæsi­legt og heil­brigt ungt fólk með fram­tíð­ina fyrir sér“. 

Allir voru í áfalli

Margir voru í sárum eftir að ásak­an­irnar á hendur Gunnari komu fram á sínum tíma. „Þetta var erfitt fyrir alla, ekki bara mig heldur og fjöl­skyld­una og kirkj­una. Allir voru í áfalli og það varði í tölu­vert langan tíma. Að því kom að við lok­uðum Kross­inum og stofn­uðum aðra kirkju árið 2014. Hún heitir Smára­kirkja og stendur fyrir allt aðra hluti en Krossinn gerði í gamla daga”.

Gunnar er ekki safn­að­ar­með­limur og það er ekki mikið sam­band á milli feðgin­anna en hann býr á Spáni. Þau hitt­ast þó reglu­lega, til dæmis í fjöl­skyldu­boðum.

Erum mun frjálslyndari

Sig­ur­björg segir Smára­kirkju mun frjáls­lynd­ari en Krossinn var. „Það eru til dæmis engar reglur fyrir kven­fólk varð­andi klæða­burð eða annað slíkt heldur tókum við allt út sem okkur fannst ekki passa. Við höfðum reyndar gengið í gegnum ákveðið breyt­inga­tíma­bil innan Krossins, afnumið ýmis höft, aukið jafn­rétti kynj­anna og margt hafði breyst til batn­aðar, en við tókum þetta skref­inu lengra. Við í Smára­kirkju stöndum fyrir aðra hluti, t.d. ekk­ert kynja­mis­rétti og ég trúi því ekki að það sé gott fyrir nokkurn mann að vera bar­inn í haus­inn með Bibl­í­unni. 

Sig­ur­björg trúir því að kær­leik­ur­inn breyti fólki. „Ég stend ekki í því að gera lítið úr ákveðnum þjóð­fé­lags­hópum því við erum öll ólík. Það er eng­inn betri en annar, en það sem við eigum sam­eig­in­legt er að öll þurfum við á gæsku og ást guðs að halda. Ég vil að kirkjan lyfti fólki upp, leyfi því að blómstra og verða besta útgáfan af sjálfu sér með Guðs hjálp“.

„Líf mitt hefur verið blessað“

„Ég hef verið blessuð í líf­inu og fundið að ég er elskuð. Ég vildi óska að allir myndu finna það. Það hafa verið erf­ið­leikar en það er hluti af líf­inu. Málið er að halda áfram, burt­séð frá því sem hefur gengið á. Sumir leyfa hjörtum sínum að harðna en ég vil að hjarta mitt mýk­ist og ég nái að verða dýpri mann­eskja. Það eru erf­iðu kring­um­stæð­urnar sem móta okkur og færa okkur þá reynslu sem gefur okkur sam­kennd. Við þurfum meiri sam­kennd og kær­leika í heim­inn, eig­in­leik­ann til að geta sett sig í spor ann­arra. Ef meiri sam­kennd væri ríkj­andi væru engin stríð háð.

Tví­burarnir eru hraust og flott ungt fólk með fram­tíð­ina fyrir sér.

Ég gæti ekki verið ham­ingju­sam­ari þrátt fyrir þessi áföll. Líf mitt hefur verið blessað“.

Trúir á von­ina og kraft­inn í trúnni

Sig­ur­björg trúir á von­ina og kraft­inn í trúnni. „Trúin er svo mikið meira en að trúa á ein­hvern sem þú sérð ekki og er óskil­greindur. Trúin á Jesú virkar þannig að upp­risu­kraftur hans býr í hjart­anu. Fyrir mig virkar það þannig að hann reisir mig upp þegar ég geng í gegnum dimman dal, eitt­hvað sem við öll lendum í á ein­hverjum tíma­punkti í líf­inu. Ég finn hvernig hann er með mér í öllum aðstæðum lífs­ins. Af hverju ger­ast erf­iðir hlutir í líf­inu?  Ég hef ekki hið end­an­lega svar við því en eitt veit ég að allar kring­um­stæður, bæði erf­iðar og gleði­legar geta haft áhrif á okkur til góðs. Það fer allt eftir því hvernig við bregð­umst við kring­um­stæðum og afstöðu okkar til hlut­anna,“ segir Sig­ur­björg, ham­ingju­söm, stolt og ein­læg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu