„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kristrún er í forystusæti Samfylkingarinnar: „Ekki gefandi að starfa við að meta nærbuxnaverð“

Kristrún er í forystusæti Samfylkingarinnar: „Ekki gefandi að starfa við að meta nærbuxnaverð“
Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

„Ég var mikið í tón­list þegar ég var yngri, byrj­aði í píanó­n­ámi fimm ára og tók það frá upp­hafi mjög alvar­lega eins og flestum verk­efnum sem barn. Ég var lík­lega óþarf­lega ábyrgt barn, mjög hlýðin. En ég kláraði sjö­unda stigið í klass­ískum píanó­leik. Fjöl­skyldan er mjög mús­ík­ölsk og þegar ég er átta ára vildi ég líka fara að læra á sax­ó­fón því mér fannst það svo smart hljóð­færi,“ segir Kristrún Mjöll Frosta­dóttir, 33 ára hag­fræð­ingur sem er odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík suður í kom­andi Alþing­is­kosn­ing­unum.

Lærði alla djammsöngva eldri kynslóðar

„En pabbi var snjall og sann­færði mig um að læra á harm­ónikku í stað­inn og samdi við Guðna, org­anista í Bústaða­kirkju, að kenna okkur systrum djamm­söngva eldri kyn­slóð­ar­innar,. Svo er ég bara átta, níu ára þegar ég er fengin til að spila undir fjölda­söng í öllum partýum. Þegar ég varð ung­lingur fannst mér þetta auð­vitað síðan alveg hræði­lega hall­æris­legt”.

Kristrún er ekki trúuð í dag en eyddi miklu tíma í Bústaða­kirkju við und­ir­leik í barna­messum og á jóla­böllum. „Þetta var sam­fé­lag sem ég datt inn í vegna tón­list­ar­innar og mér þykir vænt um þennan tíma í lífi mínu. Ég ber mikla virð­ingu fyrir fólki sem tekur þátt í kirkju­starfi þó ég sé ekki þar í dag“.

Hef verið heppin í lífinu

Kristrún seg­ist ekki vera komin af póli­tískri fjöl­skyldu en hafi snemma byrjað að hafa sterkar skoð­anir og ekki legið á þeim. Stundum hafi jafn­vel þurft að þagga niður í henni þegar henni lá mikið niðri fyrir. Hún fór þó aldrei í háskólapóli­tík né ung­liða­starf í stjórn­mála­flokki. „Ég hefði allt eins getað farið fyrr í form­legt póli­tískt starf, en ég gaf mér ein­fald­lega ekki í tíma í það þegar ég var yngri. Svo var ég komin í starf þar sem þetta tvennt flétt­að­ist ekki vel saman, efna­hags­ráð­gjöf og póli­tík. En mér finnst heldur ekki sjálf­gefið að fólk þurfi að alast upp í stjórn­mála­flokki til að vera póli­tískt virkt síðar.“

Kristrún fagnar útskrif úr Yale. Mynd úr einka­safni.

„Ég kem úr frekar hefð­bund­inni fjöl­skyldu, mamma mín er heim­il­is­læknir en hefur und­an­farin 15 ár unnið á bráða­mót­tök­unni og pabbi minn er þjóð­fræð­ingur og var lengst af í safna­geir­anum. Ég átti góða æsku og gekk vel bæði í námi og félags­lega. En ég veit líka að það er langt frá því að vera sjálf­gefið og hef alltaf verið mjög með­vituð um hvað ég hef verið heppin. Ég á mjög náin tengsl við ein­stak­linga sem hafa þurft að hafa mun meira fyrir líf­inu en ég og hef óbeit á þeirri fram­setn­ingu að ef maður er bara nógu dug­legur falli allt í réttan far­veg. Aðstæður og eig­in­leikar fólks eru mjög mis­mun­andi.“

Engar beinagrindur í skápnum

Það er eng­inn úr við­skipta- og fjár­mála­geir­anum í fjöl­skyldu Kristrúnar og hún segir það algjöra til­viljun að hún valdi hag­fræð­ina en um tíma hafði hún íhugað að fara í stjórn­mála­fræði. „Ég kom alveg græn inn og vissi ekk­ert hvað ég var að fara út í. Hvað þá að ég hefði ein­hverja draum um að verða ein­hver „stjörnu­hag­fræð­ingur”.

Sjálf kemur Kristrún af aðhalds­sömu heim­ili og segir þennan bless­aða „upp­gang” árin fyrir 2008 krís­una alveg hafa farið fram­hjá sér.

„Þetta ástand var auð­vitað mjög mót­andi fyrir marga og hef fengið þá spurn­ingu hvort mig skorti ekki ákveðið sam­hengi fyrst ég gekk ekki í gegnum hrunið á full­orð­ins­aldri. En á móti kemur að ég hef engar beina­grindur í skápnum eða aðgerðir að verja sem fylgja stundum þeim sem unnu í við­skipta­líf­inu á þessum tíma. Allt mitt nám og minn fer­ill hefur aftur á móti verið lit­aður af þess­ari krísu og eft­ir­málum hennar. Fyrir mér er ein­fald­lega aug­ljóst að þetta var galið tíma­bil og það er ekki til í mér með­virkni, ég er rosa­lega bein­skeytt, segi hlut­ina eins og þeir eru og held ekki aftur af mér”.

Kristrún í 2016 New York mara­þon­inu – þar sem hún flaug frá London til NYC á föstu­dags­kvöldi, hljóp 42 km á sunnu­degi og svo strax aftur í vinn­una á mánu­deg­inum í London.

Fólk tekur sig óþarflega alvarlega

Kristrún segir það oft vilja brenna við að hag­fræð­ingar tali undir rós og í flóknum frösum eins og hag­fræði sé eitt­hvað annað en bara lýs­ing á raun­veru­leika fólks. „Eftir að ég fór að tala meira út á við fæ ég oft að heyra að ég sé að tala „manna­mál” en ég hugsa það aldrei þannig, finnst það bara hinir sem eru að flækja hlut­ina óþarf­lega mikið. Hagfræði er bara ein teg­und lýs­ingar á sam­fé­lag­inu og hvernig það fún­kerar og þú verður að geta talað við fólk á þeirra for­sendum. Fólk tekur sjálft sig óþarf­lega alvar­lega stundum.”

Kristrún er óhrædd við að tjá skoð­anir sínar.

Árið 2009 fékk fékk Kristrún vinnu sem rit­ari Seðla­banka­stjóra fyrir algjöra til­viljun. „Þá var Norð­mað­ur­inn Svein Harald Øygard seðla­banka­stjóri, mjög áhuga­verður maður. Þarna var líka fullt af erlendum sér­fræð­ingum sem höfðu verið kall­aðir til af Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum og það jók áhuga minn enn meira á hag­fræði því ég fékk strax þetta ung tæki­færi til að sjá fólk í dag­legri vinnu við þessa grein. Þetta hafði ótrú­leg áhrif á mig og var meðal ann­ars ástæðan fyrir því hversu drifin ég var síðar í nám­inu”.

Manhattan agalega spennandi

Eftir hag­fræði­námið fer Kristrún að vinna í grein­ing­ar­deild Arion banka. „Mig lang­aði að vinna við að greina efna­hags­mál og það voru ekki mörg svo­leiðis störf í boði þá. Þetta starf hent­aði mér mjög vel því ég gat unnið grunn­vinn­una en líka talað um töl­urnar við fólk. Það fer ekki alltaf saman”. Kristrún fer síðan í fram­halds­nám í einn af þekkt­ustu skólum heims, Yale, í Banda­ríkj­unum og hefur svo störf í grein­ing­ar­deild fjár­fest­ing­ar­bank­ans Morgan Stanley eftir hvatn­ingu frá læri­föður sínum í skól­anum sem hafði verið þar aðal­hag­fræð­ingur.

Kristrún gat ekki stillt sig að grípa í sama grip og Elvis not­aði þegar hún fót til Memphis.

„Ég var reyndar ákveðin í því að fara í almanna­geir­ann þá eða „non–profit” starf og humm­aði þessa hvatn­ingu lengi af mér. En auð­vitað var þetta aga­lega spenn­andi á þessum tíma, að vinna í 50 hæða gler­bygg­ingu á Man­hattan og fá vel borgað í þokka­bót”. Hún flytur svo á skrif­stofur bank­ans í London ásamt manni sínum, Einari Bergi, sem hafði fengið starf þar í borg.

Ekki gefandi að greina verð á nærbuxum

„Öllum fannst mik­ill glamúr yfir þessu New York/London dæmi en stað­reyndin var sú að við unnum 90 tíma á viku og rétt náðum að þvo þvott­inn á sunnu­dögum. Þetta er rosa­legt hark, vissu­lega lær­dóms­ríkt en mér fannst þetta aldrei neitt sér­stak­lega gef­andi vinna. Þegar ég var komin í að greina verð á fötum í net­versl­unum hugs­aði ég hvers vegna ég hefði lagt á mig alla þessa vinnu svo að fram­lag mitt til betri heims væri mat á hluta­bréfum Asos út frá nær­buxna­úr­vali“.

Kristrún vildi fyrst og fremst verða fjár­hags­lega sjálf­stæð segir það aldrei verið mark­mið sitt að þéna mikla pen­inga. „Það er gömul og leið­in­leg mýta að pen­ingar sé mæli­kvarði á árangur í líf­inu”.

Slæ hnefanum í borðið

Þau hjón héldu heim eftir fimm ára fjar­veru. „Ég ætl­aði ekki aftur í fjár­mála­geir­ann hér heima en mér bauðst þessi nýja staða hjá Kviku sem aðal­hag­fræð­ingur og fékk frí­spil við að móta starfið og sá að ég gæti haft áhrif. Ég hef metnað fyrir að breyta and­rúms­loft­inu í fjár­mála­geir­anum og var alveg óhrædd við að taka debatið og slá hnef­anum í borðið varð­andi hvernig hlut­irnir eru gerðir og orð­aðir. Sumir segja að ég hafi aldrei fittað 100% í fjár­mála­geir­anum, öðrum finnst það sama eiga við mig í póli­tík­inni í dag en það er ekki hollt að hólfa fólk niður í ein­hverjar ster­eótýpur. Það er alls konar fólk alls staðar. Og þannig á það að vera“.

Flógáttir opnuðust

Kristrún vakti tals­verða athygli í fjöl­miðlum í fyrra fyrir grein­ingar sínar á efna­hags­á­stand­inu í tengslum við COVID. Hún segir að hún hafi fundið sig í ákveðnum far­vegi eftir síð­asta ár sem leiddi hana yfir í stjórn­málin og ein­fald­lega flotið með. „Þegar COVID krísan hófst í fyrra og aðgerð­ar­pakkar stjórn­valda voru kynntir trekk í trekk opn­uð­ust flóð­gátt­irnar hjá mér. Öll þekk­ingin sem ég hafði sankað að mér í gegnum árin eftir yfir­legu á hag­stjórn­ar­málum erlendis varð allt í einu að gíf­ur­legum fjár­sjóði og ég lá yfir öllum mögu­legum úrlausnum á ástand­inu. Ég tók slag­inn fyrir hluti sem þóttu umdeildir í upp­hafi krepp­unnar, eins og að styðja við fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu og hækka atvinnu­leys­is­bætur, almennt meiri rík­is­stuðn­ing til fólks í nátt­úru­ham­förum. Margt af þessu þótti svo ekk­ert umdeilt nokkrum mán­uðum síðar þegar leið á krepp­una. Ég vissi fyrir víst að ég myndi ná til breið­ari hóps fólks því fáir bjugg­ust við því að mann­eskja í banka væri til­búin að gagn­rýna með­ferð á þeim sem veikast standa í dag.“

Ekki lögmál að viðskiptalífið sé til hægri

Mörgum fannst ótrú­legt þegar Kristrún tók nýja beygju í líf­inu og fór í póli­tík­ina. „Öll mín þjálfun var fyrir svona efna­hags­á­stand, ég vissi að ef ég gæti ein­hvern tím­ann haft áhrif þá væri það á svona tímum. Svo ég mætti bara í við­töl og tal­aði hreint út um ástandið. Ég var ekk­ert að velta fyrir mér hver væri að hlusta eða hvert það leiddi mig. En ég tók með­vit­aða ákvörðun að hætta að vinna með ann­arra manna pen­inga og fara að gera eitt­hvað sem ég trúi á eftir hvatn­ingu frá fólki í Sam­fylk­ing­unni. Það kom þeim sem þekkja mig vel ekki á óvart að ég tók stökkið. Sumum fannst reyndar merki­legt að mann­eskja úr fjár­mála­geir­anum væri að fara að vinna með flokki vinstra megin við miðju, eins og það sé eitt­hvað lög­mál að allt fólk sem hafi starfað í við­skipta­líf­inu sé mjög hægri­s­innað.“

Með passlega minnimáttarkennd

Kristrún segir að þau sem skilja pípu­lagn­irnar í fjár­mála­kerf­inu hafa mikið vald, fólki gæti þótt það ósann­gjarnt en pen­ingar stýra mjög miklu. „Þess vegna skiptir máli að vera með fólk í öllum flokkum sem hefur þekk­ingu á þessu sviði. Þekking á efna­hags­málum er gíf­ur­lega mik­il­væg – efna­hags­mál eru vel­ferð­ar­mál. Ég við­ur­kenni að þessi trú hér heima að efna­hags­mál séu einka­mál hægri manna fer í taug­arnar á mér. Sér­stak­lega þegar 50 ára gömlum kenn­ingum um efna­hags­mál er haldið á lofti sem ein­hverjum sann­leik sem lang­flestir hag­fræð­ingar hafa skotið niður.“

Þótt Kristrún sé aðeins 33 ára hefur hún ára­tuga reynslu í ræðu­höldum.

Kristrún vill draga umræðu um efna­hags­mál nær almenn­ingi. „Ég er óhrædd að fara nýjar leiðir en að sama skapi með pass­lega minni­mátt­ar­kennd sem felst í því að ég marg­tékka á öllu sem ég geri, velti því fyrir mér hvar ég gæti haft rangt fyrir mér. Ég er algjör­lega til­búin að við­ur­kenna það ef ég hef rangt fyrir mér enda ekki upp­full af sjálfri mér og hef aldrei verið. Ég held að það sé mik­il­vægur eig­in­leiki að hafa í póli­tík, því mín inn­koma í stjórn­málin snýst ekk­ert um mig, heldur hvað ég get gert fyrir aðra enda er þetta hrein og bein sam­fé­lags­þjón­usta, segir Kristrún, full orku fyrir kom­andi kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu