Í dag fagnar Guðni Th. Jóhannesson forseti sínum fimmtugasta og þriðja afmælisdegi. Hann skrifar á Facebook síðu embættis forseta Íslands að dagur gleði og gæfu sé runninn upp.
„Á miðnætti féllu úr gildi allar hömlur hér innanlands vegna farsóttarinnar sem hefur leikið okkur svo grátt síðustu misseri. Enn skulum við þó hafa varann á, veiran geisar áfram víða um heim,“ og bætir við að hann voni að leitin við Geldingadali skila árangri í dag.
„Engu að síður megum við hér heima fagna okkar merku tímamótum. Ég hugsa hlýtt til þeirra sem misst hafa ástvini vegna vágestsins, auk þeirra sem veikst hafa af völdum hans. Og ég hugsa með djúpu þakklæti til allra þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum í heimsfaraldrinum, í þágu alls samfélagsins.
Á afmæli mínu í dag hefði ég vart getað óskað mér betri tíðinda en þeirra sem við getum nú notið. Við stóðum saman, við Íslendingar. Við treystum á mátt vísinda og þekkingar, við sýndum hvað í okkur býr þegar á reyndi. Höldum áfram vöku okkar og þá mun allt fara vel.“
Guðni er í Vestmannaeyjum og sendir kærar kveðjur þaðan.




















Athugasemdir