„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þegar AIDS kom til Íslands: „Hefnd guðs gegn þeim sem eru kynvilltir og misbjóða honum með óeðli“

Þegar AIDS kom til Íslands: „Hefnd guðs gegn þeim sem eru kynvilltir og misbjóða honum með óeðli“

„AIDS á tæp­lega eftir að útrýma mann­kyn­inu. Það verða alltaf eftir ein­hverjir ein­líf­is­menn og hjón sem lifa ein­göngu kyn­lífi innan hjóna­bands­ins og geta ekki smit­ast,” sagði Haraldur Briem, þáver­andi smit­sjúk­dóma­læknir í sam­tali við DV 9. nóv­em­ber 1985. Orð Haraldar má engan veg­inn túlka sem for­dóma heldur var þekk­ingin á sjúk­dómnum afar lítil, ekki ein­vörð­ungu hjá almenn­ing, heldur einnig á meðal heil­brigð­is­starfs­manna.

Það erfitt að koma í orð þeirri hræðslu, for­dómum og van­þekk­ingu sem upp gaus upp meðal þjóð­ar­innar eftir að bera fór á HIV veirunni hér á landi upp úr 1983. Sé litið til sam­tíma­miðla síend­ur­taka sig sömu frasarnir: Pestin ólækn­andi væri á pari við löm­un­ar­veiki, berkla og svarta­dauða og vís­ast væri að þeir sem tækju þessa veiki horfð­ust beint í augu við dauð­ann.

Kynvillingaplágan

Fólk var fljótt að benda á söku­dólgana, smit­ber­ana sem settu líf blásaklauss fólks í hættu með til­veru sinni einni: Sam­kyn­hneigða karl­menn eða „kyn­vill­inga” eins og þá þá þótti eðli­legt að nefna þá. Talað var um „homma­veik­ina“ og „kyn­vill­inga­plág­una.“ Ekki ein­ungis þurftu sam­kyn­hneigðir karl­menn að þola útskúfun og for­dóma heldur þurftu þeir einnig að sjá á eftir vinum og unn­ustum í dauð­ann af völdum sjúk­dóms­ins enda engin lækn­ing þekkt á þessum tíma.

„Hvernig sem það er, þá þykir merki­legt að plágan skuli miða út kyn­vill­inga og mis­þyrma þeim svo hræði­lega”

Í aðsendri grein til DV skrifar Helgi Geirsson að „negrar frá eyland­inu Haítí hafi reynst smit­berar í Banda­ríkj­unum” og bætir við: „Vegna þess að „AIDS“ hrjáir kyn­vill­inga svo illi­lega, þá hefur nafnið „the gay plague” eða kyn­vill­inga­plágan á íslensku fest hana í almennu tali”. Helgi segir trú­boða og presta hafa verið fljóta til að benda á að hér sé um að ræða hefnd guðs gegn þeim sem eru kyn­villtir og mis­bjóða þannig nátt­úrulu­lög­málum hans með óeðli sínu. „Hvernig sem það er, þá þykir merki­legt að plágan skuli miða út kyn­vill­inga og mis­þyrma þeim svo hræði­lega”.

Lokaðar kistur og lík í plastpoka

Lítið var vitað um sjúk­dóm­inn fyrstu árin en meðal þeirra sem börð­ust hetju­legri bar­áttu við að reyna að fræða fólk voru meðal ann­ars nokkur fjöldi heil­brigð­is­starfs­manna, sumir með­limir Sam­tak­anna 78 svo og fleiri. En raddir þeirra máttu sín lít­ils gegn þeim ofsa­fengna ótta sem ríkti.

„Ástandið var svo óhuggu­legt í fyrstu. Lokaðar kistur, lík í plast­poka, engin kistu­lagn­ing“

„Ástandið var svo óhuggu­legt í fyrstu. Lokaðar kistur, lík í plast­poka, engin kistu­lagn­ing.“ Þannig lýsir hjúkr­un­ar­fræð­ingur stöð­unni á smit­sjúk­dóma­deild Borg­ar­spít­al­ans á níunda ára­tugnum og í upp­hafi þess tíunda. Hræðslan var mikil og sjúk­ling­arnir upp­lifðu mikla skömm og margir gripu til þess ráðs að ljúga um orsök veik­inda sinna. Fólk neit­aði að fara í sjúkra­bíla sem það grun­aði um að hafa flutt HIV smit­aða ein­stak­linga, þeir voru jafn­vel hraktir úr vinnu og dæmi eru um að fjöl­skyldur hafi alfarið snúið bakið við þeim.

Einangrunarstöð fyrir smitaða homma

Þótt bágt sé að trúa í dag þá stungu framá­menn í þjóð­fé­lag­inu upp á því í fullri alvöru að koma á fót ein­angr­un­ar­stöð fyrir eyðn­ismit­aða homma. Svona til að koma örugg­lega í veg fyrir að þeir gætu átt sam­skipti við annað fólk. Jafnvel var rætt um að svipta þá sjálf­ræði sem smit­ast hefðu af veirunni.

Og í pistl­inum Dagfara í DV í nóv­em­ber 1985 segir meðal ann­ars: „Nú er það svo að það er ekki hægt að loka slíkt fólk inni í búrum þegar það ferð­ast með strætó en auð­vitað kæmi til greina að merkja hugs­an­lega smit­bera líkt og gyð­inga forðum og vísa þeim á sér­staka bása í vögn­unum öðrum til við­vör­unar. Það er að minnsta kosti betra og ódýr­ara heldur en að aka hverjum og einum vagni í sótt­kví í hvert skipti sem grunur leikur á far­þega sem fengið hefur veiruna eða gæti hafa fengið veiruna eða mundi geta fengið veiruna“.

„Auðvitað kæmi til greina að merkja hugs­an­lega smit­bera líkt og gyð­inga forðum“

Pistill­inn var skrif­aður eftir að  tveir stræt­is­vagnar hefðu verið settir í sótt­kví í tíu klukku­stundir á þvotta­stöð SVR á Kirkju­sandi vegna kjafta­sögu um að „AIDS-veiran“ leynd­ist í vögn­unum. Enginn starfs­maður þorði að stíga inn í vagn­ana.

Neitað að kryfja lík smitaðra

Í bók­inni Ber­skjald­aður, þar sem Gunn­hildur Arna Gunn­ars­dóttir skráði sögu Einars Þór Jóns­sonar, segir fyrr­nefndur hjúkr­un­ar­fræð­ingur frá hversu eitt starfs­fólkið sem sinnti alnæm­is­sjúkum hafi verið. Að starfs­menn á rann­sókn­ar­stofum spít­al­ans hafi neitað að taka blóð úr sjúk­ling­unum og þeir sem unnu á deild­inni hafi orðið að gera það sjálfir. Erfitt var að fá röntgen­myndir teknar og fá eitt­hvað gert fyrir þá sjúku. „Það voru allir svo hræddir,“ segir hún og veltir fyrir sér ófag­mennsku sér­fræð­ing­anna sem neit­uðu að kryfja lík alnæm­is­sjúk­linga. Smit­sjúk­dóma­lækn­arnir hafi orðið að fram­kvæma krufn­ing­arnar sjálfir.

„Okkur var öllum stillt upp við vegg“

„Fólk sem maður vissi af var að veikj­ast al­var­lega og jafn­vel deyja og þetta hafði mik­il áhrif á alla. En eins mik­ill hryll­ing­ur og HIV var fór­um við að fá upp­lýs­ing­ar frá ábyrg­um aðilum eft­ir að þessi vírus kom upp. Okk­ur var öll­um stillt upp við vegg og við urðum að byrja að tala, sem þýddi að upp­lýs­inga­flæði fór að aukast. Við homm­arn­ir lærðum ým­is­legt um okk­ur sjálfa, en um leið líka rest­ina af þjóð­inni,“ sagði Páll Óskar Hjálmtýs­son í við­tali í hlað­varpi Sölva Tryggva­sonar.

Hann segir að það versta hafi þó verið óvissan. „Ég man að ég þorði ekki að þvo á mér hend­urn­ar á al­menn­ings­kló­sett­um á Hlemmi og þorði ekki að drekka úr sama glasi og ókunn­ugt fólk. HIV sveif á viss­an hátt yfir manni eins og draug­ur sem kem­ur alltaf aft­ur og aft­ur.

Ótt­inn sem fylgdi því að lifa með þess­um vírus er eitt­hvað sem fór ekki úr mag­an­um á mér fyrr en ég fékk bólu­setn­ingu við HIV,” sagði Páll Óskar í upp­rifun sinni af þessum skelfi­lega tíma í íslenskri sjúk­dóma­sögu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins