„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sjóarinn Steingrímur missti mömmu sína 11 ára: „Ég lifi fyrir strákinn minn“

Sjóarinn Steingrímur missti mömmu sína 11 ára: „Ég lifi fyrir strákinn minn“

„Mamma mín lést af þessum fræga sjúk­dómi, krabba­meini, þegar ég var 11 ára gam­all, og þetta tók vissu­lega mikið á okkur bræð­urnar. Það var boðið upp á ein­hverja sál­fræði­tíma og maður tók sér sinn tíma að syrgja en þetta situr ennþá í manni í dag, það er alveg klárt mál,” segir Stein­grímur Helgu Jóhann­es­son, sjó­maður og vinnslu­tæknir, einnig þekktur undir nafn­inu, Sjóarinn en hann heldur úti vin­sælu hlað­varpi undir sama nafni.

Andlegt og sálarlegt áfall

Stein­grímur er fæddur í Eyjum árið 1984. „For­eldrar mínir fluttu til Eyja, þar sem ég fæð­ist því pabbi, sem hefur alltaf verið a sjó, þurfi að klára skól­ann. Við voru fjögur í fjöl­skyld­unni for­eldrar mínir og einn bróðir, Hörður Þór, sem var tveimur árum eldri en ég”.

Stein­grímur ætl­aði aldrei á sjó. Síðan eru liðin 17 ár og hann er enn á sjó.

Eftir að faðir Stein­gríms kláraði námið í Eyjum fluttu þau norður til Akur­eyrar. Nokkrum árum síðar skilja for­eldrar hans, og svo kemur að því að veik­ist móðir hans af krabba­meini. Stein­grímur og Hörður bjuggu þá hjá móður sinni, gengu með henni í gegnum veik­indin og að því kom að þeir misstu hana langt um aldur fram. Stein­grímur er þá í fjórða bekk grunn­skóla.

„Þá fluttum við til pabba, hann bjó á öðrum stað og af ein­hverjum ástæðum er ég lát­inn sleppa einu skóla­ári og sendur beint upp í sjötta bekk. Ég missti mikið úr nám­inu og í dag finnst mér þetta hafi fokkað upp skóla­göng­unni minni. Maður missir ein­hvern vegin allt vit við svona áfall og það hefur mikil áhrif á allt batt­er­íið, bæði and­lega og sál­ar­lega. En svo heldur lífið bara áfram”.

Er fínn bakari

Svo liður árin og Stein­grímur próf­aði sig áfram í skóla­kerf­inu. En hann var rót­laus og átti erfitt að finna sig í nám­inu.

„Ég er líka svo hvat­vís að þegar ég fæ hug­mynd, stekk ég bara á hana. Ég fór á almennu braut­ina, fór í málm­inn og bif­véla­virkj­ann auk þess að fara á mat­væla­braut. Ég ætl­aði mér reyndar alltaf að verða bak­ari og var á vinna í bak­arí á yngri árum. Mér finnst alltaf gaman að baka þótt ég geri reyndar of lítið af því í dag. Ég tel mig aftur á móti vera fínan í því. Ég ætl­aði alltaf í bak­ara­námið en svo ger­ist það að ég kynn­ist sjónum”.

Stein­grímur hefur unnið sem vinnslu­stjóri um borð í 12 ár.

Stein­grímur hafði aldrei hugsað sér að verða sjó­maður þótt bróðir hans, faðir, báðir afar og langa­far hefður allir verið sjó­menn og með seltu í æðum. „En ég sá mig aldrei í því starfi, ekki séns. En þegar ég var tví­tugur hringi ég í föður minn sem spyr hvort hann geti reddað mér túr á tog­ar­anum Snorra Sturlu­syni, þar sem hann var, og fékk svarið: „Ætlar þú að verða sjó­maður? Þú ert eng­inn sjó­maður drengur, þú ert með saumaputta“. Þeir tvö­föld­uð­ust nú með tím­anum reyndar”.

Ástæðan fyrir því að Stein­grímur vildi fara á túr var að hann var með yfir­drátt­ar­heim­ild sem hann vildi greiða upp. „En svo fékk ég túr, þótt óvanur væri. Þetta átti nú bara að verða einn túr og ég borg­aði yfir­drátt­ar­heim­ild­ina eins og skot.

Síðan eru komin 17 ár”.

Seldi allt og fór til Noregs

Aðspurður að því hvað hafi haldið honum til sjós segir hann sam­fé­lagið hafa verið svo gott í þessum fyrsta túr, góður mórall og góður andi.

„Við vorum eins og ein fjöl­skylda. Og að fá millu inn launa­reikn­ing­inn sinn tví­tugur, kallar auð­vitað annan á túr“. Stein­grímur fór síðan á Þór frá Hafn­ar­firði, sem þá var eitt afla­hæsta skip flot­ans og var þar frá 2010 til 2011.

Stein­grímur og fyrr­ver­andi unnusta hans skildu árið 2011 og var Stein­grímur þá til­bú­inn að prófa eitt­hvað nýtt.

„Sambandi var lokið, mamma látin, bróðir minn bjó í Noregi og mig lang­aði að breyta til.” Svo fór að Stein­grímur flutti til Noregs. „Það tók mig tvær vikur að fá pláss úti, ótalandi á norsku en redd­aði mér á ensku og dönsku­slettum. Svo kom norskan eins og skot”.

Þeir bræður Stein­grímur og Hörður á góðri stundu.

„Þegar ég mæti um borð sé ég að það býr helm­ing­ur­inn af áhöfn­inni út um alla Evrópu enda borgar útgerðin flug innan Evrópu. Og ég fer að hugsa með mér: „Steini? Af hverju flyt­urðu ekki bara til Spánar? Svo ég fer á ein­hverja síðu, finn hús á Costa Blanca og er búin að leigja það sam­dæg­urs. Fimm her­bergi og þrjár hæðir, sam­eig­in­leg sund­laug og hvað­eina. Svo lét ég bara útgerð­ina vita að ég vildi miða til Alicante“.

Stein­grímur bjó einn í þrjú ár á Spáni. Hann segir það hafa verið gott líf en hann hefði frekar kosið að búa þar með fjöl­skyldu. „Á Spáni er gott að djamma og djúsa og gerir kannski helst helst til mikið af því þegar maður er mánuð úti á sjó og mánuð heima. Þetta er eins og langt frí á mán­að­ar­fresti. Ég kom mér vel fyrir og þetta var góður tími“.

Mikael Helgi er auga­steinn föður síns.

Árið 2014 flutti Stein­grímur til Íslands. „Ég komst að því að ég átti von á barni eftir í frí árið 2013. Ég vildi að sjálf­sögðu vera með í þessu ferli með vin­konu minni og barns­móður og sonur minn er ein mín almesta gæfa í líf­inu”. Í dag er sonur Stein­gríms, Mikael Helgi, auga­steinn­inn hans.

Árni liðu, Stein­grímur hélt áfram á sjó og sá um upp­eldið á syni sínum ásamt móður hans. Svo skall á annar sorg­ar­við­burður.

Fékk þvílíka höggið

„Í fyrra var ég á frysti­tog­ar­anum Tómasi Þor­valds­syni frá Grinda­vík þegar ég fékk sms í morg­un­kaff­inu frá pabba um að hafa strax sam­band og það varð­aði bróður minn. Ég hrein­lega vissi hvað hafði gerst þegar ég fékk þessi skila­boð. Ég mun aldrei geta útskýrt það en ég fékk því­líka höggið. Það tók mig nokkrar mín­útur að hringja í pabba sem sagði prest hafa bankað upp á um nótt­ina og látið vita að Hörður væri dáinn”.

Hörður bjó úti á Spáni þegar hann hafði lést, hann hafði heim­sótt Stein­grím þangað og liðið vel. Þar bjó hann ásam þremur Scheferhundum sínum. „Það er að kvöldi 2. júní sem nágrann­arnir fóru að hafa veru­legar áhyggjur, eng­inn hafði séð Hörð, allt var dregið fyrir og hund­arnir geltu stans­laust. Það var hringt á lög­regl­una sem braust inn og kom að Herði látnum og hafði hann þá dáið deg­inum áður, aðeins 39 ára gam­all”.

Dán­ar­or­sök Harðar var hjarta­á­fall.

Öskraði úr mér líftóruna

Stein­grímur beygir af, minn­ingin er honum aug­ljós­lega afar sár.

„Fólk byrj­aði að spyrja um ein­hverjar kjafta­sögur, eit­ur­lyf eða áfengi en það var aldrei neitt slíkt slíkt. Hann hafði lengi barist við asma en hvort það átti þátt í þessu veit ég ekki”.

Feðgarnir við gröf Harðar. Blessuð sé minn­ing hans.

Stein­grímur segir heim­inn hafa hrunið í kringum sig við frétt­irnar. „Ég var þarna um borð í nýju skipi, með 30 manna áhöfn sem varla þekkti mig en það var ein­stakt hvað þeir tók mig að sér og hugs­uðu vel um mig. Skip­stjór­inn tók þá ákvörðun að koma mér strax í land, sem ég er mjög þakk­látur fyrir, því þetta var ekki svona á árum áður. Þá var ekk­ert verið að fara með menn í land út af fæð­ingum barna eða frá­föllum ást­vina. Þú varðst bara að vinna þína vinnu, þetta er miklu mann­legra í dag. Fólki var ekki leyft að syrgja eins og gert er í dag”.

Stein­grímur fór á land á Vest­fjörðum og leigði sér bíla­leigu­bíl til að kom­ast til Reykja­víkur. „Það var hel­víti á jörðu. Eg var svo reiður og sorg­mæddur og sá ekki út úr aug­unum á mér fyrir tárum. Ég keyrði og öskr­aði og var hrein­lega ekki með­vit­aður um hvað ég var að gera, það er blessun að ég keyrði ekki út af enda í engu ástandi til aka bíl. Ég man að ég stopp­aði bíl­inn, fór út í fjöru og öskr­aði úr mér líf­tór­una á meðan ég kall­aði á bróður minn. Ég missti rödd­ina í fjóra daga á eftir þetta. Þetta er mín stærsta sorg”.

Stein­grímur segir það hafa bjargað sér að Sigrún, kærasta hans, ók á móti honum og stóð eins og klettur við hlið hans í gegnum þessa erf­iðu tíma.

Sagnfræðilegar heimildir sem ber að viðhalda

Talið berst að hlað­varp­inu Sjóarinn.

„Afi minn móð­ur­ætt, Hörður Snorra­son úr Hrísey, var sjó­maður allt sitt líf og afi minn í föð­ur­ætt, Stein­grímur Aðal­steins­son var það einnig en ég náði því miður aldrei að hitta hann því hann lést áður en ég fædd­ist. Ég hef alltaf haft gaman af sögum þeirra og oft hugsað út í hvað ég hefði viljað hlusta á sög­urnar hans afa Steina því hann átti langan og merki­legan feril á sjónum. Núna er það svo magnað að ég er að fá menn í við­töl til mín sem voru á sjó með honum og margir verða stein­hissa við að frétta að að Steini var afi minn“.

Stein­grím dreymir um að skrá­setja sögur sjó­manna for­tíð­ar­innar, sög­urnar sem eru að deyja út.

Stein­grímur hafði lengi verið að hlusta á alls kyns hlað­vörp en fund­ist vanta að fjallað væri um sjó­mennsku. „Ég legg mestu áhersl­una að fá menn inn sem voru á sjó í gamla daga, frá stríðs­ár­unum og upp úr því því hér er um sögu­legar heim­ildir að ræða. Ég er reyndar með bland­aðan aldur og konur að sjálf­sögðu líka, því þær hafa auð­vitað líka verið á sjó en mér finnst eins þessi heimur á sjónum hér áður fyrir sé gleymdur. Það má aldrei gleyma því að það var sjó­mennskan sem byggði upp þetta land og það er lítið talað um for­tíð­ina í dag og hvað mikið hefur breyst á skip­unum. Þróunin til dæmis í fatn­aði, aðbún­aði og örygg­is­málum er eins og svart og hvítt frá því sem áður var”.

Elsti við­mæl­andi Stein­gríms er Svavar Bene­dikts­son sem er níræður. „Alveg magn­aður sá maður, man allt og við þurftum tvo þætti”.

Dreymir um að viðtalshring

Stein­grímur seg­ist hafa gaman af tala við fólk, vissu­lega sé snúið að fá allt til að ganga upp þar sem hann er í fullri vinnu með hlað­varp­inu en það gangi vel að ná í við­mæl­endur og hann muni halda þessu áfram.

Feðgarnir njóta lífs­ins saman.

Hann dreymir um að fara um landið og safna sögum af sjónum alls staðar að.

„Mig langar virki­lega að taka við­tals­ferð um allt landið, það væri til dæmis geð­veikt að fara á Vest­firð­ina og taka eitt við­tal í hverjum bæ. Það kostar aftur á móti en það kallar á fleiri styrkt­ar­að­ila”.

„Það er magnað að fá þessa frá­bæru sagn­fræði beint í æð frá mönn­unum sem upp­lifðu hlut­ina, ekki bara frá öðrum, þriðja eða fjórða aðila. Við erum að missa þessa kyn­slóð og þurfum að heyra sögu þeirra áður en það verður of seint”.

Stein­grímur nýtur þess sem hann er að gera í dag þótt hann telji ekki óhugs­andi að fara að koma sér í land áður en langt um líður.

„Ég tek einn dag í einu, lífið er ósann­gjarnt og ekki alltaf dans á rósum. En ég lifi fyrir fólkið mitt og strák­inn minn. Það er það sem lífið gengur út á,” segir Stein­grímur.

Það má heyra hlað­varps­þætti Stein­gríms hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins