„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Brennisteinsmengun frá gosinu og vitlaust veður víða um land

Brennisteinsmengun frá gosinu og vitlaust veður víða um land

Íslend­ingum víða um land er holl­ast að halda sig að mestu inn­an­dyra í dag ef marka má storma­spá Veð­ur­stofu sem hefur gefið út gula og app­el­sínugula storm­við­vörun á meg­in­hluta land­svæðis eyj­unnar okkar í norðri. Ekkert ferða­veður verður fyrir ferða­hýsi eða hús­bíla nú um helg­ina, en einnig getur verið mjög erfitt að vera í tjaldi í slíkum vindi.

Sér­fræð­ingar Veð­ur­stofu biðja öku­menn að gæta að öku­tækjum sem taka á sig mik­inn vind næsta sól­ar­hring­inn, en fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum til að forð­ast tjón. Þá er mik­il­vægt að festa niður eða taka inn trampólín og garð­hús­gögn, en einnig er minnt á að mik­il­vægt er fyrir göngu­fólk að leita skjóls í húsum þar til stormi slotar.  Þá er fólki í grennd við gos­s­töðv­arnar holl­ast að loka gluggum, not­ast við grímu utandyra vegna gasmeng­unar og ríg­halda í góða skapið þar sem öll él styttir upp um síðir.

Á Breiða­firði er gult ástand, suð­vestan hvass­viðri eða stormur, 18 til 25 metrar á sek­úndu og búast má við snörpum og stað­bundnum vind­hviðum við fjöll sem gætu farið fyrir 35 metra á sek­úndu, einkum á norð­an­verðu Snæ­fells­nesi og í Dölunum.

Á Vest­fjörðum er gul við­vörun, suð­vestan hvass­viðri eða stormur, 18 til 25 metrar á sek­úndu. Búast má við mjög snörpum, stað­bundnum vind­hviðum við fjöll og reikna má með 30 metrum á sek­úndu við toppa. Á Ströndum og Norð­ur­landi vestra ríkir gult ástand, suð­vestan hvass­viðri eða stormur, frá 15 – 23 metrum á sek­úndu.

Suð­vestan hvass­viðri eða stormur geysar í dag á Norð­ur­landi eystra, með gulu ástandi. Þannig verða 18 til 25 metrar á svæð­inu í kringum Eyja­fjörð og búast má við mjög snörpum vind­hviðum, eða um 30 metrum á sek­úndu við fjöll. Suð­vestan stormur, 18 til 25 metrar á sek­úndu verða á aust­an­verðum Trölla­skaga og við Eyja­fjörð og vind­hviður geta farið í allt að 40 metrum á sek­úndu.

Gult ástand er á Suð­aust­ur­landi í dag, suð­vestan hvass­viðri eða stormur, 15 til 23 metrar á sek­úndu við Öræfa­jökul. Búast má við mjög snörpum vind­hviðum við fjöll, stað­bundið 25 til 30 metrar á sek­úndu.

Þá verður suð­vestan hvass­viðri eða stormur, 18 til 5 metrar á sek­úndu norðan jökla og á mið­há­lend­inu og búast má við mjög snörpum og var­huga­verðum vind­hviðum við fjöll að 35 metrum á sek­úndu og sand­foki. Vara­samar og hættu­legar aðstæður verða fyrir ferða­fólk í dag á mið­há­lend­inu og er fólki bent á að sýna var­kárni og fylgj­ast með veð­ur­spám. Mikil hlýj­indi fylgja þó hvass­viðr­inu og má búast við tals­verðri snjó­bráð, einkum á svæð­inu kringum Fjalla­bak (Fimm­vörðu­háls og Laugaveg). Búist er við vatna­vöxtum og verða ár og vöð erfið yfir­ferðar, ásamt því sem göngu­fólk er sér­stak­lega varað við að svæði sem áður hafa verið hulin snjó geti verið sér­stak­lega erfið viður­eignar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins