„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Eina tilfinningin sem ég finn til pabba míns er reiði“

„Eina tilfinningin sem ég finn til pabba míns er reiði“

Klara Lind er 19 ára stelpa og aðstand­andi alkóhólista, hún er nýjasti við­mæl­andi hlað­varps­ins Það Er Von.

Báðir for­eldrar Köru glíma við fíkni­sjúk­dóm. Klara er opin með þessi mál. „Ég var einu sinni í bull­andi sjálfs­vor­kunn og sagði fólki hverju ég lenti í til að láta vor­kenna mér en í dag hata ég að fá vor­kunn. Ég er stolt að sjá á hvaða stað ég er í dag“.

Sat ein út í bíl fyrir utan strippklúbb

Klara bjó ein með pabba sínum eftir að for­eldrar hennar hættu saman. Uppeldi Klöru var óeðli­legt með meiru og segir hún í hlað­varp­inu frá nokkrum atvikum sem voru hluti af hennar dag­lega lífi: „Ég man eftir mér, ein úti í bíl, fyrir utan stripp­klúbb niðri í bæ meðan að hann var inni í nokkra klukku­tíma, ég spil­aði snake í sím­anum á meðan“.

Þegar Klara var hálfnuð með fimmta bekk, 10 ára gömul, hitti hún mömmu sína í fyrsta skipti en þá hafði mamma hennar náð tveggja ára edrú­mennsku. Ekki leið á löngu þar til mamma hennar féll og segir Klara að erfitt hafi verið að ákveða hvað hún ætti að kalla þessa konu sem hún þekkti ekki neitt. Megnið af tím­anum sem Klara bjó hjá mömmu sinni var hún inn og út úr með­ferðum og segir Klara það hafa verið erfitt.

„Það sem ég er samt þakk­lát fyrir er að hún var ekki í miklum sam­skiptum við mann þegar hún var í því, hún var mest lokuð inni á baði, inni í her­bergi eða úti. Ekki mikið að bjóða heim í partý“.

„Ég sagði barna­vernd að ég vildi ekki hitta pabba minn, hann beitti mig and­legu og lík­am­legu ofbeldi alla daga þegar ég bjó hjá honum. For­eldrar tveggja vin­kvenna minna til­kynntu og ég sýndi öll ein­kenni“.

Aðspurð segir Klara í við­tal­inu að hún sé reið út í kerfið þar sem systk­ini hennar voru ung sett í fóstur. Sjálf var Klara sett í fóstur á Akranesi í átt­unda bekk, fóstur sem átti aðeins að vera í tvo mán­uði meðan mamma hennar fór í með­ferð.

Klara hefur ekki talað við pabba sinn síðan hún lok­aði á hann eftir örlaga­ríka bíl­ferð fyrir átta árum:

„Eina til­finn­ingin sem ég finn til pabba míns er reiði“.

Vil ekki þróa með mér fíkn

Margt hefur breyst síðan hún fór í fóstur en hún er enn á Akranesi, hún fékk þar það sem hún þurfti og breytti það öllu eins og hún orðar það sjálf.

Klara segir frá fíkni­t­endensum og að hún leiti í mat og að versla ef henni líður illa. „Ég tók ákvörðun fyrir rúmum tveimur árum að sleppa áfengi alveg því það eru miklar líkur á að ég þrói með mér fíkn,” segir þessi skyn­sama unga stelpa.

Nánar má heyra sögu þess­ara mögn­uðu ungu konu í hlað­varpi Það Er Von, áföllum hennar, sigrum, sjálfs­vinnu, til­finn­ingum og öllu því sem hefur fylgt því að vera aðstand­andi og barn alkahólista og  að alast upp við mikið ofbeldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins