Glúmur Baldvinsson er svartsýnn á möguleikann á að verða boðið í villtar kynlífsveislur eftir að Covid höftunum létti eins og sjá má á Facebook færslu hans.
„Nú berast þau fagnaðartíðindi um gjörvallt Ísland að landið verður án hafta og takmarka frá miðnætti. Takmarkalaust Ísland 2021. Sjálfur skil ég ekki öll fagnaðarlætin á logandi miðlunum því þetta mun engu breyta um mitt líf. Því harla ólíklegt er að mér síðmiðaldra karlmanninum verði boðið í djamm og sleik og orgíur eftir miðnætti héðan af í lífinu. En vegni ykkur hinum vel.
Og Guð blessi þjóðina, íslenskan kynlífstækjaiðnað en mest þó Forsetann“.
Fólki er almennt skemmt í svörum og benda margir Glúmi á að hann sé ekki svo gamall að slíkt athæfi sé útilokað og telur Erlendur að engin höft þýði að tími Calicula sé runninn upp.
„En er auðvitað smá abbó“
Aðrir fagna miðjum aldri og orgíuleysi og segist Sigurður vera heima. „Ég er ryksuga stundvíslega á föstudagskvöldi eins og undanfarin 10 ár, ekki bitur ekki neitt, bara stundvís, ég og Miele, pokalaus“.
Síðar bætir Glúmur við:
„En auðvitað er ég smá abbó. Það verður að viðurkennast. Tóm bingókvöld og leiðindi framundan. Mér láðist að biðja Guð um að blessa Þjóðólf og Víði og þakka fyrir takmarkalausar orgíur framtíðar.“




















Athugasemdir