„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Pólitískar barnaverndarnefndir slegnar af: „Ég vona innilega að mér verði treyst“

Pólitískar barnaverndarnefndir slegnar af: „Ég vona innilega að mér verði treyst“
Fyrir þing­lok í gær­kvöldi voru sam­þykktar á Alþingi rót­tækar breyt­ingar sem félags- og barna­mála­ráð­herra lagði til á barna­vernd­arlögum. Inn­leið­ing Barna­sátt­mála þar með talin.

Barna- og fjöl­skyldu­stofa leysir Barna­vernd­ar­stofu af hólmi innan skamms, ný Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála tekur við af Gæða- og eft­ir­lits­stofnun í félags­þjón­ustu og barna­vernd ásamt því sem laga­breyt­ing sem þingið sam­þykkti nú á föstu­dag og snýr að stefnu­mót­andi kerf­is­breyt­ingu á starf­semi Grein­ingar- og ráð­gjaf­ar­stöðvar rík­is­ins markar lang­þráð tíma­mót, að mati margra, í sögu mann­rétt­inda á Íslandi.

Félags- og barna­mála­ráð­herra, Ásmundur Einar Dav­íðs­son, segir stærstu kerf­is­breyt­ingar í mál­efnum barna í ára­tugi eiga sér stað nú við þing­lok, en fjögur frum­vörp voru leidd í lög nú á föstu­dag sem ætlað er að marka upp­haf að nýju og öfl­ugra vel­ferð­ar­kerfi fyrir börn.

Þá ætla íslensk stjórn­völd að marka skil­greinda stefnu og áætlun til að fylgja eftir inn­leið­ingu Barna­sátt­mál­ans. Ásmundur Einar segir rót­tæka stefnu stjórn­valda auk aðgerða­á­ætl­unar um Barnvænt Ísland sem hefur nú hlotið sam­þykki þing­heims ætl­aða til að skipa þjóð­inni í fremstu röð þegar að röddum og rétt­indum barna komi. Þá verði póli­tískar barna­vernd­ar­nefndir með öllu lagðar niður og sér­hæft fag­fólk muni gegna slíkum stöðu­gildum héðan í frá.

Ásmundur Einar ætlar að umbylta vel­ferð­ar­málum barna

Barna­vernd­ar­um­dæmi um allt land verða stækkuð og minnstu barna­vernd­ar­um­dæmin sam­ein­ast. Ráðherra segir breyt­ing­arnar gerðar til að tryggja fag­mennsku og í ein­hverjum til­fellum muni draga úr per­sónu­legri nánd milli ein­stak­linga með vísan til smærri lands­hluta þar sem inn­byrðis tengsl íbúa geti og hafi gert barna­vernd­ar­mál í hverju umdæmi flókn­ari en ella.

Þá muni barna­vernd­ar­mál flytj­ast sjálf­krafa milli umdæma með reglu­gerð­ar­breyt­ing­unni en svo hefur ekki verið til þessa. Þannig hefur Barna­vernd­ar­stofa til þessa úrskurðað í mál­efnum barna og for­eldra sem flytj­ast lands­hluta á milli meðan mál er til með­ferðar. Af þessu má því lesa að und­an­þágur Barna­vernd­ar­stofu sem hafa gert barna­vernd­ar­nefndum í stökum umdæmum til að fylgja máls­með­ferð áfram og í ein­hverjum til­fellum hindra búferla­flutn­inga lands­hluta á milli muni heyra sög­unni til. „Þar með verður ekki lengur óbeinn hvati til að flytja milli umdæma til að fresta inn­gripum þar sem þeirra er þörf,“ segir ráð­herra jafn­framt. „Ég tel að þessar breyt­ingar muni reyn­ast börnum og fjöl­skyldu sem nýta sér þjón­ustu barna­vernd­ar­yf­ir­valda vel og að þær verði til mik­illa bóta fyrir kerfið í heild.“

Ráðherra segir laga- og skipu­lags­breyt­ingar í mál­efnum barna á Íslandi vera löngu þarfar og heilla­skref fyrir íslensku þjóð­ina og segir mála­flokk­inn hafa verið stærsta áherslu­mál sitt í ráð­herra­emb­ætti. „Við erum rétt að byrja þegar kemur að breyttum áherslum í þessum málum,“ segir Ásmundur Einar. „Enda eru börn besta fjár­fest­ingin sem hvert sam­fé­lag getur ráð­ist í. Á annað þús­und manns hafa komið að þessum málum. Ég vil þakka ykkur öllum,“ segir ráð­herr­ann jafn­framt. „Þetta hefði ekki verið hægt án ykkar. Ég er ótrú­lega ánægður með þann árangur sem við höfum náð í þessum málum. Munum samt að þetta er bara fyrsta skrefið,“ klykkir félags- og barna­mála­ráð­herra út með á Facebook síðu sinni. „Ég vona inni­lega að mér verði treyst til að leiða þetta ferða­lag áfram. Við erum nefni­lega rétt að byrja!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins