„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fjögurra ára barn fær harðort bréf frá Creditinfo- „Fullkomlega löglegt“

Fjögurra ára barn fær harðort bréf frá Creditinfo- „Fullkomlega löglegt“

Fjögurra ára gam­alt barn á Norð­vest­ur­landi fékk nýlega sent bréf frá Creditinfo. Bréfið inni­hélt til­kynn­ingu um fyr­ir­hug­aða skrán­ingu á lista yfir ein­stak­linga í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla. Barninu voru gefnir eru 14 dagar frá dag­setn­ingu bréfs­ins til að hafa sam­band við fyr­ir­tækið og gera athuga­semdir, segir í frétt sem Skessu­horn birti.

Bréfið sjálft lítur mjög und­ar­lega út, óháð inni­haldi þess. Stafabil eru í miðjum setn­ingum og orðum og ber bréfið með sér að vera annað hvort frá svindl­urum eða frá ein­hverjum sem hrein­lega gætu verið að fífl­ast í við­tak­anda. Svo reynd­ist hins vegar ekki vera.

„Það er ekkert heilagt“

Fram kemur að til­greint hafi verið í bréf­inu að faðir barns­ins væri ástæða þess að það er nú að fara á skrá yfir ein­stak­linga í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla. Ástæðan sú að pabb­inn er í stjórn­mála­sam­tökum og hefur jafn­framt verið í stjórn opin­bers fyr­ir­tækis. Engu að síður kvaðst hann undr­andi yfir bréf­inu og sendi Skessu­horni afrit af því. „Það er ekk­ert heil­agt virð­ist vera. Barnið mitt á að vísu einn reikn­ing í banka þar sem afmæl­is­pen­ingur og gjafir eru lagðar inn. Reikn­ingur sem er bund­inn til 18 ára ald­urs. Hvílík áhætta, segi ég nú bara. Mér finnt að Creditinfo gæti gert eitt­hvað þarf­legra en standa í svona rugli,“ sagði fað­ir­inn í sam­tali við Skessu­horn.

Þegar blaða­maður Skessu­horns hafði sam­band við Sigríði Laufeyju Jóns­dóttur, lög­fræð­ing Creditinfo, og spurði út í til­urð þessa bréfs,  kann­að­ist hún við að útlit þess­ara bréfa frá Creditinfo væri ekki heppi­legt. Prent­unin hefði mis­farist og bréfin verið send út fyrir mis­tök. Í skoðun væri að senda bréfin út að nýju og baðst Sigríður Laufey við­tak­endur afsök­unar fyrir hönd Creditinfo á útliti bréf­anna.

Er í samræmi við lög

Aðspurð um hvort það telj­ist eðli­legt að senda fjög­urra ára barni slíkt bréf benti hún á að í reglu­verki sem fjallar um téða skrán­ingu á lista væri tekið fram að fjöl­skyldu­með­limir skrán­ing­ar­skyldra aðila, óháð aldri, skuli skráðir á list­ann. Jafn­framt benti hún á að hægt er að stofna reikn­inga í bönkum fyrir börn fljót­lega eftir fæð­ingu. Slíkir reikn­ingar gætu verið ber­skjald­aðir fyrir aðilum sem hefðu eitt­hvað mis­jafnt í huga.

Laufey sagði skrán­ing­una í sam­ræmi við lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Jafn­framt tók hún fram að Creditinfo hefði fyr­ir­fram haft sam­ráð við Per­sónu­vernd áður en haf­ist var handa við téða skrán­ingu. Þá lagði hún áherslu á að það er ekki hver sem er sem fær að fletta upp í umræddum lista. Eingöngu til­kynn­inga­skyldir aðilar sem þurfa að full­nægja ákveðnum skyldum sam­kvæmt lögum um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, hafi heim­ild til þess, sagði Laufey í frétt Skessu­horns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins