„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég hef upplifað margar sorglegar stundir“

„Ég hef upplifað margar sorglegar stundir“
Skjáskot – Svala Björg­vins

Okkar eina sanna Svala Björg­vins­dóttir er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Svölu þarf nú ekki að kynna fyrir neinum, en hún hefur leyft þjóð­inni að njóta söng­hæfi­leika sinna frá barns­aldri og notið mik­illa vin­sælda, enda með ein­staka rödd.
Mannlíf komst að því að Svala er háð sykri, hún trúir á drauga, er með mikla full­komn­un­ar­áráttu og á sér marga drauma, meðal ann­ars að eiga sína eigin húð­vöru­línu -sem von­andi verður að veru­leika, því hver vill ekki líta jafn vel út og Svala sem er 44 ára gömul og virð­ist ekki degi eldri en 25.
Fjöl­skyldu­hagir? Bý með unnusta mínum Kristján Einari og hund­inum okkar Sósu og kis­unni Púmbus í gömlu fal­legu húsi í Hafn­ar­firð­inum.

Menntun/atvinna? Ég er söng­kona og laga­höf­undur, hef einnig verið með mína eigin fata­línu sem ég hann­aði í LA.

Upp­á­halds Sjón­varps­efni? Ég er mik­ill sci fi nörd og elska mikið þætti eins og Stranger Things, Hand­maids Tale og Walking Dead.

Leikari? Meryl Streep, alltaf. Hún er mögnuð þessi kona og ég hef séð allar hennar myndir oftar en einu sinni.

Rit­höf­undur? Elska Yrsu Sig­urð­ar­dóttir og allar hennar bækur.

Bók eða bíó? Get ekki valið á milli því ég les rosa mikið af vís­inda­skáld­sögum og er alger bíófík­ill líka heheh.

Besti matur? Sushi og ind­verskur matur.

Kók eða Pepsí? Pepsi Max for­ever!!!!

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Ég kom í Ásbyrgi í fyrsta sinn í fyrra og ég hef bara ekki séð fal­legri stað! Ég hef ferð­ast um allan heim en þessi staður er bara á ein­hverju öðru leveli. Mér fannst ég vera stödd í Lord of the rings bíó­mynd. Töfrandi staður og góður hljóm­burður þegar maður syngur.

Hvað er skemmti­legt? Að syngja live fyrir fólk. Það er eig­in­lega ólýs­an­legt hve mikla ánægju það gefur mér að geta fengið að vinna við að syngja fyrir fólk.

Hvað er leið­in­legt? Nei­kvæðni og bak­tal.

Hvaða skemmti­staður? Kiki er æði því þar er alltaf meiri­háttar skemmti­leg tón­list og maður getur bara mætt og dansað fram á nótt. Svo finnst mér Miami Bar líka alltaf mjög næs.

Kostir? Trygg, þol­in­móð, ástríðu­full, for­dóma­laus, bjart­sýn og jákvæð.

Lestir? Háð sykri, sem sagt nammi og gosi og frost­pinnum. Ég treysti alltaf öllum og hef fengið það í bakið. Er ekki dug­leg að vakna svaka snemma á morgn­ana og vaki alltaf fram eftir því ég er alger nátt­ugla. Mega flug­hrædd og loft­hrædd. Ekki góð að elda heldur. Með full­komn­un­ar­áráttu í næstum öllu.

Hver er fynd­inn? Kristján Einar Sig­ur­björns­son, unnusti minn. Hann er einn sá fyndn­asti maður sem ég hef kynnst.

Hver er leið­in­legur? Fólk sem er ekki með húmor.

Trúir þú á drauga? Já ég trúi á drauga og er mjög næm og hef oft fundið fyrir alls­konar orkum í gegnum tíð­ina.

Stærsta augna­blikið? Þegar ég vann Söngvakeppni Sjón­varps­ins 2017. Það var ógleym­an­legt moment og ég fann fyrir svo miklu þakk­læti og hóg­værð. Það voru svo margir æðis­legir sem voru að keppa það árið og mér fannst bara svo gaman að taka þátt. Ég hef aldrei unnið neitt á ævinni, verð­laun eða þannig, þetta var í fyrsta skipti á mínum langa ferli sem ég vann eitt­hvað og það var fal­legt og stórt augna­blik.

Mestu von­brigðin? Þetta er án gríns smá erfið spurn­ing því ég er svo mikið týpan sem trúi á að „everyt­hing happ­ens for a rea­son“. Og er ekki mikið með eft­ir­sjá, heldur vil ég alltaf læra af því sem maður upp­lifir hvort sem það er gott eða slæmt. Þannig að finna hver voru mestu von­brigðin er svo­lítið erfitt.
En til að nefna eitt­hvað þá fannst mér von­brigði þegar Selma Björns vann ekki Eurovision 2001, því það mun­aði svo litlu að hún hefði unnið og hún átti að vinna að mínu mati því hún var svo lang­best!!!!

Hver er draum­ur­inn? Ég á svo marga drauma. Mig langar að ferð­ast um alla Asíu, ég vil læra ítölsku og spænsku. Mig langar að leika í söng­leik og bíó­mynd. Mig langar að vera með mínar eigin húð­vörur. Og svo langar mig að verða móðir.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Að hjálpa tveimur nánum fjöl­skyldu­með­limum í gegnum erfið veik­indi.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Nei ég held að maður sé  alltaf að reyna ná alls­konar mark­miðum og elta ein­hverja drauma. Og ég held að það sé gott fyrir and­lega heilsu að hafa alltaf mark­mið og drauma því það heldur manni á tánum og drífur mann áfram í líf­inu.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Jesús ég er svo slæm að muna brand­ara. Ég er með mjög svartan húmor og dýrka þannig brand­ara. En man þá samt aldrei lol.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Þegar ég var að per­forma á mjög stórri tón­list­ar­há­tíð í Arizona fyrir framan mörg þús­und manns, ætli það hafi ekki verið hátt í 10 þús­und manns þarna og bux­urnar mínar, sem voru mjög þröngar, rifn­uðu á rass­inum og ég var ekki í nær­buxum undir þeim því þær voru svo þröngar. Þetta gerð­ist í miðju showi, ég átti alveg fjögur lög eftir. Ég var með dans­ara og átti að gera alls­konar spor með þeim en gat aldrei snúið mér við og gat varla hreyft mig því þá hefðu bux­urnar bara rifnað af mér.
Það var mjög vand­ræða­legt og frekar stressandi moment.

Sorg­leg­asta stundin? Það er ekki hægt að minn­ast á eina sorg­lega stund því ég hef upp­lifað margar sorg­legar stundir. Þær hafa allar tengst þegar fólk sem ég elska fellur frá. Seinasta sorg­leg­asta stundin var þegar amma mín dó, við söknum hennar mikið.

Mesta gleðin? Ég fæ mestu gleð­ina við að gleðja aðra. Að vera til staðar fyrir aðra og hjálpa öðrum færir mér mikla gleði.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að vera þakk­látur, vera í augna­blik­inu og vera opin til að læra alltaf eitt­hvað nýtt og bæta sig sem per­sónu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stækkunarglerið

Bjarkey elskar að dansa – Fyndnasta fólkið er Svandís Svavars og Ari Eldjárn
Menning

Bjarkey elskar að dansa – Fyndn­asta fólkið er Svandís Svavars og Ari Eldjárn

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra er undir stækk­un­ar­gleri Sjóarans. Hún hefur alla jafna í mörg horn að líta og seg­ist eiga það til að ofhugsa hlut­ina. Hún segir ískalt fjalla­vatn vera besta drykk­inn og er lítið fyrir kók og pepsí. Bjarkey Olsen er að eigin sögn rök­föst Excel-kona. Fjöl­skyldu­hagir? Afskap­lega vel gift honum Helga mínum Jóhanns­syni. Börnin okkar eru Tímon Davíð,...
Baldur varð bóndi 13 ára gamall: „Felix er frábær heimilis DJ“
Menning

Baldur varð bóndi 13 ára gam­all: „Felix er frá­bær heim­ilis DJ“

Baldur Þór­halls­son er mjög heima­kær og kann ekki aðeins á þvotta­vél, heldur þurrkara líka. Hann er alæta á tón­list og segir Felix frá­bæran „heim­ilis Dj“. Upp­á­halds ljóð Baldurs er ljóð eftir maka hans, Felix Bergsson og stærstu stund­irnar í lífi hans eru barn­eign­irnar og barna­börnin. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Ég er alinn upp á bænum Ægissíðu í Rang­ár­valla­sýslu og er mjög...
Konan segir Ástþór „sérstaklega rómantískan“: „Mér leiðast þvottavélar en er hrifin af þvottakonum“
Menning

Konan segir Ástþór „sér­stak­lega róm­an­tískan“: „Mér leið­ast þvotta­vélar en er hrifin af þvotta­konum“

Ástþór Magn­ús­son er að sögn eig­in­konu hans alveg sér­stak­lega róm­an­tískur. Hann vill gefa þjóð­inni ávísun ef hann kemst á Bessa­staði og ætlar að leita frið­ar­samn­inga við Rússa, verði hann kos­inn for­seti. Þá leið­ist Ástþóri þvotta­vélar en er hrif­inn af þvotta­konum sem hugsa um hann. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Þing­vellir. Á for­seti að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil? Nei. Hvaða breyt­ingar viltu...
Helstu vonbrigði Viktors: „Að Selma hafi verið rænd sigrinum í Evrósjón“
Menning

Helstu von­brigði Viktors: „Að Selma hafi verið rænd sigrinum í Evrósjón“

Ólafur Ragnar Grímsson er upp­á­halds for­seti Viktors Trausta­sonar, for­seta­fram­bjóð­anda. Helsta fyr­ir­mynd hans er kvik­mynda­k­arakter og hann borðar þorra­mat en bara þegar hann er í boði. Þá vill hann breikka þjóð­veg­inn og heldur upp á ljóðið Slysa­skot í Palest­ínu. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Kólus­botnar. Á for­seti að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil? Í stjórn­ar­skrá er engin krafa um það að for­seti sitji...
Halla safnaði fyrir bílprófi með því að þvo af fjölskyldunni: „Skylda að dansa af og til“
Menning

Halla safn­aði fyrir bíl­prófi með því að þvo af fjöl­skyld­unni: „Skylda að dansa af og til“

Halla Hrund Loga­dóttir safn­aði fyrir bíl­próf­inu með því að þvo af fjöl­skyld­unni. Hún segir að það sé nauð­syn­legt að dansa annað slagið og sér róm­an­tík­ina í hvers­dags­leik­anum. Þá er hún sólgin í harð­fisk. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Sveitin mín á Síðu, þó að landið okkar í heild sé ger­semi. Á for­seti að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil? Ég myndi telja tvö...
Steinunn hefur neytt ólöglegra fíkniefna: „Vil tryggja yfirráð yfir auðlindum okkar“
Menning

Steinunn hefur neytt ólög­legra fíkni­efna: „Vil tryggja yfir­ráð yfir auð­lindum okkar“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir er afskap­lega róm­an­tísk að eigin sögn. Hún við­ur­kennir að hafa neytt ólög­legra fíkni­efna á ævinni og seg­ist hafa lært að meta augna­blikið þegar hún meðal ann­ars fylgdi Stefáni Karli sínum í dauða­stríði hans. Upp­á­halds­staður á Íslandi? Þeir eru nokkrir, Strandir eins og þær leggja sig, N-Þing­eyj­ar­sýsla, hálendi Íslands og auð­vitað allar almenn­ings­sund­laugar lands­ins. Á for­seti að sitja...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins