„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Veðurfræðingur gefur lítið fyrir snjótíst norðanbúa: „Nú er kominn 18. júní“

Veðurfræðingur gefur lítið fyrir snjótíst norðanbúa: „Nú er kominn 18. júní“
Íbúar á Vopna­firði og Akureyri segja snjó í kortum: Mynd teng­ist frétt ekki beint / Mynd: King5

Haraldur Eiríks­son, veð­ur­fræð­ingur segir skúra­leið­ingar og vætu ríkja víða um land í dag, föstu­dag. Svalt verði áfram yfir helg­ina með rísandi hita á sunnu­dag. Hiti verður á bil­inu 7 til 10 stig víð­ast hvar en sval­ast verður nyrst á land­inu. „Já, morg­un­dag­ur­inn verður nokkuð svalur,“ segir Haraldur um laug­ar­dag­inn en vind­laust verði á Suð­ur­landi. „Þó munar litlu á milli lands­hluta.“

Þá vildi veð­ur­fræð­ing­ur­inn lítt kann­ast við snjó­komu á norð­ur­hluta lands­ins og sagði 3 – 5 stiga hafa ríkt á Akureyri í nótt. „Það snjó­aði ekki á Akureyri í nótt. Hins vegar var enn kald­ara fyrir norðan fyrir fáeinum dögum síðan og grám­aði á morgn­ana og víða á heiðum og fjöllum. En það er nú von­andi úr sög­unni.“

Sól­ar­þyrstir tístu um snjó­komu í höf­uð­borg norð­urs­ins nú í þess­ari viku og sagði Halldóra Birta þannig frá hrá­slaga­legu útsýni fyrir norðan á Twitter þann 16. júní sl. og deilir Kjartan Sverr­is­son í svari sínu ljós­mynd frá Vopna­firði þar sem fönn fellur til jarðar. Haraldur veð­ur­fræð­ingur segir hlýrra orðið og að ekki sé von á hreti í júní. „Nú er kom­inn 18. júní,“ svar­aði hann fyr­ir­spurn blaða­manns þegar tístin voru borin undir sér­fræð­inga Veð­ur­stofu nú í morgun. „Þessi vika var ansi köld og þessum kulda verður ekki spáð á næst­unni.“

Hverju megum við reikna með í júlí mán­uði? Haraldur veð­ur­fræð­ingur segir Veð­ur­stof­una gera viku­spá og lítið að marka lengri fram­tíð­ar­horfur í veð­ur­málum. Er von á hlýrra veðri og geta Íslend­ingar lagt lopa­peys­una frá sér á næst­unni? „Þetta er að fikrast upp á við. Það verður vænta­lega hlýrra í næstu viku. Enda hlýtur að koma sumar fyrr eða síðar hjá okkur hér á landi, næsta vika lítur alveg þokka­lega út. Helgin er bara svona, það má reikna með skúrum víða og vætu um allt land á morgun, eitt­hvað eimir þó eftir af skúrum á sunnu­dag en það verður voða lítið eftir af þeim.“

Vill veð­ur­fræð­ingur með þeim orðum meina að hægt verði að líta til sólar í næstu viku? „Jah, það á nú reyndar að ganga lægð yfir landið á mánu­dag og þriðju­dag og þá verður ekki mikil sól í kort­unum en það lítur betur út þegar líða tekur á næstu viku.“

Helg­ar­spá Veð­ur­stofu má lesa HÉR

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins