„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gunnar var tekinn af lífi með skammbyssuskoti í hnakkann: „Ég varð of­boðs­lega hræddur“

Gunnar var tekinn af lífi með skammbyssuskoti í hnakkann: „Ég varð of­boðs­lega hræddur“

Snemma í jan­ú­ar­morgni árið 1968 fannst 43 ára gam­all leigu­bíl­stjóri hjá Hreyfli, Gunnar Sigurður Tryggva­son, skot­inn í hnakk­ann í bif­reið sinni við Laugalæk í Laug­ar­nesi. Á vett­vangi morðs­ins fannst skot­hylki úr 32 kali­bera skamm­byssu en síðar kom í ljós að byss­unni hafði að öllum lík­indum verið stolið af heim­ili Jóhann­esar Jós­efs­sonar, oft­ast kenndan við Hótel Borg, nokkrum árum fyrr, en Jóhannes hafði verið þekktur byssusafn­ari.

Aðeins átta þús­und ein­tök höfðu verið fram­leidd af umræddri byssu og þótti ljóst að henni hefði verið smyglað til lands­ins þar sem aðeins lög­regla hafði rétt til að hafa slíkt vopn undir höndum.

Ríflega 53 árum síðar er málið enn óupp­lýst.

Talið um ránmorð að ræða

Það voru veg­far­endur sem til­kynntu málið til lög­reglu. Bifreið Gunnars reynd­ist í gangi, bið­ljósin tendruð og sat Gunnar undir stýri með skotsár hægra megin á hnakk­anum. Gjald­mælir bif­reið­ar­innar var í gangi og þá var búið að taka annað af tveimur veskjum Gunnars. Taldi lög­regla því að um rán­morð væri að ræða.

Lögregla hóf þegar leit að hverjum þeim sem hefðu orðið varir við manna­ferðir í hverf­inu um nótt­ina auk þess kannað var hvort leigu­bif­reiðar eða aðrar bif­reiðar hefðu tekið upp far­þega nálægt morð­staðnum.

„Við mæl­umst ein­dregið til þess að fólk hafi sam­band við okkur hið bráð­asta ef það telur sig geta gefið ein­hverjar upp­lýs­ingar, hvað litlar sem þær kunna að virð­ast,“ sagði Ingólfur Þor­steins­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, á fundi með frétta­mönnum síðar þennan sama dag.

Fólk var fyllt miklum óhug yfir mál­inu og var um fátt annað talað en þennan skelfi­lega glæp sem vart mátti kalla annað en aftöku.

Og dagarnir liðu

Gjald­mælir bíls­ins var enn í gangi og gat því lög­regla áætlað dán­ar­tíma Gunnars. Var álitið að hann hefði lát­ist á tíma­bil­inu frá klukkan 05.15 til klukkan 06.00 þennan morgun. Ferðir hans þessa nótt voru skoð­aðar og var síð­asta skráða ferð hans rétt fyrir klukkan 4 um nótt­ina.

Hvað hann gerði frá þeim tíma þar til hann lést er ekki vitað. Dagarnir liðu en ekki tókst lög­reglu að finna neinar frek­ari vís­bend­ingar í mál­inu. Ákváðu leigu­bíl­stjórar hjá Hreyfli að veita hverjum þeim sem gæti gefið upp­lýs­ingar um morð­ingja Gunnars hund­rað þús­und krónur.

Í DV segir að hreyf­ing hafi ekki kom­ist á málið fyrr ári síðar þegar að hjón í Reykja­vík sem höfðu leyst til sín leigu­bif­reið, og voru að þrífa hana, fundu full­hlaðna skamm­byssu í hanska­hólf­inu. „Leigu­bíl­stjór­inn sem hafði misst bif­reið­ina kom að heim­ili hjón­anna til að sækja eigur sínar og tók hann þá eftir því að byss­una vant­aði. Sagðist hann vilja fá hana aftur en hjónin neit­uðu og sögðu að hana yrði hann að sækja til lög­regl­unnar. Hann hafði sam­band við lög­reglu og sagð­ist hafa fundið umrædda byssu upp úr miðjum jan­úar árið 1969 á gólfi leigu­bif­reiðar sinnar.

Ítarlega var fjallað um málið í þætti Sannra íslenskra saka­mála og var þar umræddur leigu­bíl­stjóri kall­aður Sigurður. Hann neit­aði alfarið sök en var vist­aðu gæslu­varð­hald þar sem dvaldi í 11 mán­uði. Hann hélt fast við þá sögu að hafa fundið byss­una í bif­reið sinni þegar hann var að þrífa hana. Farið var með byss­una til rann­sóknar hjá banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni, FBI, þar sem í ljós kom að um var að ræða sömu byssu og notuð var í morð­inu á Gunnari.

Breytti framburði sínum

Enn fremur segir í grein DV: „Við hús­leit á heim­ili Sigurðar fund­ust tvær byssu­kúlur, önnur var sömu teg­undar og notuð var í morð­inu á Gunnari. Þar að auki fannst lyk­ill á lykla­kippu Sigurðar að heim­ili hót­el­stjór­ans á Borg og sagð­ist Sigurður við yfir­heyrslur ekki vita hvernig hann hefði kom­ist þangað. Kona Sigurðar sagði að hann hefði sofið við hlið sér alla nótt­ina þegar morðið var framið. Þremur og hálfum mán­uði eftir að Sigurður var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald vildi Sigurður leið­rétta fram­burð sinn.

Sagði hann að nokkrum árum áður hefði hann verið staddur í sum­ar­húsi hót­el­stjóra Hótels Borg og þar hefði hann tekið hálfan annan pakka af skamm­byssu­skotum. Í annað skipti hefði hót­el­stjór­inn hringt í hann og beðið hann að líta á bilað sjón­varps­tæki. Við þetta tæki­færi hefði hann stolið umræddri skamm­byssu og tekið hana með sér til að selja hana. Hann hefði geymt hana í bif­reið sinni en í milli­tíð­inni hafi bif­reiðin verið tekin vegna skuldar þar sem hún stóð í porti leigu­bíla­stöðv­ar­innar. Lyklana hefði hann skilið eftir í kveikjulásnum þar sem næt­ur­vörður gætti bif­reið­anna. Næt­ur­vörð­ur­inn sagð­ist ekki hafa orðið var við manna­ferðir umrædda nótt.

Sýknaður af morði

Í við­tali við Sönn íslensk saka­mál sagði Sigurður að heimska hans hafi orðið til þess að hann sagði ekki allan sann­leik­ann strax frá upp­hafi. Vitni sögðu að hegðun hans hafi ekki breyst dag­ana eftir morðið og virt­ist engin sýni­leg ástæða fyrir því að hann hefði átt að fremja morðið. Hann sagð­ist ekki hafa þekkt Gunnar, aldrei talað við hann en þó séð hann.

Svo fór að Sigurður var ákærður í mál­inu en sýkn­aður af morð­á­kæru en sak­felldur fyrir stuld á byss­unni. Einn dóm­ari skil­aði sér­á­kvæði og taldi hann sekan. Dómnum var áfrýjað til Hæsta­réttar sem stað­festi dóm hér­aðs­dóms, en líkt og í fyrra skiptið skil­aði einn dóm­ari sér­at­kvæði og vildi sak­fella Sigurð fyrir morðið. Í við­tal­inu í Sönnum íslenskum saka­málum sagði Sigurður að hann hefði verið ósáttur við mála­lyktir í ljósi þess að sér­at­kvæði var skilað og dóm­ur­inn var ekki sam­hljóða. „Maður er bitur eftir þetta og þetta er hlutur sem fer aldrei úr manni, aldrei.“

Frásögn Valgeirs

Sig­ur­steinn Másson, fjöl­miðla­maður rifj­aði upp málið í hlað­varp­inu Sönn íslensk saka­mál í fyrra þar sem fjallað eru um frá­sögn Val­geirs Skag­fjörð og hálf­systur hans Sigur­björgu Stein­dórs­dóttur frá árinu 1969. Eftir því sem þar fram kemur var þeim sem börnum þá ógnað af mann vopn­uðum skamm­byssu. Kynnti mað­ur­inn sig og sagð­ist heita Þráinn.

Sigur­steinn grunar að sá maður hafi verið Þráinn Hleinar Krist­jáns­son sem lést árið 2018. Hann varð ná­granna sínum að bana á Hverfis­götu árið 1979.

„Mamma var mjög veik mann­eskja, var virkur alkó­hól­isti og átti við geð­trufl­anir að stríða, og án þess að í­grunda það eitt­hvað á­kvað hún að ger­ast mál­svari vinar síns. Hún bjó til fjar­vistar­sönnun fyrir hann í þeirri von að hann yrði lát­inn laus, bjó til ein­hverjar sögur og flækti málin frekar en hitt. Þetta var ofsa­lega leiðin­legt og var ekki til þess að bæta þá óvissu sem ríkti í mál­inu,“ sagði Valgeir.

„Svo var það einn sunnu­dags­morgun, um ári eftir morðið, að mamma var ein­hvers staðar úti á djammi og ég og eldri systir mín því ein heima. Þá kom allt í einu ein­hver maður inn í í­búð­ina okkar. Hann gekk bara inn, sett­ist við eld­hús­borðið okkar og dró upp skamm­byssu. Ég man að ég varð of­boðs­lega hræddur.“

Í við­tal­inu er haft eftir Val­geiri að mað­ur­inn hafi farið að sýna honum byss­una, þar sem hann hafi verið strák­ur­inn á heim­il­inu. Hann hafi síðan sagt við Val­geir að hann hafi myrt Gunnar leigu­bíl­stjóra. „Grun­ur­inn beind­ist að þessum vini mömmu af því að hann hafði verið að vinna um tíma hjá Jóhann­esi á Hótel Borg,“ sagði Valgeir í við­tal­inu. Lög­reglan fann byss­una sem talið er að hafi verið notuð við morðið, í hanska­hólfi leigu­bíls vinar mömmu Val­geirs sem í við­tali við DV sig ekki telja mjög gáfu­legt að geyma morð­vopn í hanska­hólf­inu á bílnum sínum og væri umhugs­un­ar­vert hvort byss­unni hefði verið plantað.

„En það eru margar sögur alltaf í gangi um þetta mál og maður veit ekki hverju maður á trúa.“

Vildi hreinsa saklausan mann

Sigur­steinn telur á­kveðin lík­indi með morð­unum tveimur en tekur fram að ekki sé hægt að full­yrða um slíkt. Sigur­steinn setti upp eigin sak­bend­ingu og sýndi syst­kin­unum fimm myndir og var ein myndin af Þránni. Bæði syst­kinin bentu, nú öllum þessum árum seinna á mynd númer þrjú, mynd af Þránni. Munu mað­ur­inn og móðir þeirra systk­ina hafa verið æsku­vinir og hafi hann sem leigu­bíl­stjóri oft skutlað þeim systk­inum.

Valgeir sagð­ist hafa ákveðið að tjá sig ef það mætti verða til þess að hreinsa hugsan­lega sak­lausan mann af á­sökun um framið morð. En ég get auð­vitað ekki dæmt um það, ég var bara krakki. En ég á­kvað samt að segja frá minni upp­lifun af þessu máli.“

Sigur­steinn Más­son sagði í Kast­ljósi um málið að ekki væri hægt að full­yrða um sekt Þráins en um væri að ræða sterka vís­bend­ingu.

„Ég er ekki með þessu að segja að þetta sé mað­ur­inn sem varð Gunnari Tryggva­syni að bana. Það er full á­stæða til í ljósi þess­ara upp­lýs­inga að skoða þetta betur. Nú er þessi maður, sem að hugsan­lega mögu­lega ógn­aði syst­kin­unum, lát­inn. Hann verður ekki sóttur til saka héðan í frá. Það liggur hins vegar ljóst fyrir að það var annar maður í 11 mán­uði í gæslu­varð­haldi grun­aður um morðið á Gunnari á sínum tíma. Hans fjöl­skylda, börn og barna­börn eiga líka rétt á því að fá að vita hvað raun­veru­lega gerð­ist þarna ef mögu­leiki er að varpa frekara ljósi á málið“.

Morðið á Gunnari Sigurði telst enn óupp­lýst og er enn opið hjá lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins