„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Austurland utan þjónustusvæðis“

„Austurland utan þjónustusvæðis“
Einar: Lögð ofurá­her­lsa á ferða­þjón­ustu í þægi­legri akst­urs­fjar­lægð frá höf­uð­borg­inni.

Nýlega kynnti Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir ráð­herra ferða­mála, vöru­merkið Vörðu – Merk­is­staði á Íslandi. Því er ætlað að mynda umgjörð um áfanga­staða­stjórnun ferða­manna­staða á Íslandi.

„Varða er gæða­vott­orð sem ferða­manna­staðir geta fengið að upp­fylltum skil­yrðum á borð við mik­inn fjölda ferða­manna árið um kring. Að þeir lúti heild­stæðri umsjón. Að skil­virkt sam­göngu­kerfi og aðrir inn­viður séu nú þegar til staðar og svo mætti lengi telja,“ segir Einar A. Brynj­ólfs­son fyrrum for­maður þing­flokks Pírata.

Í her­leg­heitin verður varið 700 millj­ónum króna á næstu þremur árum; vissu­lega gott og blessað – enda mik­il­vægt að vanda til verks þegar tekið er á móti ferða­fólki.

En Einar er ekki sáttur og segir að „það kemur svo upp úr dúrnum að ein­ungis Gullfoss, Geysir, Þing­valla­þjóð­garður og Jök­ulsár­lón hafa fengið þessa við­ur­kenn­ingu – enn sem komið er: Sem sagt þeir staðir sem nú þegar eru fjöl­sótt­astir hér á landi og þurfa tæp­lega meiri kynn­ingar við.“

Hann heldur áfram.

„Þau eru mörg hand­tökin vegna álags á nátt­úruperlur á Suður- og Suð­vest­ur­landi. sem er fyr­ir­sjá­an­legt þegar ferða­menn fara að venja komur sína í meira mæli hingað þegar veiru­fár­inu slotar. Sú spurn­ing vaknar hvort ekki sé snjallt að nota tæki­færið til að jafna álagið sem hlýst af þeim gríð­ar­lega fjölda ferða­fólks sem mun í náinni fram­tíð leggja leið sína hingað með fleiri val­mögu­leikum víðar um landið.“

Einar bendir á að tæp­lega tutt­ugu og einum millj­arði króna „verður varið í við­bygg­ingu við flug­stöð Leifs Eiríks­sonar á næstu þremur árum. Auk þess sem ISAVIA, eig­andi Kefla­vík­ur­flug­vallar, var rekið með þrettán millj­arða halla á síð­asta ári. Malbikuð akst­urs­braut með­fram Egils­staða­flug­velli bliknar í þeim sam­an­burði. Er hvergi nærri nóg. Þó þar sé um að ræða aðkallandi fram­kvæmd.

Vörðu-verk­efni ferða­mála­ráðu­neyt­is­ins er góðra gjalda vert. En það má segja að það end­ur­spegli ofurá­herslu sem hefur verið lögð á ferða­þjón­ustu í þægi­legri akst­urs­fjar­lægð frá höf­uð­borg­inni. Það gerir ekk­ert fyrir ferða­þjón­ustu í öðrum lands­hlutum.“

Ósáttur Einar nefnir að „við þurfum alvöru átak í ferða­þjón­ustu lands­byggð­anna. Átak sem opnar fleiri gáttir inn í landið en þá sem nú er lang­sam­lega stærst, Kefla­vík­ur­flug­völl.

Með slíku átaki mætti efla lífs­gæði og síð­ast en ekki síst stuðla að meira jafn­vægi milli suð­vest­ur­horns­ins og lands­byggð­anna“ að mati Einars sem klykkir út með þessum loka­orðum:

„Aust­ur­land verður áfram utan þjón­ustu­svæðis nema öfl­ugir málsvarar þess hefji upp raust sína á Alþingi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins