„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Milljarðahöllin stenst ekki kröfur: „Geta þessir jólasveinar ekki gert neitt rétt í Garðabæ?“

Milljarðahöllin stenst ekki kröfur: „Geta þessir jólasveinar ekki gert neitt rétt í Garðabæ?“
Millj­arða­höllin lágreista. . Mynd / Garðabær.

Í Vetr­ar­mýri í Garðabæ rís nú dýrasta knatt­spyrnu­hús lands­ins; kostn­aður við verkið er um fimm millj­arðar króna, en húsið er rúm­lega átján þús­und fer­metrar að stærð; með rými fyrir knatt­spyrnu­völl í fullri stærð; upp­hit­un­ar­að­stöðu og til­heyr­andi stoð­rýmum.

Nú er komið á dag­inn að í þessu rán­dýra knatt­spyrnu­húsi í Garðabæ er knatt­pyrnu­völl­ur­inn ekki lög­legur fyrir keppn­is­leiki á efsta stigi; lands­leiki og leiki í efstu deildum karla og kvenna; aðeins í neðri deild­unum.

Ástæðan fyrir þessu er loft­hæð hall­ar­innar: Hún er fjórtán metrar en þyrfti að vera rúm­lega sex metrum hærri til að upp­fylla skil­yrði KSÍ varð­andi leiki í efstu deild­unum og lands­leiki.

Svo­kall­aðar „inni­hallir“ hafa risið víða um land allt á und­an­förnum árum og ára­tugum, en aðeins tvær af „höll­unum“ – Kórinn í Kópavogi og Egils­höll í Graf­ar­vogi upp­fylla skil­yrðin um áður­nefnda loft­hæð.

Þessi lága loft­hæð í Garðabæ hefur fallið í grýttan jarð­veg margra innan knatt­spyrnu­sam­fé­lags­ins hér á landi; margir eru undr­andi og jan­vel reiðir, sér­stak­lega þegar tekið er til­lit til að húsið kostar fimm þús­und millj­ónir króna.

Þetta mál var til dæmis til umræðu í hlað­varps­þætt­inum vin­sæla en umdeilda, Dr. Football, sem margir áhuga­menn um íslenska knatt­spyrnu fylgj­ast með.

Þar var ýmis­legt á kjarn­yrtri íslensku látið flakka um málið; gagn­rýndi þátta­stjórn­andi hlað­varps­ins, gamli mark­vörð­ur­inn Hjörvar Haf­liða­son meðal ann­ars bæj­ar­yf­ir­völd í Garðabæ harð­lega enda fjár­fest­ingin við húsið rán­dýr eins og áður hefur komið fram:

„Garð­bæ­ingar byggðu dýr­ustu höll sög­unnar og það má ekki keppa í henni!“ og varp­aði síðan fram þess­ari spurn­ingu:

„Geta þessir jóla­sveinar ekki gert neitt rétt í Garða­bænum?“

Gestur Hjörvars í þætt­inum er ekki minni orð­hákur en Hjörvar, Lúðvík Jónasson, sem er Garð­bæ­ingur í húð og hár, fyrrum knatt­spyrnu­maður og fram­kvæmda­stjóri Bestun Birt­inga­húss. Hann var ekki lengi að taka undir orð Hjörvars og sagði að „það er allt í rugli í bæj­ar­stjórn­inni í Garðabæ.“

Íþrótta-, tóm­stunda- og for­varn­ar­full­trúi Garða­bæjar er Kári Jónsson og segir hann að aðal­mark­miðið með bygg­ing­unni sé að hafa bestu mögu­lega æfinga­að­stöðu en um leið upp­fylla þarfir fyrir æfinga­leiki og við­burði sem ekki þarfn­ast meiri loft­hæðar. Samkvæmt Kára hefur það því aldrei verið ætl­unin „að halda lands­leiki eða að spila leiki í efstu deild­unum í nýja fjöl­nota íþrótta­hús­inu sem nú rís í Vetr­ar­mýri; það mun umbylta aðstöðu fyrir æfingar í Garðabæ“ en húsið mun verða upp­hitað og með góðri loft­ræst­ingu og einni bestu þrekæf­inga­að­stöðu á Íslandi. Kári segir mikla eft­ir­vænt­ingu ríkja í Garðabæ varð­andi húsið sem verður tekið í notkun ein­hvern tím­ann eftir ára­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins