Fyrir áframhaldandi búsetu skipta hreint loft, kyrrð og ró og lítil umferð miklu máli. Þessir þættir skipta mun fleiri miklu máli en nálægð við ættingja eða vini, foreldra eða tengdaforeldra,“ segir í umfjöllun um niðurstöður rannsókna Byggðastofnunar á búsetuaformum landsmanna.
Það er ljóst að fæstir stefna á mölina því 80% íbúa í sveitum og strjálbýli landsins er frekar eða mjög ánægður með búsetu sína og ætlar sér ekki að flytja þaðan á næstu árum. Bændur eru ólíklegastir allra til að flytja og rúmlega þriðjungur gerir ráð fyrir að fjölskyldumeðlur takið við búinu. Karlar er vilja frekar flytja en konur og Vestfirðingar frekar en aðrir landsmenn. Þeir eru ennfremur ósáttastir þegar kemur að viðhorfi til samgangna.
Flestir svara því til að náttúran og samfélagið í sveitinni skipti sig persónulega miklu eða talsverðu máli. Þá skiptir húsið sem fólk býr í einnig máli. Hreint loft vegur þyngst fyrir áframhaldandu búsetur svo og kyrr ðg ró, sem koma í annað sætið. 45% segja atvinnu skipta miklu máli um þetta, 40% að jörðin fari ekki í eyði.
Langflestir, eða 60% telja fjárhagsstöðu sína góða, eða tæplega 60%, en um 9% telja hana vera slæma. Það sem merkilegt er að þeir sem telja fjárhaginn góðan eða slæman eru sjá frekar fyrir sér flutning en þeir sem sjá hana þar í milli, hvorki góða né slæma.
Mikill munur er að svari eftir aldurshópum og er yngsti hópurinn líklegastur til flutninga. Þeir sem hyggjast flytja á annað borð kjósa helst að flytja innan sama landshluta en næstflestir á höfuðborgarsvæðið.




















Athugasemdir