„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þegar Íslendingar voru sterkustu menn heims – „Hann vissi að hann var að deyja“

Þegar Íslendingar voru sterkustu menn heims – „Hann vissi að hann var að deyja“

Upp úr 1980 sat almenn­ingur sem límdur yfir túbu­sjón­vörp­unum sínum og fylgd­ist með feg­urð­ar­sam­keppnum og krafta­keppnum. Þessar tvær keppnir kynj­anna, ann­ars vegar í feg­urð og hins vegar styrk, voru gríð­ar­legar vin­sælar og vart var að finna það mæl­andi barn sem ekki gat nafn­greint fal­leg­ustu konu og sterkasta mann Íslands. Eða heims­ins, þegar svo bar við.

Þessi kvöldið lítur Bak­sýn­is­speg­ill­inn á krafta­karl­anna en vafa­laust mun annar líta til feg­urð­ar­dísa eyj­ar­innar í norðri.

Algjörir yfirburðir Íslendinga

Gríð­ar­legur áhugi land­ans á krafta­keppnum var að stórum hluti til Jóni Páli Sig­mars­syni að þakka en hann vann tit­il­inn „Sterkasti maður maður“ heims hvorki minna né fjórum sinnum og hafði eng­inn afrekað það áður. Kjarninn rak sögu keppn­innar og aðkomu Jóns Páls að henni árið 2015. Til hennar hafði verið stofnað árið 1977 sem alhliða afl­rauna­keppni þar sem keppt var um einn titli. Keppt var í ýmsum greinum eins og t.d. trukka­drátti, reipi­togi og lóða­kasti.

Keppnin var í upp­hafi hálf­gerð brella, gerð fyrir amer­ískt sjón­varp, og var fálega tekið. En á níunda ára­tugnum varð keppnin alþjóð­leg og þá komu íslenskir kepp­endur til leiks. Á árunum 1983 til 1996 má síðan segja að Íslend­ingar hafi haft algera yfir­burði á mót­inu. Án til­lits til höfða­tölu. Einna hæst reis áhug­inn árið 1992 þegar keppnin var haldin hér á landi.

„Þetta er ekkert mál fyrir Jón Pál“

Flestir vilja rekja æðið til Skúla Ósk­ars­sonar, kraflyft­ing­ar­manns, sem var braut­ryðj­andi í kraft­lyft­ingum á Íslandi. Hann keppti í ólympískum lyft­ingum árið 1970 og hóf strax að raða inn Íslands­met­unum. Eftir öxl á slysi skipti hann yfir í kraft­lyft­ingar. „Þetta virkar eins og grobb en þetta er bara stað­reynd. Ég var fyrstur kraft­lyft­inga­manna til að koma okkur á blað,” sagði Skúli við­tali við DV 2018 eftir að hafa verið tek­inn inn í heið­urs­höll ÍSÍ.

Skúli var ekki bara þekktur fyrir krafta sína heldur einnig lit­ríkan per­sónu­leika, æðru­leysi í fram­komu og virð­ingu fyrir mótherjum. Allt eig­in­leikar sem áttu eftir að ein­kenna krafta­karl­anna okkar á kom­andi árum. Skúli lagði lóðin á hill­una árið 1982 eftir að hafa verið tví­vegis verið kjörin íþrótta­maður árs­ins, árið 1978 og og 1980.

Þótt fleiri kraft­karlar hafi lagt sitt á vog­ar­skálar­innar með frá­bærum árangri, má segja að það hafi verið Jón Páll Sig­mars­son sem kom Íslend­ingum ærlega á kortið í krafta­keppnum kom­andi ára. Jón Páll varð súper­stjarna. Eins og Skúli varð Jón Páll gríð­ar­lega vin­sæll fyrir brosmildi sína og hnytt­inn til­svör.

„Þetta er ekk­ert mál fyrir Jón Pál“ og „Það er eng­inn til­gangur með líf­inu ef þú getur ekki gert dauða­lyftu“ eru meðal tveggja fræg­ustu til­vitn­ana í Jón Pál sem var með afbrigðum orð­hepp­inn þegar svo lá á honum.

Hið mesta ljúfmenni

Jón Páll var fæddur í Hafn­ar­firði árið 1960 og flutt­ist með fjöl­skyldu sinni til Stykk­is­hólms tveggja ára gam­all þar sem hann sýndi snemma af sér krafta við landa­bún­að­ar­störf í Skál­eyjum. Níu ára gam­all flutti Jón Páll til Reykja­víkur og hóf að æfa fjöl­margar íþrótta­greinar. Hann kynnt­ist lyft­ingum árið 1976 og eftir það var ekki aftur snúið.

Jón Páll hóf keppn­is­feril sinn árið 1979, jafnt í vaxta­rækt og kraft­lyft­ingum og árið 1981 varð hann fyrsti Íslend­ing­ur­inn að lyfta yfir 900 kg sam­an­lagt á Íslands­meist­ara­móti. Sama ár hlaut hann verð­launin Íþrótta­maður árs­ins og keppti í fyrsta sinn á „Sterkasti maður heims“ mót­inu og lenti í 3. sæti.  Hann vann keppn­ina Sterkasti maður heims sam­tals fjórum sinnum; árin 1984, 1986, 1988 og 1990 og lenti aldrei neðar en í þriðja sæti.

Jón Páll var elsk­aður og dáður jafnt innan lands og utan. Hann var harður keppn­is­maður, sann­kall­aður vík­ingur, innan vallar, en þótti hið mesta ljúf­menni utan keppni.

Sann­kall­aður kett­lingur.

Mikill harmadauði

Árið 1991 meidd­ist Jón Páll og Magnús Ver Magn­ús­son tók sæti hans á mót­inu. Magnús var hæg­lát­ari og menn bjugg­ust ekki við jafn miklu af honum og Jóni Páli. Hann sann­aði þó hvers hann var megn­ugur og sigr­aði á sínu fyrsta móti. Árið 1996 hafði hann unnið fjóra titla og þar með jafnað árangur Jóns Páls.

Það var þjóð­inn mik­illi harma­dauði þegar Jón Páll varð bráð­kvaddur við æfingar laug­ar­dag­inn 16. jan­úar 1993, aðeins 32 ára að aldri.

Á þessum árum var lítið rætt og enn minna vitað um afleið­inga stera­notk­unar sem var, og margir segja, er ríkj­andi í íþrótta­heim­inum. Fjöl­miðla­mað­ur­inn Sölvi Tryggva­son skrif­aði sögu Jóns Páls árið 2013 þar sem hann meðal ann­ars ræði stera­notkun Jóns Páls en lengi voru þessi mál tabú og ekki mátti orða að sterar hefðu átt þátt í frá­falli Jóns Páls. „All­ir vin­ir hans sögðu hins veg­ar við mig: „Ef Jón Páll væri á lífi í dag myndi hann pott­þétt vilja segja frá þessu og opna umræð­una,“ sagði Sölvi.

Meðal þess sem kem­ur fram í bók­inni er að Jón Páll leit­aði til vina sinna þar sem hann ræddi stera­notk­un sína og slæm­ar heilsu­fars­leg­ar af­leið­ing­ar sem hann upp­lifði. Hann vissi að hann var að deyja.

Gerði sér grein fyrir hvert stefndi

„Síðasta árið gerði hann sér grein fyr­ir hvert stefndi. Hann fór í lækn­is­rann­sókn til Banda­ríkj­anna en hann vildi ekki fara í rann­sókn hér­lend­is því hann var svo hrædd­ur við kjafta­gang­inn. Síðasta árið var hann far­inn að passa sig að borða ekki fitu og hlúa vel að sér því lækn­ir­inn vest­an­hafs hafði til­kynnt hon­um að hjartað í hon­um væri eins og í níræðum manni.“

Sölvi segir í við­tali við mbl að til­gang­ur­inn hafi engan veg­inn að sverta minn­ingu Jóns Páls og dragi bókin engan vegin úr afrekum hans en krafta­menn þessa tíma hafi notað stera og hafi hann staðið jafn­fætis þeim.

„Ástæðan fyr­ir því að Jón Páll varð sterk­asti maður í heimi var ekki sú að hann tók stera held­ur sú að allt hans líf snér­ist um æf­ing­ar, hann hafði ótrú­lega háan sárs­auka­þrösk­uld, góð gen og vilja­styrk,“ sagði Sölvi. „Það verður eng­inn svona sterk­ur af stera­notk­un og það er ágætt að all­ir þeir strák­ar sem eru að gleypa stera í dag heyri það; þannig verður maður ekki Jón Páll.“ sagði Sölvi.

Eftir frá­fall Jóns Páls missti þjóðin smám saman áhuga á keppn­inni um sterkasta mann­inn og við tók áhugi á góðu gengi í öðrum íþrótta­greinum á við hand- og fót­bolta og cross-fit.Keppnin er þó enn haldin en verður seint stór­frétt í íþrótta­f­réttum lands­manna í dag.

Nettur hroki og karlremba

Jón Páll skyldi eftir sig son­inn Sigmar Frey, sem var aðeins níu ára gam­all þegar að faðir hans lést. Sjálfur átti Sigmar eftir að nota mis­nota stera árum saman með skelfi­legum afleið­ingum, eins og fram kom í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Kveik árið 2018.

„Áhrifin voru í fyrstu bara stór­kost­leg. Það er alveg sama þótt þú notir stera, þú þarft að hafa fyrir því að verða stór og hrika­legur. Og ég þyngdi mig um ein­hver þrjá­tíu kíló. En í byrjun þá fannst mér þetta… þá var eig­in­lega bara gaman alla daga. Maður var bara fullur af testó­steróni, meira sjálfs­ör­yggi, það kom svona nettur hroki í mann og karl­remba. Og það var bara mjög gaman að vera til, til að byrja með. Og maður hugs­aði með sér: „Af hverju er maður ekki alltaf svona?“

„Svo fór maður að finna fyrir auka­verk­un­unum þegar leið á. Ég man að ég hætti að nota stera í heilt ár og hafði smá áhyggjur. Ég var ekki orð­inn þrí­tugur og ég fann að kyn­hvöt og kyn­geta kom ekk­ert til baka á heilu ári,“ sagði Sigmar Freyr í við­tali við Kveik.

Fjallið er framtíðin

Í úttekt Kjarnans er Hafþór Júlíus Björns­son sagður skara fram úr íslenskum kraf­t­í­þrótta­mönnum í dag. Hann varð heims­frægur fyrir það að leika Sandor Clegane, eða „Fjallið”, í sjón­varps­þátt­unum Game of Thrones og hefur það við­ur­nefni fest sig við hann enda 205 sm. á hæð og um 200 kíló.

„Það yrði jákvætt ef keppnin „Sterkasti maður heims“ yrði aftur jafn vin­sæl og hún var því hún reynd­ist okkur nefni­lega vel. Hún sýndi okkur í fyrsta skipti að við gætum keppt í íþróttum við aðrar þjóðir ….. og unnið”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins