„Ég hljóp út úr tjaldinu og kallaði á leiðsögumanninn: „Siggi er kominn með heilabjúg.“ Þetta var hrikalegt. Þarna vorum við búnir að vera á ferðalagi í um 60 daga. Ég man að ég stóð fyrir utan tjaldið og horfði á tindinn, á meðan leiðsögumaðurinn setti súrefnið í botn og reyndi að tala við Sigga, og ég hugsaði: Þetta er búið,“ segir Heimir Fannar Hallgrímsson sem er ásamt Sigurði Bjarna Sveinssyni í viðtali við Fréttablaðið.
Þeir félaga gengu til styrktar Umhyggju – félagi langveikra barna.
Covid og heilabjúgur
Heimir og Siggi unnu það afrek að klífa hæsta tind veraldar aðfaranótt mánudagsins 24. maí, báðir með Covid-19 og Siggi með heilabjúg. Þeir urðu þar með tíundi og ellefti Íslendingurinn til að sigra Everest-fjall.

Þeir lentu í mörgu á ferð sinni. Siggi hafði rifin liðfþófa og slasaðist í þokkabót illa á hné er þeir komu úr hæðaraðlögun við Khumbu jökulinn. Þurftu þeir að snúa við og man Siggi lítið eftir að hafa klifið ísveggina að grunnbúðunum og telur sig hafa lokað á það vegna sársauka. Ekki gekk að koma honum til heilsu og var hann sendur til Katmandu þar sem hann dvaldi í fimm daga.
Tjaldbúðir þrjú voru þær ónýtar vegna hríðar. Ofan á það fara þeir að hósta. Þá grunaði Covid, sem reyndist rétt, en heldu áfram, veikir, kaldir og þreyttir að tjaldbúðum fjögur í 8.000 metra hæð. Einnig nefnt dauðasvæðið vegna súrefnisskorts. Hóstinn versnaði og tjöldin voru fokin.
Hvað heiti ég?
„Ég sat í tjaldinu með Sigga og sagði honum að Mingma, einn leiðsögumannanna, væri kominn með auka súrefniskút handa okkur. Þá horfði bara Siggi á mig, svolítið ringlaður á svipinn, og sagði: Mingma? Ég er ekki alveg að kveikja.“ Ég var alveg steinhissa en áttaði mig fljótlega á því að ekki væri allt með felldu svo ég spurði hann: Siggi, hvað heiti ég?“ og hann bara starði á mig og mundi ekki neitt.“

Var Siggi kominn þá með heilabjúg vegna súrefnisskorts. Einhvern veginn hafði lokast fyrir súrefnisstreymið í 8.000 metra hæð, þar sem súrefnið er 20 prósent af því sem við erum vön að anda að okkur.
Man ekkert
Þetta var spurning um 30 til 50 mínútur. Hefði Siggi ekki náð að jafna sig hefðu þeir þurft að snúa við, aðeins 943 metrum frá toppnum. Aðspurður segist Siggi muna eftir samtalinu en ekki hafa tengt og skort í minni. Hann segist hafa þekkt einkennin en ekki áttað sig fyrr en hann sá svipinn á Heimi. Hann tók þá neyðarlyf við heilabjúg enda búinn að gleyma eigin nafni.
Hann náði að jafna sig og náðu þeir fínni hvíld, næringu og samveru áður en þeir lögðu af stað á toppinn.
Lík á lík ofan
Þeir hófu klifur á tindinn klukkan 20.30 kvöldið 23. maí. Fljótlega blasti við þeim lík. Það var göngumaður sem hafði reynt að ná toppnum í óveðrinu nokkrum dögum áður. „Það var skrítin tilfinning að ganga fram hjá látnum manni. Frosinn í blóðrauðu tunglinu. Tilfinning eins og að ryðjast inn á grafreit.

Svo komu þeir að öðru líki. „Hann hafði látist nokkrum dögum áður. Sama sagan en í þetta sinn var erfitt að afhafna sig án þess að rekast á hann þar sem hann lá á klettinum.
Stutt á milli lífs og dauða
Siggi og Heimir nálguðust topp Everest og gengu saman enda höfðu þeir staðið saman eins og klettur síðustu mánuðina og vildu ná toppnum á sama tíma hlið við hlið.
Þeir segja að hugsunin um hversu stutt sé á milli lífs og dauða á þessu fjalli hafi verið ríkjandi á toppnum. „Ef eitthvað gerist í 8.848 metra hæð er enginn að fara að bjarga þér.“
Þeir félagar stóðu hlið við hlið á toppnum í korter. Svo hófst afar erfið niðurleið
Úrvinda komust þeir á leiðarenda eftir ellefu daga ferð á fjallinu og eftir 86 daga örlagaríka daga náðu þeir Heimir og Siggi sneru félagarnir heim þann 11. júní. Everest-farar og hetjur.
Viðtalið má sjá í heild sinni í Fréttablaðinu




















Athugasemdir