„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skipið sem olli stærsta mengunarslysi við Íslandsstrendur

Skipið sem olli stærsta mengunarslysi við Íslandsstrendur
Ingi Bjössi við líkanið af Caesar H226, sem er sann­kallað meist­ara­stykki. Mynd aðsend

„Það tekur stund að gera svona skip, það eru mörg hand­tök í þessu og mikið nostur,“ segir Ingvar Frið­björn Sveins­son hag­leiks­maður í Hnífsdal.

Dags­dag­lega er Ingvar kall­aður Ingi Bjössi og flestum ókunnur undir fullu nafni. Hann hefur smíðað ótrú­lega magnað líkan af síðu­tog­ar­anum Caesar H226 frá Hull í Englandi.

Hvert smá­at­riði skips­ins er eins og fyr­ir­myndin. Uppsett Granton troll sjó­klárt út í síðu með húðum og öllu sem til­heyrir og bundið fyrir pok­ann.
Spil skips­ins eru öll hreyf­an­leg og virka bæði kúp­lingar og bremsur. Hvert smá­at­riði er á sínum stað. Skipið er 2.8 metrar að lengd. Vírar eru splæstir og þrykk­ingar þar sem þær eiga að vera.
Fólk getur komið við á Dalvegi 12 í Hnífsdal um helgar og fengið að skoða þessa ein­stöku lista­smíð sem heillar alla þá sem til skipa þekkja og ekki síst fólk sem unnir góðu hand­verki.

En hvað varð til þess að Ingi Bjössi smíð­aði breskan tog­ara en ekki til dæmis Pál Pálsson úr Hnífsdal?

„Þetta skip hefur verið mér ofar­lega í huga allt frá því að ég var ungur maður. Skipið strand­aði í apríl 1971 við Arnarnes hérna í Djúpinu í björtu og stilltu veðri. Skip­verjar og útgerð skips­ins afþökk­uðu alla aðstoð. Þremur dögum seinna hafði mikil olía lekið úr skip­inu og fór um allar fjörur og mik­ill fugla­dauði hlaust af. Talið er að ekki færri en 3000 fuglar hafi drep­ist í þessu olíu­baði. Í maí tókst að koma skip­inu af strand­stað og var því lagt við sand­rif á Ísafirði. 1. júní var skipið dregið af stað áleiðis til Englands án þess að nokkuð væri hugað að því hreinsa olíu úr tönkum þess. Mörgum hér vestra fannst þetta vera glanna­legt.

Skipið sökk avo um 40 sjó­mílur vestur af Látra­bjargi og með því um 160 tonn af olíu. Mér hefur alltaf sviðið þetta kæru­leysi enda tel ég þetta vera næst stærsta meng­un­ar­slys við Íslands­strendur, segir Ingi Bjössi.
Hann hefur verið á sjó allt sitt líf og veit því að bera verður virð­ingu fyrir haf­inu og umgengni um það.

Það er bók­staf­lega allt á sínum stað. Mynd aðsend

Nú eru tvö skip kom­inn langt áleiðis í smíðum, bæði skipin eiga sterka teng­ingu við Ísafjörð. Sólborg ÍS 260 sem Ísfirð­ingur hf. eign­að­ist 1951 og var flagg­skip ísfirska flot­ans 732 tonn að stærð. Skipið mark­aði bylt­ingu í atvinnu­lífi bæj­ar­búa.
Júpiter GK 161 var smíð­aður 1925 fyrir Tryggva Ófeigs­son og var í drift fram yfir 1960. Skipið var gert út síð­ustu ár frá Þingeyri og svo Flateyri undir nafn­inu Guð­mundur Júní ÍS 20. Skipið var nær 400 tonn að stærð.

Skipið dag­aði svo uppi í fjör­unni á Suð­ur­tanga sem skjól fyrir slipp­inn og ólust margir árgangar Ísfirð­inga upp við að leika sér þar um borð.
„Ég stefni á að klára nýju skipin að ári og svo kemur í ljós hvað tekur við en ég mun áreið­an­lega smíða fleiri skip. Allt verður þetta til sölu, nokkuð hefur verið spurt um Breska togar­ann bæði hér og líka komið fyr­ir­spurnir frá Hull. Ég veit ekki hvað verður um hann, en hann er til sölu. Nú, ef ein­hvern vantar að láta smíða fyrir sig skip, þá er ég hérna í skúrnum,“ segir völ­und­ur­inn í litla bíl­skúrnum í Hnífsdal

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins