„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stúlkunafnið Kóbra samþykkt en Ailsa og Thea uppfylla ekki lagaákvæði

Stúlkunafnið Kóbra samþykkt en Ailsa og Thea uppfylla ekki lagaákvæði

Heimilt verður að skýra nýfædd stúlku­börn eig­in­nafn­inu Kóbra héðan í frá en Manna­nafna­nefnd kvað upp úrskurð þann 15. júní sl. og er stúlku­nafnið því komið á íslenska manna­nafna­skrá. Nafnið, sem nefndin segir sam­ræm­ast íslensku mál­kerfi, tekur íslensku eign­ar­falls­end­ing­una Kóbru [um Kóbru] og upp­fyllir því skil­yrði laga­á­kvæða um manna­nöfn.

Bertamí, Hneta og Viðey boðleg en hvorki Tatiana né Thea

Náð Manna­nafna­nefndar hafa hlotið á sex fyrstu mán­uðum árs­ins stúlku­nöfnin Amía, Arkíta, Bertamí, Egilína, Elizabeth, Estíva, Gulla, Hrafnrún, Hneta, Imma, Ingaló, Íren, Ísobel, Janey, Karlynja, Krossá, Róm, Róma, Sanný, Sturlaug, Sædóra, Venedía og Viðey. Undir fal­l­öxi Manna­nafna­nefndar á fyrri hluta árs 2021 höfn­uðu hins vegar stúlku­nöfnin Tatyana og Tatiana, en Tatíana var sam­þykkt sem rit­háttur nafns­ins Tatjana. Eig­innöfnin Ailsa og Alaia eru ekki talin boð­leg en nafn­mynd­irnar Alía og Alaía fær­ast þess í stað á nafna­skrá. Stúlku­nafnið Thea þykir ekki sam­ræm­ast íslenskum nafna­venjum og var synjað fyrr á þessu ári.

Gormur, Sólarr og Vetur má en hvorki Aliverti né Esjarr

Arman, Eli, Emill, Gormur, Gosi, Haron, Kuggi, Lucas, Martel, Myrktýr, Noah, Seres, Soren, Sólarr, Theo og Vetur hljóta einnig sam­þykki Manna­nafna­nefndar og hafa ný eig­innöfn drengja verið færð á íslenska manna­nafna­skrá það sem af er árið 2021. Drengja­nöfnin Aliverti, Alpha, Aquamann og Esjarr fá ekki hljóm­grunn Manna­nafna­nefndar, en mill­i­nöfnin Draum­land og Kvikan hreppa sæti á manna­nafna­skrá.

Bryn, Logn og Kaos bætast í hóp kynhlutlausra eiginnafna

Kyn­hlut­lausu nöfnin Bryn, Logn og Kaos hafa einnig hlotið skrán­ingu en Manna­nafna­nefnd sam­þykkti í lok síð­asta árs kyn­hlut­lausu eig­innöfnin Regn og Frost sem urðu þar með fyrstu kyn­hlut­lausu íslensku eig­innöfnin. Breyt­ing­arnar sam­ræm­ast lögum um kyn­rænt sjálf­ræði sem sam­þykkt voru á Alþingi í fyrra en kyn­hlut­laus nöfn eru, eins og nafn­giftin gefur til kynna, ekki bundin við kyn. Er því öllum heim­ilt að taka upp þau nöfn sem eru á manna­nafna­skrá, en sam­kvæmt laga­breyt­ingu hefur kyn­skrán­ing eig­in­nafna ekki lengur laga­legt gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannanafnanefnd

Má heita Ítalía en ekki Geitin
Innlentmannanafnanefnd

Má heita Ítalía en ekki Geitin

Ítalía og Lán er meðal þeirra eig­in­nafna sem Manna­nafna­nefnd sam­þykkti nú á dög­unum. Þá voru eig­innöfnin Erykah, Ullr, Leonardo, Gottlieb, Gunni, Élja­grímur, Arún og Lílú einnig sam­þykkt. Nefndin tók hins­vegar ekki vel í nöfnin Geitin, Frost­sól­arún, Heiðr og Winter og hafn­aði þeim hið snarasta. Mill­i­nöfnin Eldhamar og Kalda­kvísl upp­fylltu þó reglur nefndar og voru sam­þykkt sem mill­i­nöfn. Geitin var hafnað...
Innlent

Manna­nafna­nefnd sam­þykkir hvorki nafnið Lucifer né Lúsífer

Manna­nafna­nefnd hefur sam­þykkt sex beiðnir um ný nöfn í þessum mán­uði en hafnað fjórum beiðnum. Meðal þeirra nafna sem nefndin hafn­aði er nafnið Lúsífer. Nöfnin sem nefndin sam­þykkti eru karl­mannsnöfnin River, Ullur, Ivar og Birmir og kven­mannsnöfnin Hafalda og Hrafnsunna. Nöfnin sem nefndin hafn­aði eru kven­mannsnöfnin Hannalísa og karl­mannsnöfnin Theó og Bened til við­bótar við nafnið Lúsífer. „Þar sem nafnið...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins